Fréttablaðið - 21.02.2007, Side 24
21. FEBRÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR2 fréttablaðið 6000 snúningar
Toyota er ríkasti bílaframleið-
andi í heimi, þeir eru á hraðleið
með að verða þeir stærstu,
og hérlendis bera þeir höfuð
og herðar yfir aðra keppi-
nauta. Samt framleiða þeir
bíla sem upp til hópa eru álíka
spennandi og grænkálssúpa.
En ekki þessi. 400 hestöfl og
hugarangrandi tog úr um-
hverfisvænum tvinnbíl sem
mögulega getur bjargað ofur-
sportbílnum á þessum síðustu
og umhverfisvænu tímum.
Plánetan er að hitna eins og hún
sé í örbylgjuofni. Spjótin standa á
bílaframleiðendum að minnka
útblástur gróðurhúsalofttegunda
og þá sérstaklega hjá bensínþyrst-
um ofursportbílum. Varla er hægt
að stíga á bensíngjöfina án þess
að fá samviskubit og biðja ísbirn-
ina afsökunar í huganum. Þess
vegna er Toyota FT-HS algjör
himnasending en hann gæti mögu-
lega verið sá bíll sem bjargar
sportbílasenunni.
FT-HS er tvinnbíll, rafmagns-
og bensínbíll, og skilar það sér í
mun minni bensíneyðslu og þar af
leiðandi minni útblæstri. Ekki
rugla þessum saman við Prius.
Toyota er búið að sýna með Lexus
að hægt er að nota tvinntækni í að
búa til spennandi bíla og hugsa
um umhverfið á sama tíma. FT-
HS skilur hins vegar alla aðra
eftir í rykinu. Rafmagnsmótor-
arnir (en þeir verða tveir í FT-HS)
minnka ekki bara útblástur held-
ur skila þeir gríðarlegu togi sem
er nákvæmlega það sem þarf til
að koma bíl frá núlli upp í rosa-
lega hratt á minni tíma en það
tekur að segja ofursportbíll.
En það fylgir böggull skamm-
rifi. FT-HS er að hluta til raf-
magnsbíll og það þarf ekki að gera
annað en að taka upp tvö AA batt-
erí til að geta sér til hver vandinn
er. Rafhlöður eru þungar og þær
tvær sem verða í FT-HS koma til
með að vega 180 kíló. „Ekki
örvænta,“ segir Chiharu Tamura,
yfirmaður þróunardeildar hug-
myndabíla hjá Toyota. „Mikið
verður af koltrefjum í bílnum og
ætti það að halda þyngdinni í 1,6
tonnum.“ 1,6 tonn gera hann að
þybbna stráknum í bekknum en
þrátt fyrir það verður hann vel
liðtækur í fótbolta í frímínútun-
um.
FT-HS er ekki bara spennandi
hvað varðar tækni og aksturseig-
inleika heldur líka vegna útlitsins.
Við fyrstu sýn minnir hann á bíl
úr vondri framtíðarmynd þar sem
allur peningurinn fór í tæknibrell-
ur og sviðsmynd áður en uppgötv-
aðist að handritið var drasl. Samt
sem áður virðist allt ganga upp og
þó svo að línurnar eigi eftir að
mýkjast töluvert ef bíllinn fer í
framleiðslu lítur hann vel út með
sitt klíníska og minímalíska
þema.
Inni í bílnum tekur við önnur
veröld. Framtíðin er hér stendur
skrifað skýrum stöfum á öllu inn-
viðina.
Snertiskjáir á víð og dreifð,
stýri sem seint mun lifa af fjölda-
framleiðslu, gírstöng sem minnir
á … ekki neitt því slíkt hefur
aldrei sést.
Vandamálið við hugmyndabíla
er að þeir eru bara hugmynd og
ekki framleiðsluvara. Þegar þeir
loksins rata í framleiðslu eru þeir
orðnir eitthvað allt annað en til
stóð og hefur fjöldaframleiðslan
og óttinn við íhaldssaman mark-
aðinn tekið beittustu brúnina úr
hönnuninni. Það góða við FT-HS
er að þrátt fyrir að vera hug-
myndabíll er fátt í honum sem
reynst gæti Toyota erfitt að fjölda-
frameiða. Þar að auki virðist mik-
ill áhugi innan fyrirtækisins að
framleiða bílinn en illa hefur
gengið að búa til sportbíl síðan
Toyota Supra kafnaði í eigin
útblæstri (CO2 útblásturinn var
svo mikill að bíllinn var langt frá
því að uppfylla stranga útblást-
ursstaðla).
FT-HS á raunhæfan möguleika
að verða framleiddur og það í
nokkuð óbreyttri mynd. Ef hann
kemst á götuna, en það verður
ekki fyrr en í fyrsta lagi 2010,
mun hann umbreyta sportbílasen-
unni gjörsamlega. Í fyrsta sinn
verður hægt að keyra bíl sem er
er fallegur, hraðskreiður, eyðslu-
grannur, án þess að hafa það á
samviskunni að Vatnajökull hverfi
og Holland drukkni. - tg
Ofursportbíll með hreina samvisku
Toyota FT-HS stendur fyrir Future Toyota Hybrid Sports. Hann kemur til með að eyða
8 lítrum á hundraðið þrátt fyrir að vera 400 hestöfl.
Það er eitthvað við FT-HS sem minnir á Supra, ódýra sportbílinn sem því miður kafn-
aði í eigin útblæstri.
FT-HS er í raun svokallaður targa-bíll því hægt er að renna koltrefjaþakinu aftur og fá
vindinn í hárið.
Snertiskjáir, furðulegt stýri, einstök gírstöng og sæti úr Star-Trek prýða FT-HS. Allt
útlit bílsins, bæði að innan og utan, er afar vel heppnað.
Bless, bless analog nálamælar og góðan
daginn fyrstu stafrænu mælar sem líta
virkilega vel út.