Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 36

Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 36
[ ] Hraðsuðukatlar fást í miklu úrvali í flestum heimilis- tækjaverslunum. Hraðsuðukatlar eru af mörgum stærðum og gerðum. Algengast er að þeir séu eins lítra en hægt er að fá þá stærri. Litirnir eru margs konar. Klassískur hvítur er algengur, svartur einnig en stál- og áláferð er mjög vinsæl þessa stundina. Það sést best á úrvalinu sem boðið er upp á í þeim stíl. Það er langur vegur frá nútímakötlum og þeim sem hit- aðir voru á hellu. Rafmagnið hefur tekið við og eru margir katlar innan við mínútu að hita lítra af vatni að suðumarki. Eitt er það sem margir átta sig ekki á með katlana. Þá þarf að þrífa reglulega þó svo að einungis vatn komi í þá. Ýmis steinefni í vatninu geta fallið út og þó svo að við séum laus við kalkið í vatninu, sem skemmir marga katla erlend- is, eru ýmis steinefni sem geta safnast saman í botni katlanna. Smá sápa og léttur þvottur öðru hvoru ættu að gera sitt og lengja líf ketilsins og skila betra vatni í teið og kaffið. - tg Heitt vatn í te og kaffi á innan við mínútu Kertaluktir eru sætar í dimmunni á vetrarkvöldum. Þær geta hangið á svöl- unum og gefa skemmtilega birtu inn um gluggann á rauðvínskvöldum í janúar. Þessi kanna kostar 3.995 kr. í Heimilistækjum.BRWK-ketillinn tekur 1,6 lítra. Hann er fær um að sjóða 2,5 dl á 45 sekúndum. Hann kostar 6.900 kr. í Pfaff. Þessi stállitaði og stíliseraði Braun-ketill fæst í Pfaff. Ekki eru allir katlar eins. Þessi mjög svo framúrstefnulega kanna fæst í Elko. Hún kostar 9.995 krónur. Hjá Einari Farestveit fæst þessi ketill. Hann er úr burstuðu stáli, tekur 1,7 lítra og kostar 4.990 kr. Þessi kanna fæst í Heimilistækjum. Hún tekur 1,5 lítra, er með þreföldu síukerfi og er úr áli. Hún kostar 12.995 kr. Þessi ketill er í Solitaire- línunni frá Bosch. Hann kostar 12.995 kr. í Elko. www.4you.is - 4you@4you.is - 564 2030 - 690 2020 Við erum að taka niður pantanir á ryðfríum stálgrillum Fyrstu 50 grillin verða á sértilboði 49.800

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.