Fréttablaðið - 21.02.2007, Síða 18
Auðunn Hilmarsson veitir hér
nokkur góð ráð við meðferð á
bílalakki.
„Eitt það mikilvægasta í umhirðu
bíla er að forðast notkun kústa við
bílaþvott til að skemma ekki lakk-
ið,“ segir Auðunn Hilmarsson hjá
Bílasprautun og -réttingum Auð-
uns, Nýbýlavegi 10. „Kústar eru
meginorsakavaldur fínni rispna á
bílum. Eftir því sem lakkið er
dekkra á litinn því betur sjást risp-
urnar.“
Að sögn Auðuns er gripið til
þess ráðs að nota sérstaka massa-
vél til að ná þessum fínu rispum
burt af lakkinu. „Að svo búnu er
bifreiðin bónuð vel og vandlega
eða þar til hún verður alveg eins og
ný. Regluleg notkun bóns er síðan
eina helsta forsenda fyrir ending-
argóðu lakki. Bónið er einfaldlega
ein besta vörnin sem völ er á.
Það er enn fremur gott að eiga
smá lakk til að stinga í sár, sem
kunna að myndast af völdum
steinkasts,“ heldur Auðunn áfram.
„Ef það er ekki gert getur selta
sest að í sárunum á veturna, farið
undir lakkið og myndað eins konar
æðar á því. Eftir sitja svokallaðar
ryðbólur. Þá verður að sprauta
heilan hluta, svo sem húdd eða
hurð, sem hefði hæglega mátt fyr-
irbyggja með því að stinga í sárið
strax í upphafi.“
Auðunn mælir einnig með því
að menn haldi sig við umhverfis-
væna tjöruhreinsa, aðrir geti verið
svo sterkir að þeir geri lakkið
hreinlega matt. „Sumir telja að
umhverfisvænir tjöruhreinsar séu
ekki nógu góðir, en þeir eru þvert á
móti ekki eftirbátar annarra að
neinu leyti,“ útskýrir hann. „Ég
hvet menn til að halda sig við þá.“
Auðunn bætir í lokin við að til
séu alls kyns galdraefni sem geti
reynst góð vörn fyrir lakk, það sé
bara spurning um að kanna hvað sé
í boði.
Bón ein besta vörnin
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Daewoo lyftarar
Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557
Gæði á góðu verði
Tjáðu þig! Stæsta
bloggsamfélagið!
Yfir 150.000
notendur!
Viltu sýn’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is