Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 97
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 515 7506, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGjuM FRÉTTIR SMáAuGLýSINGASÍMINN ER 550 5000
Einu sinni fór ég á fund með aðstoðarmanni iðnaðarráðherra.
Ég var í hljómsveit og meiningin
var að sníkja pening svo við gætum
haldið áfram að meikaða. Það er
auðvitað rándýrt að meikaða og
sumum finnst ótækt að sá sem er að
meikaða þurfi að bera af því allan
kostnað. Þetta var löngu fyrir Loft-
brýr og allskonar styrki sem nú er
víst hægt að sækja um.
ÉG man ekkert eftir þessum fundi
annað en að ég sagði ekki eitt auka-
tekið orð allan tímann. Kannski innst
inni hafi blundað í mér frjálshyggju-
fól sem fannst glatað að sníkja meik-
pening af ríkinu. Aðstoðarmaðurinn
Árni Magnússon hefur örugglega
haldið að það vantaði eitthvað í mig
þar sem ég sat þarna og glápti aula-
lega út í loftið. Útgefandinn hafði
orðið að mestu en ég get ómögulega
munað hvort við fengum einhvern
aur út úr þessum fundi eða ekki.
NýLEGA tókst mér svo að borga
síðusta greiðsluseðilinn frá þeim
tíma er ég var að meikaða. Ég hefði
kannski verið búinn að borga lánið
fyrr ef ég hefði í raun meikaða.
ÞAÐ eru margir um meik-hituna og
brotabrot sem í raun meikarða. Þótt
það líti stundum út, miðað við blaða-
umfjöllun, fyrir að rosameik sé
brostið á eða rétt handan við hornið,
þá eru bara örfáir sem komast alla
leið. Miðað við höfðatölu erum við
samt svakaleg á þessu sviði. Að
meikaða með frumlegri popphugsun
er þjóðarsport á skala með skák og
handbolta.
MEIkMöGuLEIkINN rekur flesta
áfram og allt byrjar í grasrótinni. Ég
stundaði engar íþróttir aðrar en að
hanga öllum stundum með vinum
mínum og spila tónlist. Öll æskuárin
voru gegnsýrð af þessu sem betur
fer. Hver veit hvaða rugli maður
hefði getað lent í annars. Við gerðum
okkur hvaða drullugeymslu að góðu,
leka bílskúra, óeinangraðar kompur
á hjara veraldar þar sem viðvanings-
legt þungarokkið í næsta herbergi
yfirgnæfði okkar endalaust. Við
höfðum ekki ímyndunarafl til að sjá
fyrir önnur eins flottheit og Tónlistar-
þróunarmiðstöðina á Hólmaslóð.
ÞAÐ hafa ekki allir áhuga á íþrótt-
um og forvarnargildið í rokkinu er
síst minna. Meikdraumurinn í rokk-
inu er síst veikara afl en draumur-
inn um medalíur og verðlaunapalla,
félagsskapurinn síst verri. Á meðan
steinsteypt íþróttamannvirki standa
um allan bæ og í hverju plássi er
skammarlega skammsýnt að ekki
skuli vera hægt að hlúa almennilega
að einni Tónlistarþróunarmiðstöð
og að þar sé allt á leiðinni í strand.
GRASRóTIN á betra skilið. Það
koma engin blóm, hvað þá heims-
fræg verðlaunablóm, ef það er hætt
að vökva.
TÞM
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR
- félag laganema við Háskóla Íslands
Ókeypis lögfræðiaðstoð alla fi mmtudaga
milli 19:30 - 22:00 í síma 551-1012
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
9
9
4
5 Á Íslandi eru um 9.000 reglulegir blóðgjafar. Við þurfum fleiri til að geta brugðist við
alvarlegum slysum, náttúruhamförum eða öðru neyðarástandi. Við skorum á þig að
koma og gefa blóð. Taktu með þér vin, vinnufélaga eða ættingja og gerðu heimsókn
í Blóðbankann að fastri venju.
Vertu hetja - gefðu blóð!
Allir geta verið hetjur