Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 37
Tvær útsaumssýningar eru opnar hér í
Reykjavík. Önnur birtir helgimyndir frá
miðöldum, hin frjáls form nútímans.
Útsaumur hefur átt sinn sess á íslenskum
heimilum í gegnum tíðina. Sýning í Bogasal
Þjóðminjasafnsins sem ber heitið Spor miðalda
í íslenskum útsaumi sýnir hannyrðir kvenna
frá ýmsum tímum, meðal annars veggtjöld,
sessur og rúmábreiður. Mynstrin eru oftast
reitir sem umlykja myndefni úr biblíunni eða
kynjadýraveröld fyrri alda. Þar er til dæmis
hálf rúmábreiða frá Sólheimatungu í Mýra-
sýslu og þessi ábreiða varð svo fræg að fara á
Heimssýninguna í París árið 1900. Þá var hún í
vörslu danska þjóðminjasafnsins og þarlend
frú fóðraði og lagfærði ábreiðuna svo hún yrði
sýningarhæf.
Í Gerðubergi er svo sýningin Í hugarheimi
með litríkum og margslungnum myndum eftir
unga konu, Guðrúnu Bergsdóttur. Upphaflega
saumaði hún áteiknaðar myndir en fyrir sex
árum byrjaði hún sjálf að skapa mynstrin eins
og andinn blés henni í brjóst. Eða eins og Guð-
rún Dís Jónatansdóttir í Gerðubergi orðar það:
„Hún nær í einhvern veginn litan spotta í
körfuna sína, þræðir nálina og heldur svo
ótrauð af stað út á strammann.“ Afraksturinn
er fjölskrúðugur. Myndir og veggteppi með
samfléttuðum mynstrum sem margt er hægt
að lesa úr. - gun
FIMMTUDAGUR 18. janúar 2007 7
Neðri helmingur rúmábreiðu sem var send á Heims-
sýninguna í París árið 1900 eftir að hin danska frú
Fischer fóðraði hana og gerði við.
Rúmábreiða með myndum úr Gamla
testamentinu saumuðum með gamla
krosssaumnum. Í efri er fórn Ísaks en
þeim neðri Faraó og Móses. Ábreiðan er
frá 17. öld og er 167 cm á lengd og 115
á breidd, sem okkur þætti líklega heldur
lítið rúmteppi í dag, að minnsta kosti
fyrir fullorðna. Þessi er frá Bæ í Hrúta-
firði og er til sýnis á Þjóðminjasafninu.
Guðrún hefur sótt námskeið hjá fullorðinsfræðslu fatlaðra en hefur sjálf
þróað algerlega sinn stíl.
Útsaumsmyndir Guðrúnar Bergsdóttur sem til sýnis eru í Gerðubergi fram á helgina hafa
óvenjulega myndbyggingu.
Sessuborð sem saumað var á öndverðri
20. öld eftir öðru eldra úr Illugastaða-
kirkju í Fnjóskadal. Myndefnið er innreið
Jesú í Jerúsalem og er saumað með
gamla krosssaumnum. Sessuborðið
er á sýningunni Með silfurbjarta nál í
Bogasal Þjóðminjasafnsins.
FRéttaBlaðIð/RóSa
Helgimyndir og frjáls form