Fréttablaðið - 03.03.2007, Síða 26
Auglýsingar sendist á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Skólahljómsveit Kópavogs er ein elsta
og virtasta skólalúðrasveit landsins og
fagnar 40 ára afmæli sínu um þessar
mundir. Á morgun verða haldnir tón-
leikar í Háskólabíói þar sem félagar
hennar fagna þessum tímamótum með
óvenjulegri efnisskrá.
Stofnandi sveitarinnar var Björn Á.
Guðjónsson trompetleikari og stjórn-
aði hann henni óslitið fram til ársins
1993 þegar Össur Geirsson tók við
sprotanum. Össur segir heilmargt hafa
þegar verið gert í tilefni afmælisárs-
ins, til dæmis verði brátt gefinn út
diskur með sveitinni en tónleikarnir á
morgun eru ákveðinn hápunktur
afmælisins. Í tilefni þeirra voru pönt-
uð þrjú ný verk fyrir sveitina en tón-
skáldin eru öll ungir Kópavogsbúar.
Haraldur Vignir Sveinbjörnsson og
Þóra Marteinsdóttir eru bæði útlærð í
tónsmíðum og hafa getið sér gott orð á
þeim vettvangi þótt þau hafi ekki skrif-
að áður fyrir lúðrasveitir en yngsta
tónskáldið, Finnur Karlsson, er aðeins
18 ára og félagi í hljómsveitinni. Auk-
inheldur munu yngstu meðlimir sveit-
arinnar leika útsetningu á lagi eftir
Írisi Andrésdóttur, annan félaga, en
lagið samdi hún fyrir tónsmíðakeppni
sveitarinnar þegar hún var aðeins níu
ára gömul. „Markmiðið var að fá öðru-
vísi tónlist en við spilum alla jafna en
það er alls ekki á hverjum degi sem
lúðrasveitir láta semja fyrir sig nýja
tónlist,“ útskýrir Össur og bætir við að
efnisskráin á morgun sé gamalt og nýtt
í bland því dægurflugur og kunnugleg-
ir standardar séu líka á listanum.
Skólahljómsveit Kópavogs er full-
gildur tónlistarskóli þar sem pláss er
fyrir 140 nemendur en auk þess fær
hljómsveitin sjálf liðsauka frá fleiri
tónlistarskólum á svæðinu. Sveitin er
þrískipt eftir aldri en yngstu hljóð-
færaleikararnir er aðeins níu ára gaml-
ir.
„Markmið okkar til framtíðar er að
hljómsveitin fái að þróast og að hún
starfi í takt við tímann,“ segir Össur og
nefnir í því tilliti að skoðað verði að
taka fleiri hljóðfæri með í sveitina og
leitast við að spila tónlist sem krakk-
arnir hafa gaman af. „Við getum ekki
endalaust spilað Öxar við ána,“ segir
hann sposkur, „við verðum að færa
okkur nær því sem þeim þykir gaman
að vinna með en jafnframt að missa
ekki sjónar af því markmiði að kynna
þeim gamla klassíska tónlist líka.“
„Bestu úrslitin eru sigur,
ásættanleg úrslit ef við
erum lélegir í leiknum eru
jafntefli, verst er tap. Það
eru bara þessir þrír
möguleikar til.“
Rússar draga sig úr fyrri heimsstyrjöld
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og vináttu við andlát eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
Þorsteins Arnars
Andréssonar
Bröttuhlíð 8, Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Eir fyrir alla umönnun og hlýju.
Friðbjörg Óskarsdóttir
Lilja Þorsteinsdóttir Snorri Árnason
Kristín Þorsteinsdóttir Aðalsteinn Leví Pálmason
Alda Þorsteinsdóttir Vignir Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Margrét Magnúsdóttir
til heimilis að Strandvegi 43A,
Vestmannaeyjum,
lést á sjúkrahúsi Selfoss fimmtudaginn 1. mars.
Útförin fer fram frá Aðventistakirkjunni í Reykjavík,
föstudaginn 9. mars kl. 13.30.
Jóhann Þórisson Þórný Kristmannsdóttir
Erlendur Þórisson Harpa Kristinsdóttir
Magnús Þórisson
systkini, barnabörn og barnabarnabörn.
80 ára í dag
Guðmundur
Magnússon
Byggingarmeistari, Akranesi.
Eiginkona hans er Ástríður Þ.
Þórðardóttir. Þau verða að heiman
með börnum sínum og fjölskyldum
þeirra á afmælisdaginn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, stjúpmóður, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
Elínar Sigurðardóttur
hjúkrunarheimilinu Eir, Hlíðarhúsum 7,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunar-
heimilinu Eir, deild 1-B fyrir góða umönnun.
Kristín Þorsteinsdóttir Þórður Jónsson
Sigríður Þorsteinsdóttir
Erla Þorsteinsdóttir Ágúst Haraldsson
Steinunn Þorsteinsdóttir Geir Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, dóttir og amma,
Svanhvít Stefánsdóttir
(Digga) Snorrabraut 75, Reykjavík,
Lést á Landspítalanum Hringbraut miðvikudaginn 28.
febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þór Tómas Bjarnason
Erna Stefanía Gunnarsdóttir Björgvin Hansson
Erna Smith
og barnabörn.
AFMÆLI