Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 89

Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 89
Ég var mjög ánægð með þessa mynd. Þetta er einfaldlega góð spennusaga, handritið er gott, þétt flétta með óvæntum snúningum. Blanda af spennu reimleikum og rómantík. Ekki missa af henni. Rokkland á rás 2 !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 APOCALYPTO kl. 6 og 9 B.I. 16 ÁRA KÖLD SLÓÐ kl. 5.50 og 8 B.I. 12 ÁRA LITTLE MISS SUNSHINE kl. 5.50 og 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA CASINO ROYALE kl. 10.10 B.I. 14 ÁRA MÝRIN W.ENGLISH SUBTITLES kl. 5.50 og 8 B.I. 12 ÁRA BORAT kl. 10.15 B.I. 12 ÁRA APOCALYPTO kl. 5, 8 og 10.55 B.I. 16 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.55 THE BLACK DAHLIA kl. 8 og 10.35 B.I. 16 ÁRA LITTLE MISS SUNSHINE kl. 3.40 og 8 B.I. 7 ÁRA KÖLD SLÓÐ kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 3.40 ERAGON kl. 3.40 og 5.50 B.I. 10 ÁRA MÝRIN kl. 5.50 B.I. 12 ÁRA CASINO ROYALE kl. 10.15 B.I. 14 ÁRA APOCALYPTO kl. 7 og 10 B.I. 16 ÁRA KÖLD SLÓÐ kl. 6 og 8 B.I. 12 ÁRA TENACIOUS D * kl. 10 B.I. 12 ÁRA * SÍÐASTA SÝNING Ath: Ekkert hlé á myndum Græna ljóssins. Toppmyndin á Íslandi í dag! “Stórkostlega skemmtilegur og hjartnæmur farsi sem sendir áhorfendur brosandi út úr salnum” M.H.G. - Fréttablaðið MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á Gagnrýni. baggalútur.is 20% afsláttur fyrir alla viðskiptavini Kaupþings ef greitt er með korti frá Kaupþingi FRÁ LEIKSTJÓRA SCARFACE OG THE UNTOUCHABLES BYGGÐ Á SÖGU EFTIR HÖFUND L.A.CONFIDENTIAL Michael Jackson er sagður áhugasamur um að selja Beckham-hjónunum hið víðfræga Neverland-setur. Á vef Daily Star er því haldið fram að Michael Jackson hafi séð sér leik á borði við komu Beckham- hjónanna til Bandaríkjanna og telji þau líklega kaupendur seturs- ins fræga. Jackson hefur verið í sjálfskipaðri útlegð eftir að hann var sýknaður af ákærum um mis- notkun á börnum sem gistu á Neverland og er talið að hann vilji losna við eignina sem fyrst. Hún minni söngvarann á slæma tíma í lífi hans. Samkvæmt vefnum á Jackson að hafa látið umboðsmenn sína útbúa sérstaka pappíra handa Beck- ham-hjónunum um kosti og galla Neverlands. Kryddpían fyrrverandi hefur verið á útopnu í Los Ang- eles við að leita að húsnæði handa sér og David eftir að knatt- spyrnukappinn yfirgaf spænska stórveldið Real Madrid og gekk til liðs við LA Galaxy. Landar- eignin er í Los Olivos í Kal- forníu og þaðan er þriggja tíma akstur á æfingasvæði LA Galaxy. Lóðin sem fylgir hinum sérstaka heimi popp- stjörnunnar er um 1.200 hektarar en þar má meðal annars finna skemmtigarð og dýragarð. Jackson settist að á Neverland árið 1988 og bjó þar til ársins 2005. Húseignum á svæð- inu hefur ekki verið haldið við eftir að poppgoðið fluttist á brott en verðmæti lóðarinnar er talið hlaupa á tíu milljónum punda, rúmlega milljarði íslenskra króna. Bandarískir fjölmiðlar hafa fylgst grannt með gangi mála hjá Victoriu eftir að hún kom til Bandaríkjanna. Samkvæmt Daily Star hefur hún þegar pungað út sex milljónum íslenskra króna fyrir knattspyrnuvöll handa strák- unum sínum þremur, þeim Brook- lyn, Romeo og Cruz. freyrgigja@frettabladid.is Býður Victoriu Neverland Jackson Hefur verið í sjálfskipaðri útlegð síðan hann var sýknaður af ákærum um misnotkun á börnum. Mæðginin Brooklyn ætti ekki að leiðast í Neverland ásamt bræðrum sínum tveimur. neverland Heimur Jacksons er engum líkur en á lóðinni má meðal annars finna skemmtigarð og dýragarð. Rokksveitin Dikta er stödd í Lund- únum um þessar mundir á stuttri tónleikaferð. Auk þess að spila á fernum tónleikum hefur sveitin þegar tekið upp þrjú ný myndbönd. Plata Diktu, Hunting for Happin- ess, kemur út í Bretlandi í lok febrú- ar eða byrjun mars og með tónleika- ferðinni er ætlunin að kynna þá útgáfu. Dikta, sem fór út á miðvikudag- inn í síðustu viku, var búin að halda tvenna tónleika þegar Fréttablaðið sló á þráðinn hjá söngvaranum Hauki Heiðari Haukssyni, þar á meðal á The Hope and Anchor. Sá staður er einna þekktastur fyrir það að sveitin U2 hélt þar sína fyrstu tónleika í Lundúnum þegar hún var að skjótast fram á sjónarsviðið. Einnig hefur Stranglers m.a. spilað þar. Dikta mun einnig halda tón- leika á Isle of Wight en að sögn Hauks Heiðars hafa þeir félagar fengið mjög góðar viðtökur í Bret- landi. Dikta herjar á Bretland dikta Rokksveitin Dikta er á stuttri tónleikaferð um Bretland um þessar mundir. James Ellroy hefur með reyfurum sínum skrifað sig inn í harðsoðnu hefðina sem rithöfundarnir Dashi- ell Hammett og Raymond Chandler gerðu að sjálfstæðri bókmennta- grein í kringum 1940. Andinn í verkum Hammetts og Chandlers lak af pappírnum yfir í svarthvítu glæpamyndirnar sem kenndar eru við film noir og naut sín þar í botn. Leikstjóranum Brian De Palma tekst vel að fanga gömlu noir- stemninguna í The Black Dahlia sem hann gerir eftir samnefndri skáldsögu Ellroys. De Palma kann vel að nota ljós og skugga og með fimleikum með tökuvélina skapar hann seiðmagnað og oft þrúgandi andrúmsloft harðsoðnu hefðarinn- ar. Þar fyrir utan fær hann allt sem til þarf upp í hendurnar frá Ellroy, sem býður upp á harðjaxla með axlabönd og hatta sem keðjureykja og láta hnefana tala og flegnar og fláráðar tálkonur sem nota kyn- þokka sinn óspart til að hringla í hausnum á karlpeningnum. Josh Hartnett og Aaron Eckhart leika tvo lögreglumenn sem Ellroy lætur fást við rannsókn á sann- sögulegu og viðbjóðslegu morði á ungri leikkonu, Betty Short, sem fannst í tvennu lagi árið 1947. Raun- verulega sakamálið er enn óupp- lýst og er sveipað ákveðnum dular- ljóma enn þann dag í dag og er kennt við fórnarlambið, The Black Dahlia. Persóna Hartnett er enn blaut bak við eyrun en Eckhart er öllu reyndari og mátulega spilltur í ofanálag þannig að lögguparið minnir óneitanlega á félagana tvo sem Guy Pearce og Russell Crowe léku í L.A. Confidential sem byggði einnig á bók eftir Ellroy. Rannsókn þessa óhuggulega morðs hefur djúpstæð áhrif á mennina tvo og stofnar vináttu þeirra, ástarsamböndum og jafnvel geðheilsu í voða. Konurnar tvær sem flækja til- veru töffaranna eru leiknar af gyðjunum Scarlett Johansson og Hilary Swank og í þeirri lyga- kvendaskák hefur Swank vinning- inn í hlutverki baneitraðrar yfir- stéttadruslu sem er hvergi nærri öll þar sem hún er séð. De Palma hefur því allt sem til þarf til að gera dúndurreyfara en því miður, þrátt fyrir fyrri afrek bak við myndavélina, hefur hann ekki burði til að klára dæmið. Áhugaleysi hans á persónunum er áberandi þannig að angist þeirra og hremmingar rista grunt og ná ekki að koma með þá fyllingu sem sagan þarfnast nauðsynlega til að halda dampi og áhuga áhorfandans út í gegn. Þetta gerir það líka að verk- um að ágætis leikarar fá ekki svig- rúm til þess að sýna hvað í þeim býr. De Palma bætir fyrir þetta með hressilegum tilþrifum í stíl en missir þó kraftinn niður á milli sterkra og spennandi atriða sem eru þó fyrst og fremst bergmál af því sem hann hefur gert áður og þá betur. Það verður þó að viðurkenn- ast að gamlir taktar úr Scarface og The Untouchables eiga afskaplega vel við og blása lífi í krampakennda frásögnina, sem hefur alla burði til þess að vera skotheld film noir en verður ekki meira en stílæfing sem er hársbreidd frá þriðju stjörn- unni. Þórarinn Þórarinsson Sálarlaus stílæfing kvikMyndir the Black dahlia Leikstjóri: Brian De Palma Aðalhlutverk: Josh Hartnett, Scarlett Johansson, Aaron Eckhart, Hilary Swank HH Brian De Palma tekst ekki að gera meir en sæmilega stílæfingu úr spennandi og áhugaverðum efnivið frá James Ellroy.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.