Fréttablaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 25
Við óskum eftir rösku og áhugasömu fólki til afleysinga hjá Norðuráli í sumar.
Störfin eru fjölbreytt, tækifæri gefast til að öðlast mikilvæga starfsþekkingu og góð laun eru í boði. Um er að ræða vaktavinnu í:
Kerskála Steypuskála Skautsmiðju Vöruhúsi
Einnig vantar afleysingafólk til vinnu við ræstingar (dagvinna og helgarvinna)
Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is
Norðurál
Hjá okkur starfa nú um 400 manns að margvíslegum verkefnum. Norðurál framleiðir árlega 220.000 tonn af áli til útflutnings og unnið
er að stækkun álversins sem felur í sér að framleiðslugetan verður aukin í 260.000 tonn á þessu ári.
Sumarstörf hjá Norðuráli !
Hvernig sækir þú um?
Tekið er við umsóknum og fyrirspurnum í síma 430 1000.
Þú getur líka sótt um á vef fyrirtækisins: www.nordural.is,
sent umsókn þína á netfangið umsokn@nordural.is eða
póstlagt umsóknina, merkta: Sumarstörf.
Umsækjendur þurfa að vera:
18 ára eða eldri
samviskusamir og duglegir
jákvæðir og hressir í samskiptum
tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni
Jafnrétti
Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla
og kvenna til starfa hjá Norðuráli.
Starfsandi
Við leggjum mikið upp úr góðum starfsanda
og tökum vel á móti þér.
Umsóknarfre
stur
er til 15. ma
rs.
Framleiðslusvið Orkuveitu Reykjavíkur óskar eftir að ráða:
Orkuveita Reykjavíkur er framsækið
þjónustufyrirtæki sem aflar og dreifir vistvænni
orku á sem hagkvæmastan hátt og í sátt við
umhverfið.
Á þjónustusvæði fyrirtækisins býr meira en
helmingur íslensku þjóðarinnar.
Stefna Orkuveitunnar er að veita viðskiptavinum
sínum bestu mögulegu þjónustu og sjá þeim fyrir
ódýrri orku sem framleidd er úr endurnýjanlegum
íslenskum orkulindum. Þannig stuðlar fyrirtækið að
aukinni notkun hreinnar innlendrar orku og leggur
um leið sitt af mörkum til nýsköpunar og framfara í
landinu.
Orkuveitan er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður
fólks með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að
vera í fremstu röð hvað snertir öryggi og vinnu-
umhverfi og möguleika starfsfólks við að samræma
vinnu og fjölskylduábyrgð eins og kostur er.
Það er stefna Orkuveitu Reykjavíkur að auka hlut
kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum innan
fyrirtækisins.
Fyrirtækið er:
Sveigjanlegt, það lagar sig að breyttum aðstæðum
Sýnir frumkvæði og er opið fyrir nýjungum
Sækir fram af eldmóði
Traust og starfar í sátt við umhverfið
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/O
R
V
3
61
59
0
2/
07
Vélaverkfræðingur/vélatæknifræðingur
Í deildinni starfa verk- og tæknifræðingar, sem hafa sérþekkingu á búnaði og
tækjum Framleiðslusviðs. Þeir annast fjárhagsáætlanagerð, skipuleggja viðhalds-
og framkvæmdaverkefni og stýra þeim.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Umsjón með uppbyggingu og þróun dælustöðva hitaveitu
• Umsjón með virkjun lághitasvæða
• Gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlana fyrir hitaveitukerfi
• Hagkvæmnirannsóknir og bestun kerfa
• Forsendugerð og gangsetning verkefna
• Eigendahlutverk á verkefnum Framleiðslusviðs tengdum búnaði dælustöðva
og flutningsæða
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í vélaverk- eða vélatæknifræði
• Starfsreynsla og þekking á hitaveitu
• Góð tölvukunnátta
• Færni í mannlegum samskiptum
• Metnaður, áhugi og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Skipulagshæfileikar og þekking á verkefnastýringu
Umsjón með starfinu hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is)
og Guðlaugur Arnarsson (gudlaugur.arnarsson@capacent.is) hjá Capacent
Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 4. mars nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á
heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is