Fréttablaðið - 22.01.2007, Page 48
Um daginn var ég
stödd á dönskum
bar og hitti þar
útlendinga sem
höfðu aldrei heyrt
minnst á Ísland.
Umsvifalaust var
ég komin í hlutverk
sendiherrans. Og
hvað segir maður við fólk sem veit
ekki einu sinni að Ísland er til? Jú
fyrst verður maður dálítið vand-
ræðalegur en svo koma klisjurnar
á færibandi.
„Á Íslandi er fallegasta náttúra í
heimi og við erum ótrúlega töff
miðað við höfðatölu og drekkum til
dæmis meira kók en allir aðrir.“
Svo lýsum við eldfjöllum, jöklum
og goshverum með tilþrifum og
klykkjum út með því að segja að á
Íslandi búi fallegasta fólk veraldar.
Þar á eftir fylgir sannfærandi ræða
um að 300 þúsund hræður séu alveg
ágætis fólksfjöldi og máli okkar til
stuðnings teljum við upp fræga
Íslendinga eins og Björk og Keikó.
Sjálf veit ég vel að allt hér að
framan er hið mesta bull. Samt
hlustaði ég á sjálfa mig fara með
þessa þvælu í áheyrn útlending-
anna og dauðskammaðist mín. Klis-
jur eru þægilegar en vandinn við
Íslandsklisjurnar er sá að þær eru
ferlega hrokafullar. Minnimáttar-
kenndin er að fara með okkur. Það
skiptir okkur öllu máli að öðrum
þjóðum finnist við töff og spenn-
andi. Við þekkjum þetta öll. Stoltið
sem kitlar mann þegar íslensku
landslagi bregður fyrir í bílaaug-
lýsingu eða þegar íslenskur skóla-
strákur fær að segja eitt orð í
bandarískri stórmynd.
Útlendingarnir voru hrifnir af
ræðu minni og göptu af hrifningu.
Ég lét mér fátt um finnast og byrj-
aði að blaða í dönsku tímariti sem
lá þarna á borðinu. Ég staldraði við
þegar ég rakst á myndir af íslenskri
náttúru. Þvílík tilviljun, hugsaði ég
og var ekki lengi að tilkynna piltun-
um að þessar fallegu myndir væru
frá Reykjavík. Með þjóðarstoltið
ólgandi um æðar mér fletti ég upp
á byrjun greinarinnar og varð dálít-
ið hissa þegar ég sá fyrirsögnina:
„Reykavik: Den lille by med det
store ego.“ Danir höfðu svo sannar-
lega hitt naglann á höfuðið.
ÚFFF!
ÞVÍÍLKIR
VINNINGAR
Aukavinningar eru iPOD Nano • Panasonic
heimabíó • PS2 tölvur • Sony Ericsson GSM símar
PSP tölvur • Canon stafrænar myndavélar Fartöl-
vur • PS2 Guitar Hero • Gjafabréf á Tónlist.is
Bíómiðar á Kirikou og villidýrin • Kippur af gosi og
en meira af DVD, CD´s, tölvuleikjum og fleiru
*Aðalvinningur verður dreginn út úr öllum innsendum SMS skeytum.
Fylgstu með á www.bt.is. Vinningar verða afhendir í BT Smáralind,
Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
Ég á þrjá svona eins og
þennan, svo er ég með
nokkur síli og einn lítinn ál.
Svo er ég með einn
kvenkyns svartnef,
hún á það til að
borða aðra sína
líka! En annars
borðar hún bara allt,
alveg sama hvort
það er brauð eða
lambasteik
Það er sem
sagt ekkert vit i
að eiga fleiri en
einn svoleiðis!
Nei, það nægir
mér að eiga eina
truntu sem borðar
eins og svín!
En samt hefurðu
ákveðið að fá þér aðra! Æ!
Skilaðu kveðu til Súsönnu frænku
frá mér!
Súsanna frænka?
Súsanna hefur ekki
hringt í margar vikur!
Nú ferðu
að hætta
þessu!!!
Íslensk
erfðagreining
ehf.
Ekki geturðu breytt
okkur þannig að
við verðum eins og
rósakál á bragðið?
Er komið vor?
Já, í dag er
komið vor ...
Hvað er að
ykkur? Eruð
þið ekkert
glöð!
Mamma,
þegar nýja
barnið kemur
má hún alveg
eiga herbergi
með mér!
En hvað þetta er
fallega sagt, mikið
er það fallegt af ...
Þá verðum
við tvær á móti
einum!
...þér!
Hei, þ
að er
ósanng
jarnt!!!