Fréttablaðið - 21.02.2007, Síða 32
21. FEBRÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR10 fréttablaðið 6000 snúningar
Um næstu helgi verður frumsýnd-
ur nýr bíll frá KIA. Hann ber nafn-
ið cee‘d, en heitið á að tákna að nú
sé nýju fræi sáð sem síðar meir
verður að voldugu tré. Enginn
virðist hins vegar vita af hverju
úrfellingarkomman fékk að fylgja
með. Bíllinn er merkilegur fyrir
þær sakir fyrst og fremst að
honum fylgir sjö ára ábyrgð.
„Þetta er stórt og djarft skref
hjá KIA en fyrir þessu er þó full
innistæða,“ segir Óskar Páll Þor-
gilsson, þjónustustjóri hjá KIA
umboðinu. „Með breyttum áhersl-
um og stórauknum gæðakröfum í
hönnun og framleiðslu cee´d bíl-
anna teljum við okkur geta ábyrgst
að bílarnir verði bilanafríir í sjö
ár frá kaupdegi, eða sem nemur
150.000 km akstri,“ bætir þjón-
ustustjóri KIA við.
KIA rekur tólf framleiðslu- og
samsetningarverksmiðjur í sjö
löndum og þar eru smíðaðir alls
rúmlega 1,1 milljón bílar á ári
hverju. Hjá KIA vinna nú um
32.500 manns og árleg velta fyrir-
tækisins er um 16 milljarðar
Bandaríkjadala, en KIA er sá bíla-
framleiðandi sem er í hvað örust-
um vexti.
Nýi KIA cee´d fjölskyldubílinn
verður til sýnis hjá söluumboðum
KIA í Reykjavík, Reykjanesbæ, á
Akureyri, Selfossi og Reyðarfirði
dagana 24. og 25. febrúar næst-
komandi. Þess má geta að KIA
verður á árunum 2007 til 2014
opinber kostandi FIFA á heims-
vísu og ætti því að verða boltabíll
næstu ára.
Cee‘d með sjö ára ábyrgð
Cee‘d er fyrsti bíllinn frá KIA sem er
sérhannaður fyrir evrópskar aðstæður.
Á myndinni eru Óskar Páll Þorgilsson,
þjónustustjóri KIA, og Sigurður Pálmar
Sigfússon, vörustjóri KIA.
Cee‘d er ágætlega heppnaður bíll og með sjö ára ábyrgð ætti hann að veita helstu
keppinautunum harða keppni.
Mercedes-Benz C-Class er einn af
söluhæstu lúxusbílunum hérlend-
is og hefur lengi verið. Aðdáendur
línunnar urðu hinsvegar fyrir
nokkrum vonbrigðum með síðustu
útgáfu en sú nýja hefur allt að
bera til að endurvekja trúnna.
Betur heppnað innviði, meiri
kraftur, minni eyðsla (alltaf gaman
þegar maður fær meira fyrir
minna), og mun fallegra útlit er
það sem flestir gagnrýnendur
hafa að segja.
Í þetta skiptið er C-Class ekki
eins og minnkaður E-Class, heldur
S-Class sem fór í megrun. Sport
útgáfan með AMG pakkanum
lofar sérstaklega góðu með CLK/
CL grilli, 17 tommu álfelgum, CLK
DTM AMG framstuðara, og 200 til
270 hestafla vélum. Á mannamáli:
afskaplega fallegur bíll sem mögu-
lega verður á viðráðanlegu verði.
Fyrir þá sem vilja mikið fyrir
meira er hægt að bíða í nokkra
mánuði eftir 450 hestafla útgáfu.
Sértu virkilega áfjáður í eitthvað
einstakt má bíða aðeins lengur og
fá fjórhjóladrifna 204 hestafla dís-
ilútgáfa. -tg
Mercedes-Benz C-Class hefur verið breytt töluvert og eru útlitsbreytingarnar til hins
betra.
Hráefnisval í innviði C-Class er vandaðra en áður. Hvern langar að setjast inn og
prófa?
Mercedes-Benz C-
Class tekinn í gegn
Eigum til örfáa nýja dísel
pallbíla án hraðatakmarkara!
Sýnum verðlaunabílinn frá
GM Chevrolet Silverado 1500
Valinn Truck of the year af MotorTrend
Frábær hönnun
Meiri dráttargeta
V8 vél 5,3L sem skiptir yfir í V4 undir litlu álagi
315 hestöfl
Eyðsla frá einungis 10,51 lítar í langkeyrslu
Spól- og skriðvörn
Ekki hraðatakmarkari
Þarf ekki meirapróf
verslun
verkstæði
sérpantanir
smurstöð.