Fréttablaðið - 21.02.2007, Qupperneq 26
21. FEBRÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR4 fréttablaðið 6000 snúningar
REYNSLUAKSTUR
Derhúfa, Labradorhundur og
haglabyssa ættu samkvæmt
ímyndinni að vera staðalbún-
aður í pallbílum. Ekkert slíkt
fylgir Isuzu D-Max, þrátt fyrir
að þar sé á ferðinni fyrirtaks
pallbíll.
Isuzu D-Max er eins og flestir pall-
bílar. Hann er kröftugur í útliti en
um leið íhaldssamur, hann á að
höfða til testósteróns án þess að
styggja fastakúnnana, hann á að
blanda saman notagildi og einhvers
konar harðkjarna pallbíla-ímynd.
Fátt er nýtt eða byltingakennt í
útlitinu enda óþarfi að laga það sem
ekki er bilað.
Ýmislegt er gert til að gera bíl-
inn kröftuglegan. Loftinntakið á
húddinu er stórt, sem er gott en
frekar óþarft, og útstæð stefnuljós-
in á bakspeglunum minna á eyrna-
lokk á mótorhjólakappa. D-Max ber
lokkinn vel og fellur hann vel inn í
karlmannlega hönnunina (þó deila
megi um hversu karlmannlegur
eyrnalokkur getur verið).
Að innan er bíllinn líka karl-
mannlegur, öðru nafni smekklaus.
Bláir og rauðir litir mælaborðsins
minna á einhvers konar Tókýó-drift
kappakstursbíl og silfurlita plastið
innsiglar örlög mælaborðsins. Þetta
er synd vegna þess að fyrir utan
litaval er mælaborðið aðgengilegt
og auðlesið, allir takkar nokkurn
veginn á réttum stað og allar útlínur
í samræmi við restina af bílnum.
Þjóðvegaakstur á D-Max er, eins
undarlega og það hljómar, ánægju-
leg reynsla. Búið er að bæta ein-
angrun farþegarýmis frá fyrri
útgáfum þannig að bíllinn er hljóð-
látari. Þægilegt er að sitja í bílnum
þrátt fyrir að fjöðrunin sé svo stíf
að hinar fjölmörgu holur íslenskra
þjóðvega minna óþægilega á sig.
Það er hins vegar verð sem borgað
er með bros á vör fyrir burðargetu
D-Max en af henni er feikinóg.
Engum dylst að D-Max er beint
nær eingöngu gegn Toyota Hilux.
Ekki þarf að líta lengra en á auglýs-
ingar og heimasíðu Isuzu: „Ef þú
ert að bíða eftir einhverjum öðrum
pallbíl (nefnum engin nöfn en segj-
um til dæmis að það byrji á H-i og
endi á -lux) ertu að sóa tíma þínum.“
Þegar kemur að útliti og aksturs-
eiginleikum dæmir hver fyrir sig
og því felst eini óhyggjandi saman-
burðurinn í tölum. Hilux er kraft-
meiri í hestöflum talið (171 á móti
163), D-Max hefur hins vegar sigur-
inn í togi (360 á móti 343 Nm), og
burðargeta D-Max er meiri, 1.030
kg á móti 885 kg Hilux. Mesti mun-
urinn liggur þó í verðinu, en þar
hefur D-Max töluvert forskot. Nóg
um það. Toyota er Toyota og Isuzu
er Isuzu með öllum kostum og göll-
um sem merkjunum fylgja.
Burtséð frá öllum samanburði er
D-Max ágætis bíll, svolítið grófur,
en fyrst og fremst á fínu verði. Þá
er bara að fá sér hund og byssu, en
þeir hjá Ingvari Helgasyni geta
örugglega látið derhúfu fylgja.
tryggvi@frettabladid.is
ISUZU D-MAX
Vél: 3,0 lítra dísil
163 hö / 360 Nm
Þyngd: 1.920 kg
Meðaleyðsla: 7,5 l/100 km
Verð prufubíls: 2.790.000 kr
Verð frá: 2.690.000 kr
Plús:
Verð
Eyðsla
Mínus:
Útlit mælaborðs
Lítið úrval af gerðum
Aðrir sem vert er að skoða:
Toyota Hilux
Ford Ranger
Musso Sports
Burðargeta á góðu verði
Isuzu D-Max er tiltölulega ódýr, virkar traustur og er fullfær í torfærurnar. Fjöðrunin gerir það þó að verkum að hann verður
óstöðugur í torfærum á mikilli ferð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Mælaborðið í D-Max er hannað með
hagkvæmnissjónarmið að leiðarljósi.
D-Max kostar 2.790.000 krónur sjálfskiptur og fyrir um 3,4 milljónir fæst hann upp-
hækkaður á 32“ dekkjum. Það verður að teljast nokkuð gott verð.
Láttu okkur sandblása og pólýhúða felgurnar í hvaða
lit sem er með Epoxy grunn, Polyester lit og Acryl glæru.
Það verður ekki sterkara!
Viltu lengri
endingu?
Smiðjuvegi 1 • s. 544-5700 • www.polyhudun.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI