Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 38
18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR8
Í síðasta pistli var hér ymprað á nokkrum möguleikum
úr jurtaríkinu sem grípa má til í stað kemískra efnavopna
til að sigrast á skordýraplágum og annari óværu sem
stundum gerir vart við sig á plöntunum okkar. En það
eru ekki bara smádýr af pöddutaginu sem ásækja gróð-
urinn. Allskyns örsveppir eru nefnilega líka kræfir og taka
sinn toll af því flekklausa plöntulífi sem við viljum hafa
í kringum okkur. Fyrst og fremst verðum við kannski vör
við þetta þegar sáðplöntur og græðlingar þurfa undan
að láta og hjaðna niður af einhverjum orsökum sem við
sjáum ekki alltaf með berum augum. Að sjálfsögðu gildir
sú almenna regla að gæta hreinlætis við fjölgun plantna.
Nota alltaf ómengaða sáðmold og hrein ílát. Sjálfsagt
er líka að hafa sáðílátin á björtum stað, en samt ekki í
sterku sólskini þegar líða fer á veturinn. En það er sama
hvað við gerum, vágestirnir koma í heimsókn af og til.
Þá er gott að hafa nokkur ráð uppí í erminni til að taka
á móti þeim. Það gerum við gjarnan með því að beita
sveppavörnum sem þróast hafa í jurtaríkinu.
Neem-tréð – Azadirachta indica – eða „indverska
frelsistréð“ er náskylt mahóní-trénu. Úr fræjum, laufum
og berki þess er unnin olía – neem-olía – sem er fjölvirkt
eitur á sveppagróður, mítla og skordýr sem sækja á
gróður. Neem-olían er „big business“ í lífrænum garð-
yrkjukreðsum allt í kringum okkur og fæst þar í flestum
garðyrkjuverslunum. Ég hef ekki enn séð hana í íslensk-
um garðyrkjuvöruverslunum en á von á því að hún fari
að fást þar. Sjálfur hef ég ekki prófað hana en kunningjar
bæði austan hafs og vestan ljúka miklu lofsorði á þessa
undraolíu – sem getur víst líka læknað menn og skepnur
af ótal kvillum.
Teatree-olía er unnin úr ástralska runnanum Mela-
leuca alternifolia sem ræktaður er þar í stórum stíl til
framleiðslu á þessari afurð. Olían er unnin úr laufum og
berki. Hún er afar rokgjörn og smeyg og seld hér í litlum
glösum í heilsubúðum og apótekum. Teatree-olía smýg-
ur vel inn í allar glufur og smugur og eirir engu kvikindi
sem þar kynni að leynast óvelkomið. Hún drepur mítla
(t.d. kláðamaur á fólki) og skordýr – og er afar virk gegn
sveppum og sveppagróum. Hefur verið notuð á húð- og
hornsveppi með góðum árangri. En 7-10 dropar í 250 ml
af volgu vatni sem sett er á litla úðaflösku vinna á blað-
sveppunum og sigrast líka frábærlega vel á spunamítlum
þegar henni er ýrt á, yfir og undir greinar og plöntulauf.
Kúmenolía er unnin úr kúmenfræjum og hefur
dálítið verið notuð sem rotvörn í matvælum (ostar og
brauð, að ógleymdu brennivíni!). Einkum í fyrri tíð.
Hún virkar vel gegn öllum myglusveppum. Kúmenolía
fæst stundum
í heilsubúðum.
Olían er dálítið
vandmeðfarin
vegna þess að
hún getur valdið
sólbrunaútbrot-
um ef hún berst
á hörund sem sól
nær að skína á.
En það má mala
kúmenfræ og
gera af því seyði
sem svo er hægt
að úða á plöntur
eftir að búið er
að sía það.
Kamillute
– sterkt og kælt
– virkar gegn
mjölsvepp. Setjið
nokkra dropa
af matarolíu
og mildri sápu
saman við og úðið svo. Blá kamilluolía fæst í apótekum
og heilsubúðum. Hún er virk á sveppi og smákvikindi.
Fimm til sjö dropar með örðu af sápu er sett saman við
250 ml af vel volgu vatni og ýrt strax á plönturnar með
úðaflösku.
Maxicrop er sérlega fínunninn þangáburður sem
hefur verið seldur í blómabúðum hér í marga áratugi.
Einn tappi (10 ml) í lítra af vatni sem sett er í úðaflösku
og úðað yfir plöntur er – auk þess að vera úrvals blaðá-
burður – afar virk vörn gegn öllum blaðsveppum á frum-
stigi og heldur aftur af spunamítlum og blaðlús í leiðinni.
Mjög styrkjandi fyrir plönturnar vegna þess að áburður-
inn inniheldur líka mikið af nauðsynlegum snefilefnum
og vaxtarhvötum. Svo má auðvitað bara nota Maxicrop
sem venjulegan áburð til að vökva með!
Elfting – þurrkaðar og malaðar íslenskar tegundir
eins og klóelfting og vallelfting eru soðnar hægt í vatni
(seyddar) í svo sem tuttugu mínútur og síðan látið kólna.
(Elftingarmjöl 1-2 desilítrar í hvern lítra vatns). Þá er elft-
ingin síuð frá í gegnum léreftsdúk eða kaffisíu. Setjið ögn
af sápu saman við vatnið og komið því í úðabrúsa. Þessu
er svo úðað á plönturnar svo að þær vökni vel. Virkt gegn
blaðsveppum og í kaupbæti fá plönturnar varnarhjúp
sem styrkir ónæmiskerfi þeirra.
Sveppavarnarlyf úr jurtum
Tea-tree var lyfjabúr frumbyggja Ástralíu.
Reyniviður getur verið allt frá
10 sentimetrum upp í 20 metra
hár og borið blóm og ber af
mörgum litum.
Guðrún Th. Guðmundsdóttir segir
milli 80 og 120 reynitegundir til í
heiminum og fjölmargar þeirra
hafa verið prófaðar hér á landi
með góðum árangri. Hún ætlar að
lýsa þeim nánar á fræðslufundi
Garðyrkjufélags Íslands í kvöld
klukkan 20, í sal Orkuveitu
Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1.
Þegar hún er spurð hvort gamli
íslenski reyniviðurinn sé ekki
fullboðlegur lengur hlær hún og
svarar. „Jú, íslenski ilmreynirinn
dugar alveg ágætlega og fleiri
ágætar tegundir eru líka orðnar
rótgrónar hér, til dæmis Kasmír-
reynir, Úlfareynir, Gráreynir,
Silfurreynir og Koparreynir.
Þetta er hins vegar spurning um
fjölbreytni. Það eru aðrar tegund-
ir sem ég ætla að fjalla um í kvöld
eins og Knappareynir, Skraut-
reynir, Doppureynir og Dverg-
reynir en þær eru almennt ekki
þekktar ennþá.
Allar eiga þó að geta plumað
sig vel á landinu og auðvitað er
áhugavert að auka við flóruna.“
Guðrún segir tegundirnar
afskaplega ólíkar. Þær beri blóm
og ber í ýmsum litum og séu ýmist
runnar eða einstofna tré. „Sú
minnsta verður ekki mikið hærri
en 10 cm. Hún er eins og lyng-
motta enda heitir hún lyngreynir.
Er samt með reyniblöð og kemur
með bleik blóm og fullt af hvítum
berjum. Mikið krútt.“
Í Grasagarðinum í Laugardal
segir Guðrún vera stórt og gott
reynisafn sem hún hvetur sem
flesta til að skoða yfir sumartím-
ann. Hún endar spjallið á að hrósa
líka Garðyrkjufélaginu.
„Þar er mikill þekkingarbrunn-
ur um allt sem lýtur að garða-
gróðri.“ gun@frettabladid.is
Áhugavert að auka við
íslensku flóruna
Lyngreynir skreytir sig með hvítum
berjum.
Guðrún kann skil á mörgum tegundum reyniviðar og heldur erindi um þær í kvöld
klukkan átta. FrÉTTABLAðið/ANTON
Í GARÐINUM HEIMA
HAfSTEINN HAflIÐASoN SKRIfAR UM
AllAN GRóÐUR HEIMIlANNA
90% heimila ná Sirkus TV á ADSL kerfinu, Breiðbandinu, Digital Ísland en einnig er
hægt að ná Sirkus TV með venjulegu UHF loftneti
www.minnsirkus.is/sirkustv