Fréttablaðið - 21.02.2007, Síða 19
Nýr vörusendibíll hefur bæst
við atvinnubílalínu Renault.
Þar er á ferðinni Maxity með
3,5-4,5 tonna heildarþunga.
Maxity raðar sér mitt á milli
Master og Mascott og með komu
hans spannar línan þar með allt
frá 2,8 að 6,5 tonna heildarþunga.
Evrópufrumkynningin á Maxity
verður seint í mars og má því
gera ráð því að fyrstu bílarnir
verði komnir hingað til lands í
apríl eða byrjun maí.
Boðið verður upp á þrjár vélar
í Maxity, 110, 130 og 150 hestafla
díselvélar, þær tvær fyrrnefndu
2,5 lítra vélar frá Master, en sú
síðastnefnda er ný 3,0 lítra vél.
Að sögn Bjarna Þ. Sigurðsson-
ar, sölustjóra B&L atvinnubíla,
verður Maxity líklega best lýst
sem smækkuðum vörubíl að utan
og rúmgóðum fólksbíl að innan-
verðu. „Maxity mun styrkja veru-
lega „miðju“ Renault-línunnar,
bæði hvað stærð og verð varðar,“
segir Bjarni.
Nýr Maxity vörubíll
Leðurblökubíllinn fer á uppboð
í London síðar í mánuðinum.
Leðurblökubíllinn úr sjónvarps-
þáttunum um Leðurblökumanninn
og undradrenginn Robin, sem nutu
óhemju vinsælda á sjöunda ára-
tugnum mun fara á uppboð 27.
febrúar.
Búist er við að bíllinn, sem er
talinn sá sjötti sinnar tegundar og
gerður í auglýsingaskyni fyrir
þættina, verði ekki seldur fyrir
minna en 9.675.000 krónur á Coy
Spring Classics uppboðinu, sem
fer fram í Royal Horticultural
Hall í London.
Bíllinn var fyrst kynntur til
sögunnar í myndasögum um Leð-
urblökumanninn á sjötta áratugn-
um. Robin bjó hann til eftir að
Leðurblökumaðurinn fótbrotnaði,
til að gera honum kleyft að vernda
áfram íbúa Gotham-borgar vand-
kvæðalaust.
Leðurblökubíllinn varð þó fyrst
heimsþekktur eftir að hafa ratað í
sjónvarpsþættina um félagana.
Jay Ohrberg smíðaði bílinn eitt-
hvað í kringum 1966, sem er nær
sex metra langur, opinn tveggja
sæta sportbíll svartur á lit og með
skærrauðum línum. Útlit bifreið-
arinnar skírskotar að auki til vaxt-
arlags leðurblaka og ljær honum
því nokkuð sérstakt yfirbragð.
Upprunalegi Leður-
blökubíllinn á sölu
Fyrir hverju vilt þú berjast?
UMFERÐARÖRYGGI OG UMFERÐARFLÆÐI
AÐSKILDUM AKSTURSSTEFNUM Á SUÐUR- OG VESTURLANDSVEGI
BETRI VEGUM, FLEIRI VEGRIÐUM OG HRINGTORGUM
BÆTA HRINGVEGINN OG BURT MEÐ EINBREIÐAR BRÝR
ÖRUGGUM VEGUM Á VESTFJÖRÐUM
MEIRI LÖGGÆSLU, UMFERÐARÁRÓÐUR OG HÆKKUN SEKTA
MEIRI FJÁRMUNUM TIL VEGAGERÐAR VARIÐ Í ÖRYGGISMÁL
FORGANGSRÖÐUN VERKEFNA Á LANDSBYGGÐINNI
HEILDARSTEFNA Á ALÞINGI Í UPPBYGGINGU VEGAKERFISINS
Við styðjum grasrótarsamtökin Samtöðu:
Með SAMSTÖÐU getum við náð árangri.
Í nóvember árið 1999 var stofnaður áhugahópur um örugga Reykjanesbraut. Með samstöðu íbúa svæðisins, þingmanna
og framkvæmdaraðila tókst að hefja framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar fyrr en áætlað var. Og nú eftir rúmlega
sjö ára baráttu og jákvæðan áróður hópsins er fyrsti áfangi brautarinnar tilbúinn og árangurinn staðreynd. Í stað allt að
sex banaslysa á ári hefur enginn látist á brautinni frá því að fyrsti áfanginn var vígður árið 2004.
Við getum náð árangri – líka á þínu svæði. Markmiðin eru skýr.
Gerum alla vegi landsins örugga með SAMSTÖÐU og slysalausri sýn árið 2007
Skráðu þig í þinn baráttuhóp á www.nullsyn.is