Fréttablaðið - 21.02.2007, Qupperneq 47
18 19 20 21 22 23 24
Krakkarnir voru með á nótunum í
sviðsetningu Bernds Ogrodnik á
sögunni góðkunnu um Pétur og
fórnarlamb hans, úlfinn. Í hvert
sinn sem Bernd leitaði til þeirra
voru svör á reiðum höndum. Þau
sátu fremst í salnum í Kúlunni á
sessum meðan eldri gestir sátu
aftar og skemmtu sér ekki síður.
Það er erfitt að komast hjá altek-
inni hrifningu í grennd við lista-
mann eins og Bernd: allar brúður
sínar smíðar hann af stórkostlegu
listfengi, vélvæðir þær með þráð-
um og klemmum, klæðir og skreyt-
ir í sínum persónulega stíl. Og svo
leiðir hann á sýnilegan og augljós-
an hátt fram söguna og nærgætn-
in, stillingin og tökin eru aðdáun-
arverð.
Það er ef til vill það sem gerir
það að verkum að krakkarnir fylgj-
ast svo vel með, jafnvel í sögu sem
þau þekkja vel til. Mátinn í svið-
setningunni er skammt frá þeirra
eigin iðjum í leik með brúður og
önnur verkfæri í leik dagsins:
minn gerir þetta og þá gerir þinn
… eins og þau segja gjarnan. Sýn-
ingar Bernds eru þannig á sinn
hátt nánast eins og kennslustund
fyrir leikfælin börn.
Það er eitt af merkilegustu
nýmælum í stjórnartíð Tinnu
Gunnlaugsdóttur að koma brúðu-
sýningum af stað á gamla litla
sviðinu í Húsi Jóns Þorsteinssonar.
Aðkoma er nú skreytt myndum úr
barnasýningum Þjóðleikhússins
frá fornu fari. Hér á að gera ein-
hvers konar skjól fyrir leiksýning-
ar ætlaðar yngstu börnunum og
samferðamönnnum þeirra. Það er
afar mikilvægt að ná ungum börn-
um inn í leikhúsið með foreldrum
og frænkum. Það er gaman að fara
með börnum í leikhús.
Aðkoma Bernds að íslenskum
brúðusýningum á sér sögulega
vísun: það var Kurt Zier sem hóf á
ný brúðuhefðina hér og kenndi
Jóni E. Guðmundssyni. Þaðan lá
leið leikbrúðanna í sjónvarp, á
leikskóla og víðar. Brúðurgerð og
brúðunotkun ætti að vera skylda í
grunnskóla.
Sýningin á Pétri og Úlfinum er
fyrsta flokks og menn skulu hóp-
ast á hana sem til gleði.
Strákur veiðir úlf úr skóginum
Margir íslenskir leikhúsgestir
kannast við leikritið Bar par enda
hefur það í tvígang verið sýnt við
fádæma undirtektir hér á landi.
Nú á föstudaginn gefst enn á ný
kostur á að kynnast fjölskrúðugu
persónugalleríi Jims Cartwright
en þá verður ný uppfærsla gaman-
leiksins frumsýnd á skemmti-
staðnum Nasa við Austurvöll.
Sögusvið verksins er ónefndur
bar sem er frægur fyrir að „koma
fólki úr eða í pör“ . Áhorfendur
upplifa eina kvöldstund í lífi hjón-
anna sem eiga og reka staðinn en
einnig kemur við sögu fjöldi gesta
á öllum aldri. Hjónin virðast upp á
kant hvort við annað – hún daðrar
skammlaust við alla gestina og
drekkur út gróðann á meðan hann
reynir að hafa stjórn á hlutunum.
Skrautlegir og óvæntir gestir
setja strik í reikninginn og hafa
mikil áhrif á þau hjónin. Þegar
kemur að lokun bresta allar stíflur
með óumflýjanlegu uppgjöri hjón-
anna á skuggalegum harmleik for-
tíðarinnar. Öll hlutverkin fjórtán
eru leikin af kamelljónunum Steini
Ármanni Magnússyni og Guð-
laugu Elísabetu Ólafsdóttur en
þau eru með vinsælustu gaman-
leikurum þjóðarinnar. Þetta mun
vera í fyrsta skipti sem þau leika
saman á sviði en saman hafa þau
tekið þátt í gamanþáttunum Stelp-
unum á Stöð 2.
Leikritið Bar par sló fyrst í
gegn hérlendis fyrir tæpum
fimmtán árum hjá Leikfélagi
Akureyrar. Stuttu síðar sýndu
Guðmundur Ólafsson og Saga
Jónsdóttir verkið í kjallara Borg-
arleikhússins og gekk það þar um
langa hríð og var einnig ferðast
með sýninguna um landið.
Aðstandendur sýningarinnar
nú, auk leikaranna tveggja, eru
Vignir Jóhannsson leikmynda-
hönnuður og María Ólafsdóttir
búningahönnuður. Leikstjóri er
Gunnar I. Gunnsteinsson en fram-
leiðendur eru Jóhann Sigurðarson
og Hilmir Snær Guðnason.
Mikið er lagt upp úr því að
skapa huggulega stemningu í
gamla Sigtúni og munu gestir geta
setið til borðs og sopið veigar
sínar meðan á sýningunni stend-
ur.
Frumsýnt verður næstkomandi
föstudag kl. 20.
Óumflýjanleg uppgjör á bar
Íslenskt leikhúsfólk gerir það ekki
endasleppt þessa dagana – í Lond-
on er uppfærsla Þjóðleikhússins á
Pétri Gaut að fara á svið í Barbi-
can-leikhúsinu og nú berast fregnir
þess að Hið lifandi leikhús hyggist
gera strandhögg í Berlín.
Nýtt leikrit Andra Snæs Magna-
sonar og Þorleifs Arnar Arnarsson-
ar verður sýnt í hinu virta Maxim
Gorkí-leikhúsi í Berlín í næstu
viku. Verður íslenska sýningin
önnur tveggja gestasýninga þar í
ár og því mikill heiður fyrir
aðstandendur þess að fá svo gott
boð. Verkið, Eilíf hamingja, í leik-
stjórn Þorleifs Arnar, hefur hlotið
gríðargóðar viðtökur á Íslandi.
Uppselt hefur verið á allar sýning-
ar til þessa og hafa gagnrýnendur
keppst við að lofa það og uppfærslu
þess á litla sviði Borgarleikhússins.
Síðustu sýningar á Eilífri hamingju
á Íslandi fyrir ferðina út verða nú
um helgina en þær munu svo halda
áfram að ferðalaginu loknu.
Sýna hjá Gorkí Stefnumót
við Jökul
Leikfélagið
Snúður og snælda
Sýnir þrjá einþáttunga
eftir Jökul Jakobsson
Aðeins 5 sýningar
25.febrúar uppselt
Fim. 1.mars
Sun. 4.mars
Fim. 8.mars
Sun. 11.mars
Sýnt í Iðnó kl. 14.00
Miðapantanir
S. 562 9700
„DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“
DAGUR VONAR