Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 44
Strákarnir okkar
Strákarnir okkar
4
„Hótelnæturnar endalausu koma
fyrst upp í hugann þegar maður
horfir til baka á þessar ferðir með
landsliðinu,“ sagði Dagur Sigurðs-
son, fyrrum fyrirliði landsliðsins,
sem þjálfað hefur austurríska liðið
Bregenz með góðum árangri undan-
farin ár. „Ég og Patrekur Jóhannes-
son vorum yfirleitt herbergisfélagar
og ég held að ég hafi verið með
honum samtals á hótelherbergi í eitt
ár. Þetta er um mánuður á ári sem
maður eyddi í þetta og við vorum í
landsliðinu í um tólf ár þannig að
þetta er allavega um eitt ár sam-
tals. Þannig að við þekkjumst alveg
þokkalega vel.“
Dagur segir að minnisstæðasta
mótið hafi verið HM í Japan 1997.
„Þá vorum við orðnir virkilega orðn-
ir súrir á herberginu með skítugan
þvottinn um allt. Við vorum báðir í
einhverjum smávægilegum meiðsl-
um svo við borðuðum mikið af
bólgueyðandi, lyktin í herberginu
var alveg eftir því. Fólkið heima sér
bara þessa leiki en bak við þetta eru
einhverjar vikur á hótelum og sá
tími er oft minnisstæðastur,“ sagði
Dagur en afþreyingarmöguleikar
landsliðsmanna eru allt aðrir í dag
en fyrir nokkrum árum.
„Það hefur breyst töluvert núna.
Í dag eru menn með tölvur, Play-
station og DVD en það var ekki til
staðar í fyrstu ferðunum mínum. Þá
fengum við blöð send að heiman
og vorum bara að spila og tefla til
að drepa tímann. Svo varð til mjög
virkt gúrkusamfélag sem spilaði
gúrku lon og don. Þetta spil var
spilað í hverri einustu rútuferð, í
flugvélum og hótelum. Menn unnu
Ólympíutitla og slíkt, Guðjón Valur
vann gúrkuna í Grikklandi og var
krýndur Ólympíumeistari. Einar
Jónsson sá alltaf um að skrifa og
hann á enn tölfræðina frá því að
þetta byrjaði og er það ansi langur
listi.“
Dagur segir það skipta gríðar-
legu máli að byrja svona mót vel.
„Maður áttaði sig fyrst almennilega
á því þegar maður var að hætta
hvað það er mikilvægt að byrja
svona mót vel. Það skiptir miklu
máli upp á stemninguna og sjálfs-
traustið í liðinu. Maður hefur eigin-
lega engan tíma til að breyta neinu
þegar út í mótið er komið. Liðið
spilar kannski þrjá leiki á þremur
dögum og enginn tími til að breyta
neinu stórvægilegu. Það sem þú
ferð af stað með verður að ganga
upp.“
Það eru þó til undantekningar
og sumar breytingar hafa gengið
upp. „Í Svíþjóð 2002 gerði Gummi
Gumm þá breytingu að ég var lát-
inn í skyttuna og Patrekur á miðj-
una. Sú ákvörðun var tekin stuttu
fyrir mót, var ákveðin áhætta en
gekk síðan vel upp og fleytti okkur
langt. Liðinu gekk vel í byrjun móts
og sjálfstraustið jókst. Síðan meidd-
ist Patrekur í lokin og við urðum
ekki nægilega sterkir,“ sagði Dagur
en honum líst vel á íslenska liðið
nú. „Leikurinn gegn Úkraínu verður
algjör lykilleikur fyrir okkur. Ég tel
óraunhæft að fara fram á að liðið
vinni Frakka. Síðan sjáum við bara
til hvað gerist, ég er bjartsýnn en
þetta veltur nokkuð mikið á þessum
leik gegn Úkraínu.“
Spiluðum gúrku
við hvert tækifæri
Dagur Sigurðsson hætti með landsliðinu eftir Heimsmeistaramótið í Túnis fyrir tveim-
ur árum. Hann á margar skemmtilegar minningar frá landsliðsferlinum en segir þó
hótelveruna vera eftirminnilegasta.
Dagur SigurðSSon Gamli landsliðsfyrirliðinn rifjar upp gamla og góða tíma.
■■■■ { Strákarnir okkar á HM } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Vernharð Þorleifsson, athafnamaður:
Arnór Atlason verður stjarnan í fjarveru
Duranona, sem ég skil ekki af hverju er
ekki í landsliðinu. Norðlendingar hafa
alltaf haft mikla trú á Duranona. Liðið
endar í 9. sæti.
Auðunn Blöndal, sjónvarpsmaður:
Ef öxlin verður í lagi verður Óli Stef.
flottur. Ég held að við endum í sjötta
sæti.
Friðrik Ingi Rúnarsson, framkvæmda-
stjóri KKÍ: Logi Geirsson og Arnór Atla-
son bestir fyrir utan hinar hefðbundnu
stjörnur. Við höfnum í 6. sæti.
Heimir Karlsson, sjónvarpsmaður:
Þetta er eitt besta landslið sem við
höfum átt og ég segi 3. sætið, er
bjartsýnn fyrir þetta mót. Alexander Pet-
ersson verður helsta stjarnan, er frábær
leikmaður.
Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra:
Ég spái okkur fjórða sæti og því að
Guðjón Valur verður aðalstjarnan en
býst við að allir hinir strákarnir okkar
standi sig líka frábærlega.
Kristján Halldórsson, þjálfari Stjörn-
unnar: Guðjón Valur verður skærasta
stjarnan og við endum í 7.-8. sæti,
sem væri mjög góður árangur.