Fréttablaðið - 03.03.2007, Page 10

Fréttablaðið - 03.03.2007, Page 10
Ivan Simonovic, fulltrúi Króatíu hjá Alþjóða- dómstólnum í Haag, segir að hugsanlega muni Króatía falla frá ákæru á hendur Serbíu fyrir þjóðarmorð, eftir að dómur er fallinn í sambæri- legu máli Bosníu á hendur Serbíu. Dómstóllinn sýknaði Serbíu af þjóðarmorðsákæru Bosníu- manna, en sagði jafnframt að Serbar hefðu brugðist skyldum sínum með því að gera ekki allt sem þeir gátu til að koma í veg fyrir þjóðarmorðið í Srebreni- ca árið 1995. Simonovic segir að Króatar muni líklega reyna að semja beint við Serba um bætur, en láta því aðeins reyna á dóms- málið að engir samningar takist. Króatar vilja nú semja við Serba Upplýsingavefur vegna alþingiskosninganna 12. maí opnaði í gær. Vefurinn, sem er í eigu og umsjón dómsmála- ráðuneytisins veitir hagnýtar upplýsingar um kosningarnar. Á vefnum er að finna fróðleik sem á að nýtast bæði almennum- kjósendum og stjórnmálasam- tökum. Ennfremur er fjallað um lög og reglugerðir, framkvæmd kosninga og birtar tölulegar upplýsingar fyrir alla sem vinna að kosningunum. Kjósendur geta nýtt sér vefinn þegar nær dregur kosningum til að fá upplýsingar um framboðslista og kjörstaði. Slóðin er kosning.is Fróðleikur um kosningar Mótmælendur í Kaupmannahöfn létu til skarar skríða á ný í gærkvöldi, daginn eftir að lögreglan hafði rýmt Ung- dómshúsið á Norðurbrú, sem ára- tugum saman hefur verið vinsæll samkomustaður unga fólksins í Kaupmannahöfn. Mikil átök urðu þar í fyrra- kvöld og var búist við að hama- gangurinn yrði ekki minni í gær- kvöldi. Mótmælendur voru staðráðnir í að ná húsinu aftur á sitt vald. „Það er samt búið að vera mjög rólegt hérna í dag, en ég hugsa að það sé lognið á undan storminum,“ sagði Guðrún Ísaksdóttir hár- greiðslukona í Kaupmannahöfn þegar Fréttablaðið náði tali af henni síðdegis í gær. Guðrún starfar ásamt fjórum öðrum Íslendingum á hárgreiðslustofunni Street Cut við Nørrebrogade, sem er skammt frá Ungdómshúsinu á Jagtvej 69 sem lætin snúast öll um. „Við erum í miðri baráttunni. Það var bál hérna fyrir utan í gær- kvöldi,“ segir Guðrún. „Það var leitað á einum fyrir framan glugg- ann hjá okkur. Hann var með mót- mælaspjald grey maðurinn og var bara tekinn og þreifaður upp og niður.“ Annars hafði starfsfólkið á hár- greiðslustofunni lítið orðið vart við átökin, hvorki á fimmtudaginn né í gær: „Við lokum klukkan fjög- ur, en klukkan fimm hófust mót- mælin og þá varð allt vitlaust.“ Í gærmorgun hófust aðgerðir á því að nokkrir mótmælendur lögðu undir sig höfuðstöðvar Sósí- aldemókrataflokksins í Kaup- mannahöfn. Tveimur tímum síðar yfirgáfu þeir flokksskrifstofurnar friðsamlega. Lítið bar síðan til tíðinda fyrr en undir kvöldið þegar mótmælendur söfnuðust saman klukkan 19 í Folk- ets Park. Klukkan 22 hófst síðan fjöldaganga frá Gamlatorgi á Strik- inu með lifandi tónlist og var haldið þaðan í áttina að Norðurbrú, aðal- vettvangi átakanna. Loks var plan- ið að safnast saman við Sankt Hans Torv á miðnætti og fylgja þaðan „græna fánanum“ á vit frekari aðgerða, eins og það var orðað á heimasíðu mótmælenda. „Annars er merkilegt að yfir- leitt í kringum þessa stóru götu- bardaga gengur lífið hérna sinn vanagang,“ sagði Jón Runólfsson, forstöðumaður í Jónshúsi í Kaup- mannahöfn, sem hafði fylgst grannt með fréttum af atburðun- um þegar Fréttablaðið talaði við hann í gær. „Maður getur jafnvel séð konu á hjóli fara sína leið í gegnum mannfjöldann eða ein- hver með barnavagn. Það er mjög danskt.“ Staðráðnir í því að ná Ungdómshúsinu Lögreglan í Kaupmannahöfn hafði mikinn viðbúnað í gær og reiknaði með átökum í gærkvöldi og nótt. Mótmælendur eru staðráðnir í því að ná Ungdóms- húsinu aftur á sitt vald. Frekari mótmælaaðgerðir eru boðaðar næstu daga. Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða þrítugum karlmanni rúmar sexhundruð þúsund krónur í skaðabætur. Hluti af hægra eyra mannsins var bitið af honum í áflogum í miðbæ Reykjavíkur í febrúar árið 2004. Ekki er vitað hver beit í eyra mannsins. Í slíkum tilfellum er íslenska ríkið skaðabótaskylt. Íslenska ríkið vildi sýknu af kröfu mannsins því talið er að hann hafi meðal annarra átt upptök að slagsmálunum. Dómurinn féllst ekki á þetta en jánkaði þessum rökum þegar manninum voru dæmdar lægri skaðabætur en þær rúmlega fjórtánhundruð þúsund krónur sem hann fór fram á. Hægra eyrað bitið af manni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.