Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 97

Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 97
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 515 7506, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGjuM FRÉTTIR SMáAuGLýSINGASÍMINN ER 550 5000 Einu sinni fór ég á fund með aðstoðarmanni iðnaðarráðherra. Ég var í hljómsveit og meiningin var að sníkja pening svo við gætum haldið áfram að meikaða. Það er auðvitað rándýrt að meikaða og sumum finnst ótækt að sá sem er að meikaða þurfi að bera af því allan kostnað. Þetta var löngu fyrir Loft- brýr og allskonar styrki sem nú er víst hægt að sækja um. ÉG man ekkert eftir þessum fundi annað en að ég sagði ekki eitt auka- tekið orð allan tímann. Kannski innst inni hafi blundað í mér frjálshyggju- fól sem fannst glatað að sníkja meik- pening af ríkinu. Aðstoðarmaðurinn Árni Magnússon hefur örugglega haldið að það vantaði eitthvað í mig þar sem ég sat þarna og glápti aula- lega út í loftið. Útgefandinn hafði orðið að mestu en ég get ómögulega munað hvort við fengum einhvern aur út úr þessum fundi eða ekki. NýLEGA tókst mér svo að borga síðusta greiðsluseðilinn frá þeim tíma er ég var að meikaða. Ég hefði kannski verið búinn að borga lánið fyrr ef ég hefði í raun meikaða. ÞAÐ eru margir um meik-hituna og brotabrot sem í raun meikarða. Þótt það líti stundum út, miðað við blaða- umfjöllun, fyrir að rosameik sé brostið á eða rétt handan við hornið, þá eru bara örfáir sem komast alla leið. Miðað við höfðatölu erum við samt svakaleg á þessu sviði. Að meikaða með frumlegri popphugsun er þjóðarsport á skala með skák og handbolta. MEIkMöGuLEIkINN rekur flesta áfram og allt byrjar í grasrótinni. Ég stundaði engar íþróttir aðrar en að hanga öllum stundum með vinum mínum og spila tónlist. Öll æskuárin voru gegnsýrð af þessu sem betur fer. Hver veit hvaða rugli maður hefði getað lent í annars. Við gerðum okkur hvaða drullugeymslu að góðu, leka bílskúra, óeinangraðar kompur á hjara veraldar þar sem viðvanings- legt þungarokkið í næsta herbergi yfirgnæfði okkar endalaust. Við höfðum ekki ímyndunarafl til að sjá fyrir önnur eins flottheit og Tónlistar- þróunarmiðstöðina á Hólmaslóð. ÞAÐ hafa ekki allir áhuga á íþrótt- um og forvarnargildið í rokkinu er síst minna. Meikdraumurinn í rokk- inu er síst veikara afl en draumur- inn um medalíur og verðlaunapalla, félagsskapurinn síst verri. Á meðan steinsteypt íþróttamannvirki standa um allan bæ og í hverju plássi er skammarlega skammsýnt að ekki skuli vera hægt að hlúa almennilega að einni Tónlistarþróunarmiðstöð og að þar sé allt á leiðinni í strand. GRASRóTIN á betra skilið. Það koma engin blóm, hvað þá heims- fræg verðlaunablóm, ef það er hætt að vökva. TÞM LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR - félag laganema við Háskóla Íslands Ókeypis lögfræðiaðstoð alla fi mmtudaga milli 19:30 - 22:00 í síma 551-1012 F í t o n / S Í A F I 0 1 9 9 4 5 Á Íslandi eru um 9.000 reglulegir blóðgjafar. Við þurfum fleiri til að geta brugðist við alvarlegum slysum, náttúruhamförum eða öðru neyðarástandi. Við skorum á þig að koma og gefa blóð. Taktu með þér vin, vinnufélaga eða ættingja og gerðu heimsókn í Blóðbankann að fastri venju. Vertu hetja - gefðu blóð! Allir geta verið hetjur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.