Fréttablaðið - 03.03.2007, Síða 19
ÍFréttablaðinu í gær birtist frétta-skýring með fyrirsögninni að
misnotkun á lyfseðilsskyldum lyfj-
um hefði aukist gríðarlega. Tilvitn-
unin er í skýrslu alþjóðlega fíkni-
efnaeftirlitsins og á við ástandið í
heiminum.
Hins vegar tekur blaðið dæmi af
lyfjunum rítalíni og amfetamíni
hér á landi. Rétt er að þau lyf eru
misnotuð, en sú misnotkun stafar
að langmestu leyti af ólöglegum
innflutningi, á svipaðan hátt og fólk
flytur inn hass, kókaín og önnur
ólögleg vímuefni.
Með lyfjagagnagrunni Land-
læknisembættisins er hægt að
fylgjast nákvæmlega með útskrift-
um lækna á öll lyf. Staðreyndin er
sú að fjöldi einstaklinga sem fær
útskrifað rítalín hefur minnkað
stórlega undanfarin ár, en rítalín er
það form metýlfenídats, sem er
helst misnotað. Hér ber að geta
þess að virka efnið í rítalíni (met-
hylphenydat) er nú komið í forða-
töflur, sem fíklar sækjast ekki í ef
þeir eiga völ á öðru. Fjöldi einstakl-
inga árið 2003, sem notaði „hreint“
rítalín sem slíkt var 2.124, en 1.011
árið 2006 og hafði því fækkað um
52%. Samanlagður fjöldi þeirra
einstaklinga sem nota annað hvort
rítalín eða forðatöflur hefur hins
vegar lítið breyst undanfarin þrjú
Er aukning á notkun „læknadóps“ á Íslandi?
ár, en þessi lyf
eru notuð við
ofvirkni og
athyglisbresti
með góðum
árangri.
Skammturinn
er þá 100 sinn-
um minni en
þeir sem fíklar
nota.
Hvað varð-
ar amfetamín
hefur það verið skrifað út í mjög
litlum mæli af læknum undanfarin
ár. Árið 2003 skrifuðu læknar hér á
landi það út fyrir 131 einstaklinga,
en aðeins 98 einstaklinga árið 2006,
sem er 25% minnkun. Amfetamín
er notað á fullkomlega eðlilegan
hátt við einstaka sjaldgæfa sjúk-
dóma, einkum drómasýki, sem
veldur því að fólk sofnar við óeðli-
legar aðstæður. Sjúkdómur þess
fólks á ekkert skylt við fíkn, en
lyfið gerir því mikið gagn.
Baráttan við misnotkun lyfja,
bæði lyfja frá læknum og lyfja sem
flutt eru inn ólöglega, heldur áfram.
Mikilvægasta fréttin er sú að allt
bendir til þess að við séum að ná all-
góðum árangri, en baráttan heldur
áfram. Gleymum því hins vegar
ekki að sum þessara lyfja eru notuð
á fullkomlega löglegan hátt af
sjúklingum sem hafa af því mikið
gagn. Mikilvægt er að henda ekki
barninu út með baðvatninu.
Höfundur er landlæknir.
Fjölmiðlar greina frá því að Óli H. Þórðarson hafi látið af störf-
um sem formaður Umferðarráðs.
Við það verða tímamót í umferðar-
málum lands-
manna.
Fyrsti formaður
Umferðarráðs var
Sigurjón Sigurðs-
son lögreglustjóri
og gegndi sá mæti
maður því starfi í
fjórtán ár. Fannst
honum þá nóg
komið og fór þess á
leit við mig að ég tæki við því emb-
ætti. Tók hann í því sambandi sér-
staklega fram að ég þyrfti ekki að
hafa miklar áhyggjur af daglegum
störfum ráðsins en þau væru undir
stjórn ágæts manns, Óla H. Þórð-
arsonar. Þann mann þekkti ég ekki
en fyrir áeggjan Sigurjóns tók ég
starfið að mér og gegndi því næstu
sjö árin. Hófst þar mikil og ánægju-
leg samvinna við þann prýðismann
Óla H. Þórðarson, sem aldrei bar á
skugga öll þau ár.
Ólafur Jóhannesson dómsmála-
ráðherra skipaði Óla framkvæmda-
stjóra Umferðarráðs árið 1978.
Hann gegndi þeirri stöðu til 2006
en var jafnframt skipaður formað-
ur Umferðarráðs árið 2002. Þessi
störf er hann nú að kveðja en
starfsferill Óla að umferðarmál-
um er orðinn langur og farsæll.
Ótal mörg eru þau málefni sem
ráðið hefur tekið til meðferðar og
beitt sér fyrir á þessu tímabili
undir stjórn Óla. Er mér þá efst í
huga barátta ráðsins fyrir notkun
bílbelta og notkun ökuljósa allan
sólarhringinn, ótal þættir Óla í
útvarpi, þrotlaus áróður hans fyrir
bættri umferð og varúð á vegum
og loks samvinnan við Alþjóða-
samband umferðarráða PRI og
Umferðarráð á Norðurlöndum.
Fyrir samvinnuna í Umferðar-
ráði er ég Óla H. Þórðarsyni hjart-
anlega þakklátur og fyrir störf
hans þar tel ég að við vegfarendur
akandi og gangandi stöndum
honum í þakkarskuld.
Höfundur er lögfræðingur.
Greinin er birt í fullri lengd á
www.visir.is
Óli H. Þórð-
arson hættir
störfum
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
SKÍÐA- OG
BRETTAÚTSALA
skíði · skór · bindingar · stafir · bretti og brettabúnaður · skíðafatnaður · brettafatnaður
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
36
49
9
02
/0
7
30-50% afsláttur