Fréttablaðið - 21.02.2007, Qupperneq 30
21. FEBRÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR8 fréttablaðið 6000 snúningar
Fiat hefur ákveðið að breyta merki
sínu og er hinn nýi Fiat Bravo
fyrsti bíllinn til að bera merkið.
Merkjabreytingin er liður í ímynd-
arherferð Fiat sem á síðustu árum
hefur átt undir högg að sækja.
Stimpillinn sem Fiat hefur á
sér er að þar séu á ferð fallegir en
um leið óáreiðanlegir bílar. Fyrir
um tveimur árum lofuðu þeir bót
og betrun og samfara því var farið
í allsherjar endurskoðun þar sem
gæðamál fyrirtækisins voru
tekin í gegn. Þetta er að
skila sér og gengur
Fiat mun betur að
selja bíla sína og
var til dæmis Fiat
Grande Punto
meðal söluhæstu
bíla Evrópu á síð-
asta ári.
Einn þeirra bíla
sem boða bjartari tíð hjá
Fiat er Bravo. Bíllinn var
kynntur í Róm um síðustu mán-
aðamót og á að sameina ítalska
fágun, vandað val á hráefni og
nýfengna áherslu á notagildi. Bíll-
inn leysir af hólmi hinn einkar
óspennandi Fiat Stilo sem Fiat tap-
aði ómældum fjárhæðum á. Til að
gera hlutina enn meira spennandi
var Bravo flýtt á markað og var
þróunartímabilið einungis 18 mán-
uðir, helmingi skemmra en gengur
og gerist með nýja bíla.
Af myndunum að dæma er
útlitið á bílnum eitt það flottasta
sem komið hefur frá Fiat í
langan tíma. Boðið verð-
ur upp á bílinn með 90
til 150 hestafla
vélum og ef þær
heilla til jafns á
við útlitið er hér á
ferð bíll sem ætti
að höfða til breiðs
hóps bílaáhuga-
manna. - tg
Nýtt merki og nýr bíll
frá endurfæddu Fiat
Fiat ætlar Bravo stóra hluti. Miðað við útlit bílsins gætu þeir vel náð markmiðum
sínum.
Nýtt merki Fiat-samsteypunnar. Merkið
á að tákna að nú sé mikill uppgangstími
fram undan.
Siggi Baldursson rekur versl-
unina Kattabúðir á Akureyri.
Þar fæst ýmis búnaður og
klæðnaður fyrir áhugamenn
um mótorsport og útivist, en
meðal þess sem Siggi flytur
inn eru Raider Extreme Buggy
bílarnir.
„Ég rakst á þennan bíl á sýningu
úti á Ítalíu fyrir rúmu ári síðan. Ég
sá strax að hönnunin hentaði
íslenskum aðstæðum og að hann
fengist götuskráður, sem er aðal-
málið. Þessir bílar eru smíðaðir í
Kína en hönnunin er amerísk. Það
koma 25 bílar á næstu mánuðum,
en ég er kominn með einn sýning-
arbíl,“ segir Siggi Baldursson hjá
Kattabúðum á Akureyri. Hann
segir viðtökurnar hafa verið góðar
og margir séu áhugasamir um
þessa gerð bíla.
„Afgreiðslutíminn er um 6 til 8
vikur, ef þeir eru ekki til hér hjá
okkur. Bíllinn kostar 1.400 þúsund,
götuskráður og fylgir með heill
gangur af torfærudekkjum á felg-
um. Það er hægt að fá 70 prósenta
bílalán á þessa bíla. Þeir sem hafa
áhuga á svona bílum geta heimsótt
vefsíðuna mína, www.motul.is, en
þar eru allar helstu upplýsingar
um bílinn og vélina í honum. Þetta
er mjög virk síða fyrir þá sem hafa
áhuga á útivist af þessu tagi.“
Siggi segir bílinn hugsaðan sem
útitæki. „Það er mjög góð fjöðrun í
bílum, fjögurra punkta belti og
fimm gíra kassi auk bakkgírs.
Hann er því tilvalinn jafnt til
fjallaferða sem og í vinnuna á
sumrin. Hann passar fyrir alla,
jafn ungt fólk nýkomið með bíl-
próf sem gamla fjallajaxla.“
Siggi stefnir á mikið ferðalag á
þarnæsta ári ásamt félögum
sínum, en þeir hyggjast halda til
Sjanghæ í Kína þar sem þeir ætla
að sækja nokkra bíla af þessari
gerð og keyra þá heim til Íslands.
Ferðinni er heitið gegnum Rúss-
land, Finnland og Svíþjóð til Berg-
en í Noregi, þaðan sem þeir taka
Norrænu til Seyðisfjarðar og eru
fyrirhuguð ferðalok í Aðalstræti á
Akureyri.
„Ég er í sambandi við þekktan
rússneskan fjallgöngumann, sem
ætlar að setja upp leiðina fyrir
okkur í sínu heimalandi. Við gerum
ráð fyrir að þessi ferð taki um tvo
mánuði en ágúst til september er
víst besti tíminn að sögn heima-
manna. Við erum að gera heima-
síðu ferðarinnar og hún verður á
www.extreme.is.“
Nú er unnið að skráningu bíls-
ins hjá Umferðarstofu og stefnir
Siggi að því að sýna hann á sleða-
hátíð við Selhótel í Mývatnssveit
dagana 9. til 11. mars. „Hann verð-
ur þar á ísnagladekkjum. Þeir sem
hafa áhuga geta komið þangað og
spreytt sig á ísnum,“ segir Siggi
glaður í bragði.
hnefill@frettabladid.is
Virkar bæði á fjöllum og innanbæjar
Siggi mun keyra Buggy-bíl frá Sjanghæ til Akureyrar. Ferðin tekur um tvo mánuði og verður hægt að fylgjast með ferðalaginu á
www.extreme.is.
Vélin er kraftmikil en hljóðlát að sögn
Sigga.