Fréttablaðið - 03.03.2007, Qupperneq 41
Sögusafnið í Perlunni er glæsi-
legt safn. Gínurnar eru afar
raunverulegar enda liggur mik-
il vinna að baki hverri þeirra.
Til dæmis er hvert hár fest á
eitt og sér.
Í einum af hitaveitutönkum Öskju-
hlíðarinnar er búið að koma upp
víkingasafni þar sem Leifur
heppni stendur í skipstafni, Þor-
geir Ljósvetningagoði liggur undir
feldi og Snorri Sturluson situr við
skriftir. Safnið er hugarfóstur
hjónanna Ernsts Backmann og
Ágústu Hreinsdóttur. „Ég heyrði
það á útlendingum að þeim fannst
vanta víkingasafn þar sem hægt
væri að skoða eitthvað annað en
hluti í glerskápum,“ segir Ernst.
„Svo vorum við hjónin í Tussaud‘s-
safninu í Kaupmannahöfn að
skoða kóngafólkið og þá datt okkur
í hug að þetta væri skemmtileg
leið til að sýna víkingana.“
Leiðin frá hugmynd að fram-
kvæmd og lokaútkomu var nokk-
uð löng, eins og vill verða. Fyrstur
til að stíga á stokk fullskapaður í
sílíkoni var Ingólfur Arnarson, en
hann var notaður til að sannfæra
ráðamenn um ágæti hugmyndar-
innar. „Hann fór með mér upp í
fjármálaráðuneyti og hann átti
sinn þátt í því að Orkuveitan tók
afar vel í þá bón mína að fá einn af
hitaveitutönkunum í Öskjuhlíð-
inni undir safnið,“ segir Ernst.
Þetta þarf ekki að koma á óvart,
enda Ingólfur mikill frumkvöðull.
Ekki ætti að vera vandamál fyrir
mann sem kom heilli þjóð á lagg-
irnar og vippa upp einu safni eða
svo.
Aðferðin sem Ernst notar við
gerð gínanna á Sögusafninu er
nokkuð frábrugðin þeirri sem ung-
frú Tussauds notast við. Sílíkonið
er öðrum eiginleikum gætt en
vaxið og er útkoman því önnur.
Brúðurnar eru einkar raunveru-
legar og hálf óþægilegt að nálgast
sumar þeirra því maður bíður
eftir að þær kippist við. „Það ligg-
ur mikil vinna að baki hverri gínu
og það eitt að festa hárið, en það er
gert eitt hár í einu, tekur fjórar
vikur. Margir komu að verkinu og
á tímabili var allt húsið okkar
undirlagt gínum,“ segir Ernst og
hlær. „Við vorum vön að geyma
gifsafsteypur af hausum út í
gluggann og börnin í hverfinu
komu stundum og horfðu á alla
hausana. Ég held að við höfum
verið kölluð Addams-fjölskyldan
af sumum krökkunum.“
Snorri Sturlu úr sílikoni
Hátt staflað
Þröngt mega sáttir
liggja í sumum hótel-
um í Japan.
„Capsule Inn Akiha-
bara“ hótelið í Tókýó er
all sérstætt. Þar gista
menn ekki í eiginlegum
herbergjum heldur
troða sér í rör sem er
tveir fermetrar að þver-
máli. Í rörinu er dýna,
sæng og ljós auk
nútímalegra þæginda
eins og sjónvarps,
útvarps og internet-
tengingar.
Hótelið hefur mest
verið notað af skrif-
stofumönnum sem kom-
ast ekki heim til sín
vegna anna. Nýlega
hafa hótelin þó vakið athygli
ferðamanna sem finnst spenn-
andi að gista við þessar nýstár-
legu aðstæður.
Einstök fegurð Alpanna heillar alla sem sækja Austurríki heim.
Þessi notalega ferð um sveitir landsins hefst með flugi til
Frankfurt, en þaðan er ekið til Ingolstadt fyrrum hertogadæmis.
Næst er haldið að Mondsee, sem er draumastaður austan við
Salzburg í Austurríki. Skoðunarferðir til tónlistarborgarinnar
Salzburg, Wolfgangsee og Hallstatt, sem er ein af perlum
Salzkammergut. Ferðin endar í Nürnberg, þar sem farið er í
skoðunarferð um borgina og tími verður til að kanna mannlífið.
Fararstjóri: Steingrímur Gunnarsson
Verð: 99.800 kr.
Vor 2
Salzkammergut
5. - 12. apríl
Sp
ör
-
R
ag
nh
ei
ðu
r
In
gu
nn
Á
gú
st
sd
ót
tir
Salzburg -
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R