Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 40

Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 40
[ ] Í Laugum er búið að opna Shokk-íþróttasal en þar er að finna æfingatæki fyrir 8 til 14 ára börn. Shokk-æfingakerfið byggist upp á tækjum áþekkum þeim sem full- orðnir nota í hefðbundnum líkams- ræktarstöðum. Munurinn liggur í lóðunum en þau eru mun léttari ásamt því að tækin eru nettari og litríkari. Shokk-æfingakerfið er breskt að uppruna og þar í landi eru rúmlega 60 líkamsræktarstöðvar með Shokk- sali. Kerfið kom fyrst fram á sjónarsviðið 2001 og hefur síðan breiðst hægt út til annarra landa. Kerfið var tekið upp í World Class í Danmörku og þaðan er það komið til Íslands. „Í mars var opnaður Shokk- salur í World Class-stöð í Danmörku í 35 þúsund manna bæjarfélagi og það voru 250 krakkar sem skráðu sig,“ segir Björn Leifsson, eigandi World Class. „Enn hefur enginn þeirra hætt að mæta svo mér fannst þetta brilljant hugmynd.“ Björn segir að það sé eins með Shokk-kerfið og alla líkamsrækt að allt sé best í hófi. „Líkamsrækt er mjög góð fyrir börnin en það verð- ur að passa að álagið sé ekki of mikið. Það er alltaf leiðbeinandi viðstaddur í salnum og enginn fær að byrja að æfa án þess að hafa fengið leiðsögn frá leiðbeinanda,“ segir Björn. Salurinn er ætlaður öllum börn- um á aldrinum 8 til 14 ára. „Það hafa öll börn gott af því að hreyfa sig, svo ekki sé minnst á hversu mikið þau njóta þess,“ segir Björn. „Shokk er líka frábær hreyfing fyrir þá krakka sem ekki finna sig í hefðbundnum íþróttum eða þurfa að léttast.“ - tg Líkamsrækt fyrir börn Í Shokk-æfingakerfinu er lögð áhersla á heilbrigða hreyfingu sem börn hafa gaman af. fréttablaðið/anton Það er fínasta líkamsrækt að moka tröppur og gangstíga í snjónum og kemur einnig í veg fyrir föll og beinbrot. Lýðheilsa sigurður james ÞorLeifsson og ÓLöf birna margrétardÓttir hjá LýðheiLsuféLagi Læknanema langvinn lungnateppa er óafturkræft sjúkdómsástand þar sem loftflæði um lungun verður takmarkað vegna lungnaþembu eða langvinnrar berkjubólgu (bronkítis). Í lungnaþembu missa lungun teygjanleika sinn og það veldur því að erfiðara verður að ýta loftinu út þegar við öndum frá okkur. Smæstu loftvegir lungnanna (þar sem við náum í súrefnið úr andrúmsloftinu) skemmast og líkaminn fær því ekki nægilegt súrefni þegar fram í sækir. langvinn berkjubólga er viðvarandi bólga í loft- vegum sem hefur í för með sér aukna slímframleiðslu og/eða hósta sem varir samfleytt í minnst þrjá mánuði á ári í að minnsta kosti tvö ár í röð. Í raun má líta á langvinna lungnateppu sem saman- söfnuð áhrif þess sem við öndum að okkur ævilangt. Þess vegna kemur langvinn lungnateppa yfirleitt ekki fram fyrr en í fyrsta lagi upp úr fertugu, þegar uppsöfnuð áhrif á lungu fara að valda lélegri lungnastarfsemi. Helsta orsök langvinnrar lungnateppu er reykingar. Þeir sem reykja fá meira af skaðlegum efnum ofan í lungu og það eykur líkurnar á því að fá sjúkdóminn. Erfðir hafa sitt að segja, sumir þola reykinn verr en aðrir og því eru meiri líkur á að þeir fái langvinna lungnateppu. langvinn lungnateppa er mjög hæggengur sjúkdóm- ur. Einkennin geta verið lúmsk og þar sem sjúkdómur- inn kemur yfirleitt ekki fram fyrr en á miðjum aldri getur fólk haldið að þetta sé eðlilegur hluti af því að eldast en það er alls ekki rétt. Mikilvægt er að átta sig á því að þetta er sjúkdómur sem hefur veruleg áhrif á lífsgæði. besta leiðin til að greina langvinna lungnateppu er mæling á lungnastarfsemi. Þá blæs sjúklingur í öndunarmæli sem mælir rúmmál lungna og hraða lofts sem hann blæs frá sér. Einnig eru lungu hlustuð og spurt um reykingasögu og einkenni, s.s. langvarandi hósta, slímuppgang og mæði. Því er nokkuð auðvelt og hættulaust að greina sjúkdóminn án umfangsmikilla rannsókna. Mikilvægasta skrefið í meðhöndlun langvinnrar lungnateppu er að hætta að reykja. Það hægir mjög á versnun sjúkdómsins. Önnur meðferðarúrræði eru innúðalyf, þjálfun, steratöflur og súrefni. nauðsynlegt er að koma í veg fyrir sýkingar í lungum þar sem sjúkdóm- urinn getur versnað hratt vegna þeirra. Þeim sem eru með langvinna lungnateppu er hætt- ara við að fá hjartasjúkdóma, s.s. kransæðasjúkdóm. lungnateppan getur með tímanum hækkað þrýsting í lungnaæðum en þá vex álag á hjartavöðvann smám saman. Ekki bætir úr skák að reykingarnar, sem eru nær alltaf orsök lungnateppu, auka einnig líkur á hjartasjúk- dómum. af ofangreindu ætti því að vera ljóst að langvinn lungnateppa er alvarlegur sjúkdómur sem hefur mikil áhrif á lífsgæði fólks og lífslíkur. Það er hagur allra að kannast við þennan sjúkdóm til þess að oftar megi greina hann og meðhöndla á frumstigum. Unnið í samvinnu við Skrifstofu kennslu, vísinda og þróunar á LSH. Lungun að veði? 1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 3

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.