Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 73
Afmæli
Gunnar Örn Kristjáns-
son, stjórnarformaður
Bræðranna Ormsson,
er 52 ára.
Jón Karl Helgason
bókmenntafræðingur
er 42 ára.
Páll Rósinkrans
söngvari er 33 ára.
Helgi Seljan sjónvarps-
maður er 28 ára.
Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsu af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar framgang veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum
eldri en 12 ára. Berið Vectavir á frunsusvæðið á 2 klst fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við ofreynslu, kvef eða infl úensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfi ð ef að áður hefur komið fram ofnæmi
fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir minnka og smittími styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfi nu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Otrivin nefúðinn og nefdroparnir innihalda xýlómetasólin sem vinnur gegn bólgu, nefstífl u og slímmyndun vegna kvefs og bráðrar bólgu í ennis- og kinnholum. Otrivin virkar fl jótt og áhrifi n vara í 6-10 klst. Otrivin getur valdið aukaverkunum, s.s. ertingu í slímhúð og
sviðatilfi nningu. Einnig ógleði og höfuðverk. Otrivin má nota þrisvar á dag en ekki lengur en í 10 daga í senn. Varúð: Langtímanotkun Otrivin getur leitt til þurrks í nefslímhúð. Sjúklingar með gláku eða þeir sem hafa ofnæmi fyrir xýlómetasólin ættu ekki að nota Otrivin.
Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja lyfi nu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Strepsils töfl ur eru látnar renna í munni og leysast þar hægt upp. Þannig nást fram staðbundin sótthreinsandi áhrif í munni og koki. Auk þess hafa bragðefnin væg kælandi áhrif sem slá á ertingu. Venjulega er ein tafl a látin leysast hægt upp í munni á 2-3 klst fresti. Lyfi ð
þarf venjulega að nota í 3-4 daga og stundum í allt að eina viku. Einnig má leysa upp 1-2 töfl ur í heitu vatni og drekka sem heitan drykk. Notkun lyfsins hefur engin áhrif á önnur lyf sem notuð eru samtímis. Ofnæmi eða ofnæmislík viðbrögð geta komið fyrir en eru afar
sjaldgæf. Hver pakki af Strepsils inniheldur 24 munnsogstöfl ur, sem eru í hentugum þynnupakkningum. Hverri pakkningu fylgja viðurkenndar leiðbeiningar á íslensku um notkun lyfsins, sem gott er að kynna sér vel. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Voltaren Dolo® (díklófenak kalíum) 12,5 mg töfl ur. Notaðar við vægum eða frekar vægum verkjum, svo sem höfuðverk, tannpínu og tíðaþrautum. Verkar einnig hitalækkandi. Dragi ekki úr einkennum á nokkrum dögum, skal leita til læknis. Þeir sem eru með eða hafa haft
sögu um maga- eða skeifugarnarsár eða skerta lifrarstarfsemi ættu að ráðfæra sig við lækni áður en lyfi ð er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalisýru, íbuprófen eða önnur bólgueyðandi lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voltaren Dolo®. Notið lyfi ð ekki á meðgöngu
nema í samráði við lækni, en aldrei á síðasta þriðjungi meðgöngu. Leitið ráða læknis eða lyfjafræðings um milliverkanir við önnur lyf. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
VECTAVIR FRUNSUKREM
Verkar á öllum stigum frunsunnar.
VOLTAREN DOLO
Fljótvirkt verkjalyf, verkjastillandi
og hitalækkandi.
FYRSTA
HJÁLP
- við kvefi !
STREPSILS HÁLSTÖFLUR
4 bragðtegundir, fæst einnig sykurlaust.
OTRIVIN NEFÚÐI
Fyrir börn og fullorðna.
FIMMTUDAGUR 18. janúar 2007 37
Tilkynningar um merkis
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn
hér til hliðar má senda á
netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
kristinn péturssOn:gefurútfyrstubloggbókíslands
Á fullt erindi á pappír
KRiStinn PétuRSSon Gefur út
bloggbók með textum norðfirð-
ingsins Jóns knúts Ásmundssonar.
fréttaBlaðið/róBert
skammti af íroníu og ferðasögur,“
bætti hann við.
Bókin ber nú vinnuheitið Nesk,
og vísar þar með í heimabæ blogg-
arans. „Og aðalumfjöllunarefni
hans,“ bætti Kristinn við. „Undir-
titillinn verður Minningar þorp-
ara, eða eitthvað í þá áttina,“ sagði
Kristinn, sem finnst bloggið eiga
fullt erindi á pappír. „Það er líka
meiningin með þessari bók að
textarnir fái að halda sínum fersk-
leika. Hún á ekki að vera með
ódauðlegum textum. Þetta er bara
bók sem er gefin út árið 2007 og
fjallar um ákveðinn tíma í lífi þess
sem skrifar,“ sagði hann. Blogg-
bókin er að hans sögn væntanleg
með vorinu. „Vonandi. En alveg
örugglega fyrir jól,“ bætti hann
við. sunna@frettabladid.is
Bandaríska leikkonan Darlene
Conley lést á mánudag af völdum
krabbameins. Conley var Íslend-
ingum að góðu kunn því hún var
þekktust fyrir túlkun sína á flár-
áða tískumógúlnum Sally Spectra
í sápuóperunni Bold and the
Beautiful, sem hefur verið á dag-
skrá Stöðvar tvö árum saman.
Conley fæddist í Chicago árið
1934. Hún fékk sitt fyrsta hlut-
verk á Broadway aðeins fimmtán
ára gömul og eftir að hún útskrif-
aðist úr menntaskóla ferðaðist
hún um landið og lék í verkum
eftir Shakespeare milli þess sem
hún tróð upp á Broadway en síðar
á ferlinum lék hún í fjölmörgum
sápuóperum.
Á löngum ferli starfaði Conley
fyrir leikstjóra á borð við Alfred
Hitchcock og John Cassavetes og
með leikurum á borð við Richard
Chamberlain, Michael York, Kirk
Douglas og Burt Lancaster. Per-
sóna Sally Spectra var skrifuð
með Conley sérstaklega í huga.
Hún lék í þáttunum frá upphafi
árið 1987 og vann til margra verð-
launa fyrir frammistöðu sína.
Bold and the Beautiful er vinsæl-
asta sápuópera í heimi, sýnd í yfir
110 löndum.
Sally Spectra öll
DaRlene Conley
Vann til fjölda verðlauna
fyrir túlkun sína á sally
spectra.
nOrdicphOtOs/Getty imaGes