Fréttablaðið - 03.03.2007, Page 35
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Helena Jónsdóttir danshöfundur keypti
sér nýjan Peugeot með glerþaki þegar
hún flutti heim frá Kaliforníu. Í bílnum
semur hún sín bestu verk undir norður-
ljósum og stjörnum.
„Þegar við hjónaleysin fluttum heim frá
Kaliforníu ákváðum við að fá okkur almenni-
legan bíl til að verja okkur fyrir veðri og
vindum á Íslandi,“ segir Helena Jónsdóttir
danshöfundur.
Helena hefur alltaf haft mikinn áhuga á
bílum síðan hún var krakki og fannst alltaf
gaman að fara með pabba sínum á bílasölur
til að skoða.
„Ég var alin upp með hárið undir derhúfu
og fannst svona frekar svalt þegar bílakarl-
arnir spurðu pabba hvað strákurinn væri
gamall enda tilheyrðu bílarnir heimi strák-
anna á þeim tíma,“ segir Helena brosandi.
Listamenn eru með mjög óreglulegan
vinnutíma svo þegar fjölskyldan á lausa
stund er gjarnan farið í bíltúr.
„Við kíkjum oft á bílasölur þrátt fyrir að
ekki standi til að bæta við bílum. Síðan höll-
um við bara sætunum aftur á bak úti í náttúr-
unni og njótum norðurljósanna og horfum á
stjörnur saman,“ segir Helena sem tók þá
ákvörðun frá fyrsta degi að kalla bílinn
Jóhann.
„Það er engin sérstök ástæða fyrir nafn-
inu, mér finnst bara eitthvað skemmtilegt
við að kalla hluti týpískum strákanöfnum,“
segir Helena hlæjandi.
Helena hefur samið fjölda dansverka
bæði fyrir kvikmyndir og svið og þar notar
hún bílinn Jóhann óspart í sköpunarferlinu.
„Það besta sem ég veit er að keyra út í
buskann, hlusta á tónlistina sem þessir snill-
ingar láta mig fá fyrir verkin, og láta verkið
verða til undir norðurljósum og stjörnum,
með íslenska landslagið fyrir framan mig og
ofan,“ segir Helena.
Dansverkin verða til hjá Jóhanni