Fréttablaðið - 03.03.2007, Síða 12
Íslenskar rannsóknir benda
til þess að hlutfallslega
fleiri íslensk börn greinist
með nýrnasteina en börn í
flestum öðrum vestrænum
löndum. Tíðni nýrnasteina
meðal fullorðinna Íslend-
inga er hins vegar svipuð
og í öðrum vestrænum
samfélögum. Á undanförn-
um árum hafa orðið miklar
framfarir á skilningi manna
á orsökum nýrnasteina en
vitað er að þarna er á ferð-
inni mjög flókið samspil
erfða og umhverfisþátta
þar sem mataræði leikur
veigamikið hlutverk.
Hópur íslenskra vísindamanna
undir forystu Viðars Eðvarðssonar
barnalæknis hefur unnið að braut-
ryðjendarannsóknum á þessu sviði
hérlendis undanfarin ár og á dög-
unum hlaut Viðar viðurkenningu
úr Verðlaunasjóði Óskars Þórðar-
sonar læknis fyrir rannsóknir á
steinsjúkdómi í nýrum. „Það er
auðvitað mikill heiður að fá þessa
viðurkenningu og hvetjandi eftir
alla þá gríðarlegu vinnu sem búið
er að leggja í þessar rannsóknir,“
segir Viðar og leggur áherslu á að
þeir félagar hans Runólfur Páls-
son, yfirlæknir nýrnalækninga á
LSH, og Ólafur Skúli Indriðason,
sérfræðingur í nýrnalækningum,
eigi ekki síður sinn þátt í þeim
árangri sem náðst hafi.
Steinsjúkdómur í nýrum eða
nýrnasteinar eins og fólk þekkir
þetta vandamál í daglegu tali herj-
ar einkum á hinn hvíta kynstofn
mannkyns, óháð búsetu, og á sér
því erfðafræðilegar skýringar.
Hugmyndin að því að rannsaka
erfðafræðiþáttinn að baki auknu
kalsíum í þvagi og myndunar
nýrnasteina meðal Íslendinga
kviknaði hjá Viðari er hann var í
þjálfun í nýrnalækningum barna í
Bandaríkjunum 1992-1995. Hann
og Runólfur Pálsson höfðu einnig
rætt þessi mál á námsárum í
Bandaríkjunum en þarna mótaðist
hugmyndin. „Við settum síðan
saman formlegan rannsóknarhóp
kringum aldamótin og það sem við
lögðum áherslu á var nýrnasteinar
og síðan langvinnir nýrnasjúk-
dómar í framhaldi af því,“ segir
Viðar.
Þeir byrjuðu á að gera faralds-
fræðirannsókn til að átta sig á
hversu algengir þessir sjúkdómar
væru á Íslandi og hvort þeir legð-
ust mismunandi á karla og konur,
og kortlögðu útbreiðslu og alvar-
leika þeirra. „Þannig höfum við á
síðustu árum safnað upplýsingum
um liðlega 6.000 Íslendinga sem
greinst hafa með nýrnasteina allt
frá árinu 1984 og höfum borið þær
saman við sambærilegar erlendar
upplýsingar.“
Niðurstöður rannsóknanna benda
eins og áður segir til þess að
algengi nýrnasteina í fullorðnum
Íslendingum sé svipað og í öðrum
vestrænum samfélögum. „Það sem
hins vegar kom okkur á óvart var
að nýgengi sjúkdómsins í íslensk-
um börnum er með því hæsta sem
greinst hefur á Vesturlöndum ef
miðað er við sambærilegar erlend-
ar rannsóknir.“
Ástæður þessa eru ekki fylli-
lega ljósar að sögn Viðars en hann
segir líklegast að erfðafræðiþátt-
urinn ráði miklu, það er að mynd-
un nýrnasteina sé ættlæg. „Of
mikið kalsíum í þvagi eykur hættu
á myndun nýrnasteina hjá bæði
börnum og fullorðnum en þessi
áhættuþáttur er algengur hjá
íslenskum börnum. Niðurstöður
fjölda erlendra rannsókna benda
eindregið til þess að of mikið kals-
íum í þvagi sé ættlægt vandamál
sem í mörgum fjölskyldum erfist
ríkjandi.“
Þá vakti það einnig athygli vís-
indamannanna að algengi nýrna-
steina virðist hafa aukist umtals-
vert hér á landi síðustu 20-25 árin,
sem er svipað því sem lýst hefur
verið í fleiri vestrænum samfélög-
um. Telur Viðar líklegt að breytt
neyslumynstur samfélagsins hafi
þarna mikið að segja. „Ýmislegt
bendir til þess að tengsl séu á milli
aukinnar stærðar matarskammta,
gríðarlegrar aukningar á neyslu
sætra gosdrykkja, ofþyngdar og
aukinnar neyslu á salti og hitaein-
ingum annars vegar og myndunar
nýrnasteina hins vegar. Sama gild-
ir reyndar einnig um ýmsa aðra
sjúkdóma svo sem sykursýki.“
Ekki er ljóst að sögn Viðars
hvernig ofþyngd og aukin neysla
hitaeininga eykur hættu á nýrna-
steinum en vitað er að truflanir á
virkni insúlíns auka hættu á stein-
myndun í nýrum. Flestir sjúkling-
ar með nýrnasteina eru hins vegar
í eðlilegum holdum.
Í tengslum við rannsóknir sínar á
um 6.000 Íslendingum sem greinst
hafa með nýrnasteina hafa Viðar
og félagar hans fundið um það bil
þrjátíu sjúklinga með gríðarlega
sjaldgæfan efnaskiptasjúkdóm
sem leiðir oftast til myndunar
nýrnasteina og jafnvel nýrnabil-
unar. Efnaskiptasjúkdómurinn var
sem sagt þekktur og lækningin við
honum sömuleiðis en vandinn fólst
í því að erfiðlega gekk að greina
sjúklingana. „Með þau rannsókn-
argögn sem við höfðum aflað
okkur gátum við farið kerfisbund-
ið gegnum ákveðnar fjölskyldur
og fundið þá einstaklinga sem voru
í augljósri áhættu með að fá nýrna-
steina og jafnvel nýnabilun. Þetta
fólk var síðan sett í meðferð og
þannig tókst í nánast öllum tilfell-
um að koma í veg fyrir að það
veiktist. Þröstur Laxdal barna-
læknir vann mikið frumkvöðla-
starf á þessu sviði en þessi hluti
rannsóknarinnar var að miklu leyti
byggður á starfi hans.“
Í framhaldi af niðurstöðum rann-
sókna sinna hafa Viðar og félagar
hans í auknum mæli beint sjónum
að því að finna ástæður þess að
fólk fær nýrnasteina. „Okkur lang-
ar til að nýta það fé sem fylgir við-
urkenningunni sem við fengum til
að undirbúa rannsókn á erfðafræði
nýrnasteina. Slík erfðafræðirann-
sókn er að minnsta kosti tíu ára
langtímaverkefni þó í raun megi
segja að rannsóknum sem þessum
ljúki aldrei.“
Þeir hafa þegar unnið ýtarlega
rannsóknaráætlun og ætla að
sækja um styrk til bandarísku heil-
brigðismálastofnunarinnar, The
National Institute of Health, en
rannsókn af þessu tagi kostar gríð-
arlega peninga. „Við ætlum að
vinna þetta í nánu samstarfi við
þekkta bandaríska vísindamenn
frá University of Chicago, New
York University, Case Western
Reserve University í Ohio og Uni-
versity of Pennsylvania. Þetta er
hópur sem við höfum náð að setja
saman en þetta er eina leiðin til að
gera rannsóknir sem þessar. Það
skiptir öllu að geta fengið stóra
fjármögnun úr samkeppnissjóði
erlendis.“
Um líkurnar á því að þeim takist
að hljóta þennan styrk segir Viðar
að vitað sé að bandaríska heil-
brigðismálastofnunin vilji fá góða
styrkumsókn á þessu tiltekna
sviði, en rannsókn sem þessi hefur
ekki áður verið gerð. „Við vitum að
fulltrúar stofnunarinnar eru mjög
hrifnir af hugmyndum okkar, en
valinn hópur bandarískra vísinda-
manna með sérþekkingu á þessu
sviði ræður hins vegar hvaða
umsóknir eru styrktar hverju
sinni, ekki bara stofnunin sem slík.
En góð umsókn á alltaf möguleika
og við höfum vandað mjög til
verksins.
Það er frekar óvenjulegt að
styrkumsókn fari í gegn í fyrstu
umferð, ef hún kemur til greina
koma yfirleitt einhverjar spurn-
ingar og svo lagfæringar í kjölfar-
ið og síðan styrkur. Þetta kemur í
ljós í haust en okkur dreymir um
að fá þessa fjármögnun, það væri
afar gott fyrir okkar rannsókna-
hóp að fá erlendan styrk af þessu
tagi,“ segir Viðar Eðvarðsson
barnalæknir.
Mataræði hefur áhrif á myndun nýrnasteina
Of mikið kalsíum í þvagi eykur hættu á myndun nýrnasteina
hjá bæði börnum og fullorðnum en þessi áhættuþáttur er
algengur hjá íslenskum börnum