Fréttablaðið - 18.01.2007, Síða 90
sýnd í háskólabíói
Þ.J. -FBL
Mynd eftir Óskarsverðlaunahafann Clint Eastwood.
GEGGJUÐ GRÍNMYND
Bs. FBL
DENZEL WASHINGTON VAL KILMER
kvikmyndir.is
FRÁ FRAMLEIÐENDUM WEDDING CRASHERS
hughjackman christianbale
scarlettjohansson michaelcaine
Frá leikstjóra Batman Begins og memento
mögnuð og töFrandi spenna sem heldur þér í heljargreipum
Háskólabíó
DÉJÁ VU kl. 8 B.i. 12
THE DEPARTED kl. 10:30 B.i. 16
THE PRESTIGE kl. 6 - 9 - 10:30 B.i.12
THE CHILDREN OF MEN kl. 5:50 B.i.16
THE HOLIDAY kl. 5:30 B.i. 7
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:30 - 8 B.i. 16
/ kringlunni / keflavík/ álfabakka / akureyri
THE CHILDREN OF MEN kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.16
FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl. 3:20 - 5:40 Leyfð
HAPPY FEET M/-Ensk tal. kl. 3:20 Leyfð
SKOLAÐ Í BURTU Ísl tal. kl. 3:20 Leyfð
THE PRESTIGE kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.12
THE PRESTIGE VIP kl. 5:20 - 8 - 10:40
EMPLOYEE OF THE MONTH kl.5:40 - 8 - 10:20
STRANGER THAN FICTION kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 Leyfð
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:40 B.i.16
THE PRESTIGE kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12
STRANGER THAN FICTION kl. 8:10 - 10:30 Leyfð
FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl. 5:50 Leyfð
HAPPY FEET M/-Ensk tal. kl. 5:50 - 8:10 Leyfð
DÉJÁ VU kl. 10:30 B.i.12
THE PRESTIGE kl. 8 - 10:30 B.i. 12
EMPLOYEE OF THE MONTH kl. 8 B.i. 12
STRANGER THAN FICTION kl. 10:10 B.i. 7
HAPPY FEET kl. 6 Leyfð
THE PRESTIGE kl 8 - 10:20 B.i. 12
FLAGS OF OUR FATHERS kl 5:40 B.i. 16
THE CHILDREN OF MEN kl 8 - 10:20 B.i. 16
Mörgæsaæðið
er hafið!
Fór Beint
á toppinn
í usa
FRÁBÆRLEGA FYNDIN OG
SNIÐUG GAMANMYND...
A.Ó. SIRKUS
Raftónlistarmaðurinn
Rúnar Magnússon heldur
þrenna tónleika í Kína og
eina í Hong Kong á næst-
unni. Fyrst mun Rúnar
spila í borgunum Shenzhen
og Guangzho í Kína í lok
janúar og síðan í Hong
Kong hinn 3. febrúar.
„Þetta hefur eiginlega vaxið upp
úr Myspace. Ég er með síðu þar og
er kominn í samband við fólk úti
um allan heim,“ segir Rúnar, sem
hefur verið búsettur í Danmörku í
ellefu ár.
Rúnar hlakkar mikið til ferðar-
innar en þarf þó sjálfur að standa
straum af ferðakostnaðinum. „Ég
bjóst við að geta fengið ferðastyrki
út á þetta en maður er ekki nógu
mikið inni í klíkunni,“ segir hann í
léttum dúr. „Þetta kom líka svolítið
skyndilega upp á þannig að það
var lítill tími til að vinna í því.“
Tekur upp trúarathafnir
Rúnar, sem leggur af stað til Kína
á föstudag, ætlar að dvelja þar í
tvær vikur. „Ég ætla að reyna að
ferðast aðeins og taka upp hljóð.
Ég er svolítið mikið í „field rec-
ording“ og ferðast um með upp-
tökugræjur og míkrófón. Ég ætla
að tékka á alls konar tónlist og
hugsanlega að reyna að tékka á
trúarathöfnum. Það eru oft athygl-
isverð hljóð í kringum þær. Þeir
eru með svo mismunandi trúar-
stefnur þarna sem gæti verið
áhugavert að festa á teip.“
Semur fyrir leikrit
Rúnar er í mastersnámi í raftón-
list við tónlistarháskólann í Árós-
um. Auk raftónlistarinnar hefur
hann starfað töluvert fyrir leik-
stjórann Kristján Ingimarsson
sem er einnig búsettur í Dan-
mörku. Rúnar hefur samið tónlist-
ina við leikrit hans, Endurkomu
frelsarans, sem verður frumsýnt í
Kaupmannahöfn 7. mars. Mun
hann spila í leikritinu í um tvær
vikur og halda svo á tónleikaferð
um Danmörku.
Í lok mars mun hann síðan tón-
leika á safninu Gammel Stand í
Kaupmannahöfn í tengslum við
sýningu á verkum Jóhannnesar S.
Kjarval og Ólafs Elíassonar. Sýn-
ingin mun standa yfir frá 10.
febrúar til 29. apríl.
Meðlimur Vinda Mei
Hér á landi hefur Rúnar starfað
með Pétri Eyvindssyni (DJ Music-
ian) í hljómsveitinni Vinda Mei.
Sveitin hefur gefið út þrjár plötur,
auk þess sem Rúnar hefur sjálfur
gefið út þrjár sólóplötur. Frekar
upplýsingar um Rúnar má finna á
heimasíðunni myspace.com/run-
armagnusson. freyr@frettabladid.is
Frá Myspace til Kína
rúnar MagnúSSon Rúnar er á leiðinni
til Kína og Hong Kong þar sem hann
mun halda ferna tónleika.
Félagarnir Garðar Bachmann og
Hákon Seljan, yngri bróðir fjöl-
miðlamannsinns kunna Helga
Seljan, hafa lagt lokahönd á
heimildarmynd sína um álit ung-
menna á Austurlandi á virkjana-
framkvæmdum. Upphaflega
stefndu þeir þó að því að klára
myndina fyrir áramót. „Það voru
próf og miklar annir sem urðu til
þess að henni seinkaði dálítið, og
kannski smá leti í bland,“ sagði
Hákon sposkur, en hann útskrif-
aðist frá Menntaskólanum á Egils-
stöðum um jólin. Þegar Frétta-
blaðið náði tali af honum var hann
einmitt á fyrsta degi í nýrri vinnu,
sem afleysingakennari við Grunn-
skólann í Bolungarvík.
Myndin, sem er um hálftíma
löng, heitir Okkar skoðun og verð-
ur frumsýnd í bíóinu á Reyðar-
firði á laugardaginn. Hákon bjóst
þó ekki við að myndin yrði tekin
til sýninga í fleiri kvikmyndahús-
um landsins á næstunni. „Nei, ekki
svona. En við ætlum að ræða við
einhverjar sjónvarpsstöðvar um
að fá að sýna hana,“ sagði hann.
Inntur eftir niðurstöðum úr mynd-
inni kvaðst Hákon halda að fleiri
viðmælendur væru með virkjana-
framkvæmdum en á móti. „En það
er kannski meira fyrir áhorfand-
ann að komast að niðurstöðu um
það,“ sagði hann. - sun
Okkar skoðun klár í slaginn
hákon og garðar Okkar skoðun,
mynd félaganna um viðhorf ungmenna
á Austurlandi við virkjanaframkvæmd-
um, verður frumsýnd á Reyðarfirði á
laugardaginn.
Tónlistarkonan Lily Allen hefur
verið tilnefnd til fjögurra Brit-
verðlauna, þar á meðal sem
sólótónlistarkona ársins
og fyrir bestu bresku
plötuna, Alright Still.
Rokksveitin Muse
fékk þrjár tilnefningar:
sem besta breska hljóm-
sveitin, besta tónleikasveit-
in og fyrir bestu plötuna.
Bandaríska hljómsveitin
Gnarls Barkley hlaut einnig þrjár
tilnefningar: sem besta erlenda
sveitin, fyrir bestu plötuna og
bestu nýju hljómveitina. Að
auki fengu Corinne Bailey
Rae, James Morrison
og Snow Patrol þrjár
tilnefningar hver. Bob
Dylan og Justin
Timberlake voru á
meðal þeirra sem
hlutu tvær tilnefningar.
Brit-verðlaunin verða afhent
í London hinn 14. febrúar.
FréTTir aF Fólki
ÚTSALA70
Allt að
afsláttur
%
Opið virka daga frá kl. 9-18 og laugardaga frá kl.11-16
Úrval ljósa á frábæru verði!