Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 36
[ ]
Hraðsuðukatlar fást í miklu úrvali í flestum heimilis-
tækjaverslunum.
Hraðsuðukatlar eru af mörgum stærðum og gerðum.
Algengast er að þeir séu eins lítra en hægt er að fá þá
stærri. Litirnir eru margs konar. Klassískur hvítur er
algengur, svartur einnig en stál- og áláferð er mjög vinsæl
þessa stundina. Það sést best á úrvalinu sem boðið er upp
á í þeim stíl.
Það er langur vegur frá nútímakötlum og þeim sem hit-
aðir voru á hellu. Rafmagnið hefur tekið við og eru margir
katlar innan við mínútu að hita lítra af vatni að suðumarki.
Eitt er það sem margir átta sig ekki á með katlana. Þá
þarf að þrífa reglulega þó svo að einungis vatn komi í þá.
Ýmis steinefni í vatninu geta fallið út og þó svo að
við séum laus við kalkið í vatninu,
sem skemmir marga katla erlend-
is, eru ýmis steinefni sem geta
safnast saman í botni katlanna.
Smá sápa og léttur þvottur öðru
hvoru ættu að gera sitt og lengja líf
ketilsins og skila betra vatni í teið og
kaffið. - tg
Heitt vatn í te og kaffi á
innan við mínútu
Kertaluktir eru sætar í dimmunni á vetrarkvöldum. Þær geta hangið á svöl-
unum og gefa skemmtilega birtu inn um gluggann á rauðvínskvöldum í janúar.
Þessi kanna
kostar 3.995 kr. í
Heimilistækjum.BRWK-ketillinn
tekur 1,6 lítra.
Hann er fær um
að sjóða 2,5 dl
á 45 sekúndum.
Hann kostar
6.900 kr. í Pfaff.
Þessi
stállitaði og
stíliseraði
Braun-ketill
fæst í Pfaff.
Ekki eru allir katlar
eins. Þessi mjög svo
framúrstefnulega
kanna fæst í Elko. Hún
kostar 9.995 krónur.
Hjá Einari
Farestveit fæst
þessi ketill. Hann
er úr burstuðu
stáli, tekur 1,7 lítra
og kostar
4.990 kr.
Þessi kanna fæst í Heimilistækjum.
Hún tekur 1,5 lítra, er með þreföldu
síukerfi og er úr áli. Hún kostar
12.995 kr.
Þessi ketill er í Solitaire-
línunni frá Bosch. Hann
kostar 12.995 kr. í Elko.
www.4you.is - 4you@4you.is - 564 2030 - 690 2020
Við erum að taka
niður pantanir
á ryðfríum
stálgrillum
Fyrstu 50
grillin verða
á sértilboði
49.800