Fréttablaðið - 03.03.2007, Síða 38
Stór og litrík mynstur eru einkennandi
fyrir hönnun Emilio Pucci. Ný lína sem
kynnt var á tískuvikunni í Mílanó ber
því vitni.
Þrátt fyrir að hvert þeirra sé einstakt er
mynstur Pucci auðþekkjanlegt. Allt frá
fimmta áratugnum, þegar ítalski skíða-
maðurinn Marchese Emilio Pucci reyndi
fyrir sér sem hönnuður, hefur vörumerki
hans verið þekkt fyrir stór, björt og
síbreytileg mynstur. Emilio Pucci var
sjálfur yfirhönnuður fyrirtæki síns þar til
hann lést árið 1992, en þá tók dóttir hans
við.
Núverandi yfirhönnuður Emilio Pucci
er Christian Lacroix, sem er vel þekktur
fyrir einstaka færni í að nota óvenjuleg og
skræpótt mynstur. Hann notar óhikað
gömul mynstur frá Emilio Pucci eins og
sjá má á haust- og vetrarlínunni sem kynnt
var nýverið á tískuvikunni í Mílanó.
Útkoman er skynörvandi hippatíska, litrík
og glæsileg.
Skynörvandi hippatíska
Fallegar pallíettur og frábær
farði.
Um þessar mundir er Chanel að
senda frá sér nýjungar í vor- og
sumarlínunni og þar kennir ýmissa
spennandi grasa. Fyrst ber
að nefna hið vinsæla „flug-
freyjumeik“, en það er nú
komið í hagnýtar umbúðir
sem auðvelt er að hafa
með sér í veskinu.
Farðinn, sem heitir í
raun Teint Innocence,
inniheldur vítamín-
blöndu sem hefur nær-
andi áhrif á húðina um
leið og hann hylur mjög
vel og gefur sérlega jafna og fal-
lega áferð.
Pallíettuaskjan, eða Lumiere
D‘artifices, inniheldur púður-
skugga sem hentar bæði fyrir
augu og kinnar. Þessi vara er
algert augnayndi sem enginn
Chanel-aðdáandi ætti að
láta fram hjá sér fara, en
hún kemur í takmörkuðu
upplagi og verður því ekki
lengi í verslunum.
Að lokum er vert að
minnast á nýja naglalakkið
frá Chanel, en það er svart
og sanserað og á eflaust ekki
eftir að njóta minni vinsælda
en svarta háglans naglalakk-
ið sem kom á markaðinn í
fyrra og sló öll sölumet á
fyrstu vikunum.
Vor í lofti hjá Chanel
Sýnishorn á ótrúlegu verði
Útivistarjakki
Barnaúlpa
Flíspeysa
Golfskór
Fótboltaskór
Brettabuxur
Einnig mikið úrval af: skíðafatnaði, útivistar-
fatnaði, golffatnaði, íþróttafatnaði, brettafatnaði,
golf- og fótboltaskóm, barna- og unglingafatnaði.
Golfskór á snilldarverði.
Góður afsláttur af HiTec golfskóm.
Frábært úrval af góðum vetrarúlpum fyrir bæði
börn og fullorðna.
Heildsölu - lagerútsala
Opnunartími
Laugardagur 3. mars kl. 10-18
Sunnudagur 4. mars kl. 11-17
Mánudagur 5. mars kl. 14-20
Fyrstur kemur - fyrstur fær!
Komið tímanlega því takmarkað magn er til af öllum vörum
Gerðu frábær kaup á ZO-ON útivistarfatnaði
50-90% afsláttur
Við rýmum til á lagernum vegna sumarlínu okkar sem kemur fl jótlega
til landsins. Við seljum því eldri lager og sýnishorn á ótrúlegu verði.
Allar vörur á 50-90% afslætti!
Útsöluverð kr.
29.900
8.900
12.900
12.900
13.900
12.900
Listaverð kr.
11.900
3.900
6.900
3.900
3.900
4.900
1.-5. mars
Nýbýlavegi 18 • Kópavogur
Dalbrekkumegin