Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 18
 18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR18 nær og fjær „orðrétt“ – Vel lesið Vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni Áhugasamir auglýsendur vinsamlegast hafið samband í síma 5505844 | orn.geirsson@365.is Einblöðungar - bæklingar - blöð - umslög Vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni Notaðu mest lesna* blað landsins til að dreifa kynningarefni til þinna viðskiptavina *Gallup maí 2006 „Það sem er að frétta er nú helst tónleik- arnir sem við erum að halda í Stúdenta- kjallaranum í kvöld til styrktar götubarna- heimili í Namibíu,“ segir Fjóla Einarsdóttir, formaður félags framhaldsnema við félags- vísindadeild HÍ. „Venancius Rukero stofnaði heimilið. Hann er fyrrum götubarn og lenti á götunni sex ára, bjó undir brú og betlaði fram að tólf ára aldri. Síðan fór hann í vændi og smitaðist af alnæmi. Ég kynntist Venancius í Namibíu, en þar var ég að gera rannsókn um götubörn. Annars er ég á fullu að skrifa fyrir Stúd- entablaðið og er með þrjár greinar sem ég þarf að skila af mér fyrir föstudaginn. Svo það er nóg að gera, því ég er líka í kosn- ingabaráttu til Stúdentaráðs á Vökulistan- um. Ég verð í einu af efstu fimm sætunum og það er kominn mikill kosningahugur í stelpuna. Einnig er ég í gæðanefnd Háskólans og það er mikill lestur í því og undirbún- ingsvinna, en ég sé ekki eftir tímanum. Mér finnst ég reyndar svolítið lítil innan um þessa virtu prófessora, en ég reyni að standa fyrir mínu. Svo þarf ég að fara að undirbúa afmæli þrettán ára sonar míns, en sjálf er ég tuttugu og átta ára. Vinir hans eru farnir að vaxa yfir mig og svara mér með skætingi. Ég urra þá bara á móti. Í hjáverkum er ég síðan að leggja park- ett fyrir vini og vandamenn og það gengur bara ótrúlega vel. Mér finnst mjög gaman að leggja parkett! Ég byrjaði bara ein og nú er verið að kalla mig til verka annars staðar,“ segir Fjóla, sem stefnir ótrauð aftur til Nam- ibíu næsta haust. Hvað er að frétta? FjólA EiNARSdóttiR, FoRMAðuR SAMFÉlAgSiNS Leggur parkett og heldur tónleika Skúrkur eða kvenskörungur? „Hallgerður var hetja, þótt margar karlrembur hafi í gegnum tíðina kosið að minnast hennar sem skúrks.” jóN ólAFSSoN Í FljótSHlÍð HREiNSAR MANNoRð FoR- MæðRANNA og REiSiR ÞEiM HoF. fréttablaðið, 17. janúar. Konur til að horfa á „Þegar verið er að skipu- leggja viðburði í skemmt- analífinu þá er það aldrei gert á jafnréttisgrundvelli. Hugsunin er aldrei sú að kynin séu kynverur saman heldur aðeins að konurnar séu til staðar fyrir karla.” KAtRÍN ANNA guðMuNdSdóttiR, tAlSKoNA FEMÍNiStAFÉlAgSiNS, ætlAR EKKi Að MætA Í PlAyboy- PARtÍ á NASA. Blaðið, 17. janúar Helgi Hóseasson lætur ekki deigan síga. Mótmælandi Íslands hefur nú sett saman skýrslu upp á tugi blaðsíðna sem hann reynir að fá út- gefna. Að sjálfsögðu í óþökk yfirvalda. Um leið og stigið er yfir þrösk- uldinn á heimili Helga Hóseas- sonar verður manni ljóst að þar býr maður með skoðanir. Á veggj- unum hanga blaðaúrklippur um málefni líðandi stundar og mót- mælaskiltin leynast í hverju horni. „Blóð Busi Dóri Davíð“ stendur skrifað á eitt þeirra enda flestum ljóst að Helgi er lítt hrif- inn af Íraksbrölti Bandaríkja- manna. „Busi Bandóðríkjaforseeti beitir sér fyrir manndrápum í Írak með samþykki Íslendinga og hver er með mótmæli nema ég?“ spyr Helgi um leið og hann dreg- ur fram þykkan doðrant og legg- ur á eldhúsborðið. „Þetta er skýrslan sem ég hef samið,“ segir hann. „Ég þyrfti að fá svona 16 eintök af þessari bók til þess að dreifa og mótmæla þessum glæpaverkum. Að gera Íslend- inga formlega þátttakendur í því að drepa tugþúsundir manna austur í löndum. Það er alveg furðulegt að ríkisstjórninni skuli haldast það uppi, óáreittri,“ segir Helgi og blaðamaður spyr að bragði hvort Íslendingar kunni nokkuð að mótmæla lengur. „Þeir kunna að samþykkja,“ svarar Helgi. „Þeir Busi Bandaríkjafor- seti og íslensku ráðherrarnir Dóri og Davíð gerðu þetta hernaðar- bandalag á sínum tíma. Ríkis- stjórnin og þingið hafa samþykkt þetta og þessu er ómótmælt af almenningi.“ Yfirgangur stjórnvalda í Íraks- stríðinu er ekki það eina sem Helga liggur á hjarta og í bókinni sem hann hefur skrifað er deilt á ýmislegt í samfélaginu á hvorki meira né minna en 240 blaðsíðum. „Ég vitna í nokkra menn og birti þarna vísur eftir Pál Ólafsson og Þorstein Erlingsson en uppistað- an er mitt eigið efni sem hefur útheimt heilmikla vinnu. Fyrir mér er þetta stanslaus barátta við bölvað ríkisvaldið og ég er friðlaus fyrir þessu. Ég þyrfti að fá bókina útgefna en þeir sem ég hef leitað til hafa ekki viljað beita sér gegn ríkisvaldinu.“ Titill bókarinnar „Þrælar og himnadraugar“ er ekki úr lausu lofti gripinn. „Íslenskir stúdentar í Danmörku kölluðu danska lög- regluþjóna þræla og þaðan hef ég þetta. Já og himnadraugar, það er nú enn önnur vitleysan. Ríkisvald- ið beitir sér fyrir því að börn við- urkenni að úldið arabakjöt sé uppi á himnum. Það er furðulegt að sækja draugasögur austur til arabalanda og láta fólk hérna norður við sjó trúa þessari vit- leysu,“ segir Helgi og á þar við kristnidóminn og upprisu frelsar- ans. „Þeir tala um upprisu en hér á Íslandi erum við vön að kalla svona fyrirbæri afturgöngur. Þetta er nú meiri vitleysan. Og svo vill ríkisvaldið að við trúum þessum andskota,“ segir Helgi hneykslaður. En er Helgi þá trúleysingi? „Ég hef skoðun á hlutunum en ekki trú. Trú er ekki trúverðugt fyrir- bæri en ég reyni eftir bestu getu að mynda mér skoðun um hvað eina,“ segir Helgi, sem er hvergi nærri hættur að mótmæla. „Ég er orðinn 88 vetra gamall en ég gefst ekki upp. Ég veit að ég næ ekki árangri, hvorki hjá almenningi né þessum þrælum, en ég hætti ekki að mótmæla fyrir því. Það er það eina sem ég get veitt minni per- sónu, að standa við það sem ég hef áður sagt og mótmæla því að íslensk þjóð sé dregin inn í þetta stríð,“ segir Helgi og sýnir blaða- manni úrklippu sem hann hefur hengt upp í eldhúsinu, með frétta- mynd frá Írak. „Sérðu angistina í þessu barnsandliti?“ spyr Helgi og bendir með bognum fingri á myndina. „Þessi stúlka er nýbúin að missa báða foreldra sína og þessu tökum við þátt í.“ thorgunnur@frettabladid.is Í óþökk ríkisvaldsins MótMælandinn „Ég ákæri ríkisvaldið fyrir að gera herbandalag við örgustu glæpa- klíku sem verið hefur á jörð, bandarísku ríkis-óstjórnina í Washington,“ segir Helgi. FRÉttAblAðið/ANtoN bRiNK Í óÞökk yfirvalda Mótmælaskiltin eru fjölmörg og þótt þau hafi oft verið eyðilögð fyrir Helga gefst hann ekki upp og heldur áfram að láta í sér heyra. Þrælar og HiMnadraugar Helgi leitar nú að útgefanda fyrir handrit sitt. StrÍð Stöðugt frómir rimmu rjá rekkar, kanna vana. Væga dóma fantar fá fyrir manna bana. Ég skil ekki þetta „ohf.“ og hefði haldið að nær hefði verið að gera sjálfs- eignarstofnun úr Ríkisútvarpinu, sem við eigum öll. Það er eitthvað sem gengur ekki upp í hugmyndinni um „opinbert hlutafé- lag“ með aðeins einum hluthafa. Þetta virkar á mann eins og kredda úr þeirri undarlegu blöndu af markaðshyggju og ríkistrú sem stjórnar Sjálfstæðisflokknum. Ég vona að minnsta kosti að þetta sé ekki fyrsta skrefið í að gera stofnun- ina að deild í bakkavör eða „Kööúú- úpthingi“. En við skulum bíða og sjá: Kannski batnar sjónvarpsdagskráin. Ríkisútvarpið er fullt af frábæru starfsfólki sem er kannski ekki að glenna sig út um allar þorpagrundir en vinnur sína vinnu af trúmennsku og mikilli fagmennsku. Hvað verður um réttindi þessa fólks? um þetta snýst málið: Starfsfólkið, áframhald- andi þjóðareign og betri dagskrá, og að önnur fjölmiðlun fái þrifist með Ríkisútvarpinu. Stjórnarandstaðan hefur því miður einbeitt sínu linnulausa fargi um málið að einhverjum ESA-úrskurði sem vonlaust er að koma sér upp á og á og því hvort Páll Magnússon megi tjá sig um málið. SjónARhóll Málefni rÚv Virkar á mann sem kredda guðMundur andri tHorSSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.