Fréttablaðið - 21.02.2007, Síða 8
Hvaða X-Factor keppandi
missti framan af fingri á laug-
ardaginn?
Hvað heitir formaður Sjúkra-
liðafélags Íslands?
Hvar á landinu vilja félagar í
Fuglafélaginu Fuglavernd koma
upp arnarskoðunarsetri?
Breski sálfræðingurinn
Aric Sigman heldur því fram að of
mikið sjónvarpsgláp geti valdið
bæði nærsýni og svefntruflunum,
raskað hormónastarfsemi og aukið
líkur á krabbameini.
Enn fremur segir hann tengsl geta
verið milli sjónvarpsgláps og
athyglisbrests, einhverfu,
Alzheimersjúkdómsins, auk þess
sem hann segir vísbendingar um
að sjónvarpsgláp valdi því að börn
verði fyrr kynþroska en ella. Þá
segir hann of mikið sjónvarpsgláp
hægja á efnaskiptum sem tengjast
bæði offitu og sykursýki.
Þessar fullyrðingar byggir
hann á ítarlegri könnun sem hann
hefur gert á meira en þrjátíu rann-
sóknum annarra vísindamanna,
sem þeir hafa gert á sjónvarps-
glápi og tölvunotkun.
Um þessa rannsókn Sigmans er
víða fjallað í breskum fjölmiðlum
þessa vikuna, en grein eftir hann
sjálfan um málið verður birt á vef-
síðu breska líffræðitímaritsins
Biologist á föstudaginn.
Við sex ára aldur hafa bresk
börn að meðaltali samtals horft á
sjónvarps- eða tölvuskjá í eitt ár
samfleytt, og þegar fólk er orðið
75 ára hefur það að meðaltali varið
12 árum fyrir framan skjáinn.
„Að leyfa börnum að halda
áfram að horfa svona mikið á skjá-
miðla er afsal foreldra á ábyrgð
sinni,“ er haft eftir Sigman í nokkr-
um breskum fjölmiðlum í gær.
Sigman gefur foreldrum þau
ráð að láta börn sem eru yngri en
þriggja ára aldrei horfa á sjón-
varp, og að börn á aldrinum þriggja
til fimm ára fái ekki að horfa á
sjónvarp nema í hálftíma á dag hið
mesta. Eldri börn ættu, samkvæmt
ráðum hans, ekki að horfa á sjón-
varp eða nota tölvu nema í mesta
lagi eina klukkustund á dag.
Sigman hefur áður skrifað bók
um skaðleg áhrif sjónvarpsgláps á
börn og hvatt foreldra til að setja
þeim strangar skorður. Aðrir sér-
fræðingar hafa þó sagt tillögur
hans óraunhæfar.
Sjónvarpið
hættulegt
heilsu barna
Sjónvarpsgláp getur haft meiri og mun alvarlegri
áhrif á heilsu og þroska barna en áður var talið, ef
marka má breska sálfræðinginn Aric Sigman.
Áfrýjunarréttarhald í
málum sex sakborninga í Munch-
málverkaráninu frá árinu 2004
hófst í Borgardómi Óslóar í gær.
Fyrsta verk dómforsetans var
að vísa frá beiðni verjenda um
frekari frestun á réttarhaldinu. Í
maí voru þrír sakborningar dæmd-
ir fyrir að hjálpa þjófunum. Þrír
aðrir voru sýknaðir.
Grímuklæddir, vopnaðir þjófar
höfðu tvö af þekktustu og verð-
mætustu málverkum Munchs,
„Ópinu“ og „Madonnu“, á brott
með sér úr Munch-safninu í Ósló
síðsumars 2004. Þau fundust
skemmd í lok ágúst. Unnið er að
viðgerðum.
Áfrýjunarréttarhöld hafin
Ekki hafði enn tekist að
ræsa vélarnar í stóru japönsku
hvalveiðiskipi, Nisshin Maru, í
gær en eldur kom upp í skipinu
við Suðurskautslandið á föstudag-
inn í síðustu viku. Um 70 manns úr
áhöfn skipsins eru enn um borð.
Umhverfisráðherra Nýja-Sjá-
lands segir ólíklegt að heimild
fáist til að draga skipið til hafnar
þar. Hvalveiðar eru bannaðar á
Nýja-Sjálandi og um borð í skip-
inu eru bæði dauðir hvalir og
mikið magn af olíu, sem einhver
hætta er á að geti lekið út.
Vélarbilunin hefur komið hval-
veiðum Japana við Suðurskauts-
landið í uppnám. Á þessari vertíð
var meiningin að veiða 945 hvali,
en Nisshin Maru er eina skipið
sem hefur aðstöðu um borð til að
vinna hvalkjöt.
Erfiðlega gengur að gangsetja
Hita og njóta
Nú getur þú framreitt ljúffenga súpu frá Knorr úr úrvals hráefni á
augabragði. Tilvalin í forrétt eða sem hressandi aðalréttur fyrir tvo.
Hún er tilbúin – bara að hita og njóta!Fí
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
0
2
3
5
Engar athugasemd-
ir eru gerðar af hálfu Persónu-
verndar við fyrirhugaða laga-
breytingu sem felur í sér þá
breytingu að bannað verður að
taka ljósmyndir og hljóðrita á
göngum dómshúsa landsins.
„Öðrum en dómstólnum sjálfum
eru óheimilar myndatökur og
hvers kyns hljóð- og myndupptök-
ur í dómshúsum.
Frá þessu má víkja í einstök
skipti með leyfi dómstjóra, enda
sé þess gætt að myndatökum og
upptökum verði ekki beint að
aðilum dómsmáls án þeirra
samþykkis,“ segir í frumvarpinu.
Í lagi að banna
myndatökur