Fréttablaðið - 18.01.2007, Síða 81
18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR45
Litlir peningar - mikið ævintýri
Mikið svigrúm
Persónurnar voru allar lengi í
gerjun; Ragnar bað leikarana að
leita að fyrirmyndum í öðru fólki
og leggja eitthvað til frá eigin
brjósti. „Fyrsta árið fór í rann-
sóknarvinnu og persónusköpun.
Við hittumst af og til og spjölluð-
um saman um karakterana og
þeim fylgdu ákveðnir atburðir
sem ég sá að gæti verið gaman
að vinna með. Ég leiddi persón-
urnar saman og við völdum það
besta sem kom úr því.
Nanna Kristín segir að fyrir
leikara séu það forréttindi að fá
að vinna eftir þessari aðferð,
þótt peningaleysi hafi vissulega
sett strik í reikninginn. „Þetta
eru afskaplega persónulegar
myndir og draumurinn væri að
geta gert aðra svona mynd en
með fjármagni. Ég vona að við
séum ekki að setja það fordæmi
að normið verði að fólk þurfi að
gefa vinnuna sína. Við vissum að
við fengjum lítið fjármagn og
yrðum að gera þetta sjálf. Þetta
var vissulega mikið ævintýri en
ég held að ekkert okkar væri til í
að gera þetta aftur.“
Ragnar segir að peningaleys-
inu hafi þó fylgt viss fríðindi.
„Það var engin tímapressa þegar
kom að eftirvinnslunni; engir
fjárfestar sem önduðu niður
hálsmálið á manni. Myndir af
þessu tagi þurfa mikið svigrúm
og ég gat tekið þann tíma sem ég
þurfti.“
Myndir sem skipta máli
Nanna Kristín segir að leikhóp-
urinn hafi strax kveikt á hug-
myndinni þegar Ragnar kynnti
hana fyrir þeim. „Það brann
greinilega eitthvað á öllum og
allur hópurinn var mjög sam-
stíga í því að þetta væri eitthvað
sem við þyrftum að gera.“
Ragnar jánkar því og segir
Börn og Foreldra vera myndir
sem hann hefði viljað vera löngu
búinn að sjá á Íslandi. „Ég held
að hugmyndinni hafi upphaflega
skotið niður þegar ég hafði séð
ónefnda íslenska bíómynd, sem
hafði greinilega kostað mikið fé
og tíma, en hafði engin áhrif á
mig og ég held að það sama hafi
átt við um 99 prósent áhorfenda.
Mér fannst það svo mikil sóun að
eyða tveimur tímum í eitthvað
sem skipti ekki máli og hugsaði
með mér hvers vegna við gerum
ekki myndir sem vekja tilfinn-
ingar; gleði, sorg, reiði, hvað sem
er. Það er frumskylda kvik-
myndagerðarmannsins að búa til
upplifun fyrir áhorfendur. Ekki
svo að skilja að hér hafi ekki
verið gerðar áhrifamiklar mynd-
ir, þær eru bara svo sorglega
fáar. “
Bæði eru þau þó sammála um
að íslensk kvikmyndagerð sé á
uppleið. „Á síðasta ári flykktist
fólk í bíó til að sjá íslenskar
myndir, sem sýnir að við erum
að gera eitthvað rétt,“ segir
Nanna Kristín. „Ég held að það
sé eitthvað að kvikna,“ heldur
Ragnar áfram. „Síðasta ár var
óvenjugott og ég sé ekki betur
en að árið framundan verði svip-
að. Ég held að við séum á ágætri
leið.“
Kvikmyndin Babel með þeim
Brad Pitt, Cate Blanchett og Gael
Garcia Bernal í aðalhlutverkum
verður frumsýnd í Sambíóum og
Háskólabíó annað kvöld. Þetta er
þriða myndin þar sem mexíkóski
leikstjórinn Alejandro González
Iñárritu og landi hans og hand-
ritshöfundurinn Guillermo
Arriaga leiða saman hesta sína
en fyrir hafa þeir gert hinar róm-
uðu Amores Perros og 21 Grams.
Þegar bandarísk hjón á ferða-
lagi um Marokkó lenda í slysi
hrindir það af stað atburðarás
sem snertir fjórar fjölskyldur í
fjarlægum heimshlutum. Hjónin
bandarísku heyja nú kapphlaup
upp á líf og dauða þegar konan
verður fyrir voðaskoti, tveir
marokkóskir drengir hafa fyrir
slysni flækst inn í glæp, barn-
fóstra í Bandaríkjunum reynir að
komast yfir landamærin til
Mexíkó með tvö bandarísk börn í
farteskinu og heyrnarlaus tán-
ingur í Japan kemst að því að lög-
reglan er að leita að föður hans.
Ólíkar manneskjur sem allar
mjakast í sömu átt að einangrun
og sorg.
Titill myndarinnar vísar til
Biblíunnar, þar sem segir að til
að refsa mannkyninu fyrir dramb
sitt hafi guð skapað ólíkt tungu-
mál svo menn skildu ekki hver
aðra enda leika vankunnátta í
tungumálum, skilningsleysi og
brostin tjáningargeta lykilhlut-
verk í myndinni.
Rétt eins og fyrri myndum
Iñárritu hefur Babel verið hamp-
að af gagnrýnendum hvarvetna.
Hún hlaut hin eftirsóknarverðu
áhorfendaverðlaun á kvikmynda-
hátíðinni í Cannnes í vor, hún var
valinn besta myndin á Golden
Globe-verðlaunahátíðinni á
mánudag og margir spá henni
Óskarsverðlaununum í ár, sem og
Brad Pitt og Cate Blanchett verð-
launum fyrir frammistöðu sína.
Sameiginleg örlög ólíkra manneskja
bAbel Brad Pitt og Cate Blanchett eru
meðal leikara í myndinni, sem hefur
farið sigurför um heiminn.
Laugavegur
Dúnúlpa
Litur: Brúnn, svartur
19.740 kr.
Laugavegur
Dúnvesti
Litur: Svartur, brúnn
13.800 kr.
Glymur
3ja laga skel
Litur: Hvítur, svartur, brúnn
36.600 kr.
Glymur
3ja laga skel
Litur: Svartur, brúnn, hvítur
27.600 kr.
Glymur
Softshell án hettu
Litur: Svartur, ljós, brúnn
herra 23.500 kr.
Glymur
Softshell með hettu,
Litur: Ljós, svartur
dömu 23.500 kr.
Glymur
Softshell buxur
Litur: Brúnn, svartur
19.500 kr.
Tindur
Windpro
Litur: Hvítur,svartur, brúnn
dömu 15.200 kr.
Tindur
Windpro
Litur: Svartur, brúnn
herra 15.200 kr.
66
°N
O
RÐ
U
R/
ja
n
07
Básar
100% merinó-ullarbolur
6.500 kr.
Básar
100% merinó-ullarbuxur
5.400 kr.
Vík
Power Stretch bolur
9.500 kr.
Vík
Power Stretch buxur
8.300 kr.
Surtsey
Vindheld prjónahúfa
2.600 kr.
REYKJAVÍK:
Kringlan
Bankastræti 5
Faxafen 12
GARÐABÆR:
Miðhraun 11
AKUREYRI:
Glerárgata 32
www.66north.is
66°NORÐUR
er stoltur styrktaraðili
Skíðasambands Íslands
Hannað fyrir
afreksfólk
og þig
20. 40 kr.