Fréttablaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 11
Pantaðu fleiri eintök á www.oddi.is
Prentsmiðjan Oddi ehf. • Höfðabakka 3-7 • 110 Reykjavík • Sími 515 5000 • www.oddi.is
SKOÐAÐU, VELDU, PANTAÐU!
Aldrei fljótlegra að kaupa prentverk
Skýr yfirsýn, aukin verðvitund.
Einfalt að finna þína vöru.
Þú velur þann vinnsluhraða sem þér hentar.
Verð á yfir 1000 prentlausnum.
4 2 7
HRATT EXPRESS +3
O
D
D
IH
Ö
N
N
U
N
P
07
.0
0.
42
2
Læknafélag Reykjavíkur hvetur heil-
brigðisnefnd Alþingis til að skoða vandlega þau til-
mæli sem fram koma í nefndaráliti Læknafélags
Íslands um frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu.
Læknafélagið hefur varað við því mikla valdi sem það
telur frumvarpið veita heilbrigðisráðherra við skipan
og framkvæmd heilbrigðisþjónustunnar. Einnig er
gagnrýnt að forstöðumönnum á sjúkrahúsinu sé veitt
mikið vald og ábyrgð án þess að nokkrar hæfniskröf-
ur séu gerðar til þeirra. Þetta er meðal þess sem nefnd
Læknafélagsins telur mjög gagnrýnisvert við frum-
varpið.
Páll Torfi Önundarson, varaformaður Læknaráðs
Íslands, segir að gangi lagafrumvarpið í gegn sé það
ógn við velferð sjúklinga. „Ef fólk leggst inn á spítala
á það að geta treyst því að sá hæfasti sem finnst sé
ráðinn við stjórn. Sú krafa er ekki fyrir hendi í frum-
varpi heilbrigðisráðherra. Þetta frumvarp er bastarð-
ur sem gengur út á að auka völd ráðherra,“ segir Páll.
Þessu samsinnir Læknafélag Reykjavíkur og segir
hagsmuni stofnana ríkisins og forráðamanna þeirra
setta í öndvegi á kostnað sjúklinga. Með frumvarpinu
sé dregið úr faglegri ábyrgð heilbrigðisstétta.
Leggja stjórnendur Læknafélags Reykjavíkur og
Læknaráðs Íslands til að afgreiðslu frumvarpsins
verði frestað til að unnt verði að vinna það betur. Ekki
náðist í Siv Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra.
Segir frumvarp Sivjar bastarð
Verðbólga á Íslandi
mælist 5,9 prósent á Íslandi sam-
kvæmt samræmdri vísitölu
neysluverðs í EES-ríkjunum sem
Hagstofan birti fyrir helgi. Lækk-
ar hún úr 6,1 prósenti í nóvember.
Greining Glitnis telur að
verðbólgan muni hjaðna hratt á
næstunni. Það komi til vegna
lækkunar opinberra álaga á
matvæli, samhliða því að nú hægi
á vexti hagkerfisins, olíuverð fari
lækkandi og áhrifin af gengis-
lækkun krónunnar á vísitölu
neysluverðs séu að fjara út.
Verðbólgan mælist einungis
hærri en hér í Lettlandi, 6,8
prósent, og í Ungverjalandi, 6,6
prósent. Að meðaltali er verð-
bólgan á evrusvæðinu 1,9 prósent
og 2,1 prósent á EES-svæðinu.
Hröð hjöðnun
verðbólgunnar
Ferjugjöld í Herjólf
hækka frá mánaðamótum um að
meðaltali 11,5 prósent. Guðmund-
ur Petersen, rekstrarstjóri hjá
Eimskip, segir að hækkunin sé í
samræmi við samning Eimskips
við Vegagerðina.
Farið til Vestmannaeyja kostar
2.000 krónur fyrir fullorðinn frá
1. febrúar en kostaði 1.800 krónur
áður. Ef notað er afsláttarkort
þarf að kaupa 40 einingar. Þrjár
einingar duga í eina ferð og
kostar ferðin þá 1.215 krónur.
Áður kostaði hún 1.080 krónur.
Ókeypis er fyrir börn upp að tólf
ára aldri. Börn 12-15 ára greiða
eina einingu eða 405 krónur fyrir
aðra leiðina. Ellilífeyrisþegar
sömuleiðis. Einingin kostaði áður
360 krónur.
Ferjugjöldin
hækka
Heilbrigðisyfirvöld
í Suður-Kóreu hafa fyrirskipað
slátrun á 273.000 hænsnfuglum
eftir að H5N1-afbrigði fugla-
flensunnar kom í ljós á kjúkl-
ingabúi.
Enn á eftir að taka ákvörðun
um örlög 386.000 annarra
hænsnfugla í nágrenninu sem
gæti þurft að farga.
Í Indónesíu lést stúlka á
föstudaginn af völdum fugla-
flensu. Stúlkan, sem var 19 ára
gömul, hafði komist í tæri við
dauða hænsnfugla og smitast af
sjúkdómnum.
Fimm manns hafa látist af
völdum flensunnar í Indónesíu
það sem af er ári.
Slátra tæplega
300.000 fuglum
Karl Bretaprins
hefur hætt við að fara í hefð-
bundna skíðaferð til Sviss til þess
að vinna gegn losun gróðurhúsa-
lofttegunda. Sífellt fleiri í
Bretlandi eru meðvitaðir um
neikvæð umhverfisáhrif flug-
ferða og vill Karl fækka þeim
skiptum sem hann stígur upp í
flugvél.
Ráðherrar og umhverfissinnar
gagnrýndu prinsinn fyrir að
fljúga til Bandaríkjanna til að
taka þátt í verðlaunaathöfn, í stað
þess að nýta sér myndsíma. Í
bígerð er að birta hversu mikinn
koltvísýring ferðir Karls hafa
losað út í andrúmsloftið.
Skíðaferð aflýst
vegna mótmæla