Fréttablaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 72
KVEF? NEFÚÐI HÁLSTÖFLUR VERKJALYF FRUNSUKREM Það er engin ástæða til að láta sér líða illa. Komdu og fáðu ráðgjöf hjá okkur. Við hlustum! Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsu af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar framgang veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Berið Vectavir á frunsusvæðið á 2 klst fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við ofreynslu, kvef eða infl úensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfi ð ef að áður hefur komið fram ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir minnka og smittími styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfi nu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Otrivin nefúðinn og nefdroparnir innihalda xýlómetasólin sem vinnur gegn bólgu, nefstífl u og slímmyndun vegna kvefs og bráðrar bólgu í ennis- og kinnholum. Otrivin virkar fl jótt og áhrifi n vara í 6-10 klst. Otrivin getur valdið aukaverkunum, s.s. ertingu í slímhúð og sviðatilfi nningu. Einnig ógleði og höfuðverk. Otrivin má nota þrisvar á dag en ekki lengur en í 10 daga í senn. Varúð: Langtímanotkun Otrivin getur leitt til þurrks í nefslímhúð. Sjúklingar með gláku eða þeir sem hafa ofnæmi fyrir xýlómetasólin ættu ekki að nota Otrivin. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja lyfi nu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Strepsils töfl ur eru látnar renna í munni og leysast þar hægt upp. Þannig nást fram staðbundin sótthreinsandi áhrif í munni og koki.Auk þess hafa bragðefnin væg kælandi áhrif sem slá á ertingu.Venjulega er ein tafl a látin leysast hægt upp í munni á 2-3 klst fresti. Lyfi ð þarf venjulega að nota í 3-4 daga og stundum í allt að eina viku. Einnig má leysa upp 1-2 töfl ur í heitu vatni og drekka sem heitan drykk. Notkun lyfsins hefur engin áhrif á önnur lyf sem notuð eru samtímis. Ofnæmi eða ofnæmislík viðbrögð geta komið fyrir en eru afar sjaldgæf. Hver pakki af Strepsils inniheldur 24 munnsogstöfl ur, sem eru í hentugum þynnupakkningum. Hverri pakkningu fylgja viðurkenndar leiðbeiningar á íslensku um notkun lyfsins, sem gott er að kynna sér vel. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Voltaren Dolo® (díklófenak kalíum) 12,5 mg töfl ur. Notaðar við vægum eða frekar vægum verkjum, svo sem höfuðverk, tannpínu og tíðaþrautum. Verkar einnig hitalækkandi. Dragi ekki úr einkennum á nokkrum dögum, skal leita til læknis. Þeir sem eru með eða hafa haft sögu um maga- eða skeifugarnarsár eða skerta lifrarstarfsemi ættu að ráðfæra sig við lækni áður en lyfi ð er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalisýru, íbuprófen eða önnur bólgueyðandi lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voltaren Dolo®. Notið lyfi ð ekki á meðgöngu nema í samráði við lækni, en aldrei á síðasta þriðjungi meðgöngu. Leitið ráða læknis eða lyfjafræðings um milliverkanir við önnur lyf. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Breiðablik vann alla þrjá bikarmeistaratitlana sem voru í boði í fyrstu bikarkeppni í frjálsum innanhúss sem fram fór í Laugardal í gær. Breiðablik hlaut 98,5 stig í stigakeppninni, sameiginlegt lið Fjölnis og Ármanns varð í 2. sæti með 86 stig og ÍR-ingar komu síðan í 3. sæti með 83 stig. Breiðablik fékk 52,5 stig í kvennaflokki en ÍR var í 2. sætinu með 48 stig. Hjá körlunum fékk Breiðablik 46 stig og bæði sameiginlegt lið Fjölnis og Ármanns og HSÞ urðu jöfn í 2. sæti með 45 stig. Blikarnir Arnór Jónsson og Sigurbjörg Ólafsdóttir unnu báðar sínar greinar og höluðu því saman 24 stig fyrir bikarmeistar- ana. Fjölnismaðurinn Sveinn Elías Elíasson var maður dagins, vann tvær einstaklingsgreinar og tryggði sigurinn í 4 x 400 metra boðhlaupi á nýju Íslandsmeti. Sveinn setti auk þess drengjamet í stangarstökki. Þrefaldur sigur Það var boðið upp á spennandi leik í DHL-deild karla í gær þegar topplið Vals tók á móti Haukum. Hafnarfjarðarliðið skoraði jöfnunarmarkið 27-27 þegar fimmtán sekúndur voru eftir og það urðu úrslit leiksins, en það var Kári Kristján Kristj- ánsson sem átti lokaorðið. Valur náði yfirhöndinni í byrj- un og virtist vera að ná tökunum á leiknum. Þegar staðan var 9-6 hrundi hins vegar leikur liðsins og Haukar skoruðu sex mörk í röð. Haukar voru 13-11 yfir í hálf- leik. Munurinn milli liðanna var mest fjögur mörk og ungt lið Vals nýtti færin sín illa auk þess sem vörnin var slök. En liðið hélt sér alltaf í leiknum og með mikilli baráttu náði það að saxa á forskot Hauka sem voru að þreytast. Þegar tvær mínútur voru eftir jafnaði Valur leikinn og komst síðan yfir 27-26. Á lokamínútunni misheppnaðist sókn heimamanna með þeim afleiðingum að Haukar jöfnuðu metin. Þetta var því sveiflukenndur leikur í Laugar- dalshöllinni í gær. Markús Máni Michaelsson fór fyrir sókn Vals en besti leikmað- ur liðsins var markvörðurinn Ólafur Gíslason sem varði 21 skot. Hjá Haukum voru Kári Kristján Kristjánsson og Arnar Pétursson bestu menn. Sveiflur í Höllinni Íslendingaliðin tvö, Ciu- dad Real frá Spáni og Gummers- bach frá Þýskalandi, eiga góða möguleika á sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta eftir fyrri leiki sína í átta liða úrslitum í gær. Ciudad vann fimm marka sigur á heimavelli en Gum- mersbach gerði jafntefli á úti- velli. Ciudad Real vann Portland San Antonio 26-21 á heimavelli sínum en staðan var ekki vænleg hjá Ciu- dad Real í hálfleik en þeir voru þá fimm mörkum undir og í raun á leiðinni út úr Meistaradeildinni með sama áframhaldandi. Það var hins vegar ljóst frá upphafi seinni hálfleiks að Ólafur Stefánsson og félagar ætluðu að sýna af hverju þeir eru líklegir til þess að verja titilinn. Frábær vörn og skynsam- ur sóknarleikur sá til þess að Port- land sá ekki til sólar eftir hlé. Ciudad Real skoraði fimm fyrstu mörk seinni hálfleiks og tók síðan frumkvæðið og vann leikinn með fimm mörkum. Ólafur skoraði úr fimm mikilvægum víta- köstum í leiknum og átti þátt í öllum mörkunum þegar Ciudad breytti stöðunni úr 17-17 í 20-17 en eftir það var sigurinn ekki í hættu. Ólafur skoraði þá úr tveimur vítum og átti síðan stoðsendingu á Mirza Dzomba. Ciudad Real vann seinni hálf- leikinn því með tíu mörkum (17-7) og hefur með sér ágætt veganesti í seinni leikinn um næstu helgi. Ef marka má lætin í lokin þar sem Talent Dujshebaev, þjálfari Ciu- dad, fékk að líta rauða spjaldið þá verður ekkert gefið í seinni leikn- um en Ciudad Real vann einmitt Portland-liðið í úrslitaleik Meist- aradeildarinnar í fyrra. Ólafur átti ágætan leik en skoraði þó aðeins af vítalínunni þar sem hann nýtti 5 af 6 skotum sínum. Gummbersbach gerði 26-26 jafntefli við Valladolid á Spáni en hefði getað náð betri úrslitum því liðið var með tveggja marka for- skot þegar fimm mínútur voru eftir. Gummersbach lenti líka í vandræðum í fyrri hálfleik eins og Ciudad Real og var mest fjórum mörkum undir í lok fyrri hálf- leiks. Allir íslensku strákarnir kom- ust á blað, Guðjón Valur Sigurðs- son skoraði 7 mörk úr 10 skotum, Róbert Gunnarsson var með 3 mörk úr 4 skotum og Sverre Jak- obsson skoraði úr eina skoti sínu. Guðjón Valur var sérstaklega öfl- ugur á lokasprettinum en fjögur marka hans komu á síðustu 10 mínútum leiksins. Í hinum viðureignunum er Flensburg komið með annan fót- inn í undanúrslit eftir 10 marka heimasigur á Barcelona en það er hins vegar mikil spenna í viður- eign Veszprém og Kiel eftir þriggja marka tap þýska liðsins í Ungverjalandi. Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real unnu fimm marka sigur á Portland San Anontio og Gummers- bach gerði jafntefli á útivelli við Valladolid í fyrri leikjum liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.