Fréttablaðið - 03.03.2007, Side 46

Fréttablaðið - 03.03.2007, Side 46
heimaerbest JON MALE ER BRESKUR HÖNNUÐUR SEM STARFAR Í MANCHESTER Male lýsir sjálfum sér sem þrívíddarhönnuði. Verk hans eru að miklu leyti búin til úr málmi og tré en hann býr bæði til verk sem standa ein og sér auk þess sem hann hannar hluti sem eru fjöldaframleidd- ir. Verk hans eru oft á tíðum gædd góðlátlegum húmor. SÓSUSKÁL AF LJÓSI Hér hefur Jon Male haganlega komið fyrir ljósi inni í munstraðri súputarínu. MITT OG ÞITT Flest pör eiga sína hlið í rúminu. Male spilar með þessa staðreynd með þessum skemmti- legu náttborðum sem eru úr við með sand- blásnu hertu gleri og krómuðum fótum. hönnun Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar, Skaftahlíð 25, 105 Reykjavík, sími: 550-5000 Ritstjórar: Kristín Eva Þórhallsdóttir kristineva@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is. Auglýsingar: Anna Elínborg Gunnarsdóttir, 550-5806, aeg@365.is Útlitshönnuður: Kristín Agn- arsdóttir kristina@frettabladid.is. Forsíðumynd: Veitingastaðurinn Gilt í New York, nánar á bls 14. „Meistarinn minn á Akureyri, Pétur Breiðfjörð, lagði alltaf mikla áherslu á víravirkið og búningasilfrið til að halda þessari hefð lifandi. Það eru ekki margir gullsmiðir af yngri kynslóðinni sem kunna að smíða víravirkið og mig langaði að gera eitthvað nýstárlegt við þessa kunnáttu,“ segir Helga Ósk Einarsdóttir gullsmiður, sem hefur smíðað búningasilfur og víra- virki í tíu ár. Hefðbundnir skartgripir úr víravirki voru vinsæl- ir hér áður fyrr eins og armbönd, krossar og nælur en í dag eru ekki margir gullsmiðir sem smíða víra- virkið. „Ég gekk lengi með þá hugmynd að gera fallega skartgripi við öll tilefni, ekki bara fyrir búninginn, svo fyrir tæpu ári hófst ég handa við að hanna og smíða og hef fengið mjög góðar viðtökur,“ segir Helga, sem nú smíðar undir vörumerkinu Milla. „Nafnið Milla vísar í upphlutinn, en vestið er reim- að saman og festin fer síðan í gegnum millur,“ segir Helga, sem hefur alltaf nóg að gera við að smíða hefð- bundið búningasilfur. „Það hefur færst í aukana að konur bæði láti sauma á sig og saumi sjálfar búning. Síðan koma þær margar til mín og þurfa þá ýmist nýtt silfur eða við- bót, viðgerð og hreinsun á gömlu silfri sem þær hafa erft,“segir Helga. Fram undan er markaðssetning á Millu erlendis en á Íslandi stendur einnig til að færa út kvíarnar. Skartgripirnir úr Millu-línunni fást nú á Hótel Nord- ica, Hótel Loftleiðum og hjá Gallerí Ófeigi á Skóla- vörðustíg. Nánari upplýsingar um Helgu Ósk og Millu er að finna á heimasíðu línunnar: www.milla.is rh@frettabladid.is Þjóðlegt silfur í nýrri mynd Helga Ósk Einarsdóttir gullsmiður hefur fært íslenska víravirkið í nýtískulegan búning og hannar nú og smíðar skartgripi undir nafninu Milla. Helga Ósk Einarsdóttir gullsmiður hefur smíðað víravirki og búningasilfur í tíu ár og hefur nú fært víravirkið í nútímalegan búning undir merkinu Milla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Armband úr smiðju Helgu Óskar, hluti af línunni Millu. Hringur með víravirkisskreytingu sem getur verið fallegur með þjóðbúningi eða við önnur hátíðleg tilefni. Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin.- 104 Reykjavík. S: 58 58 900. www.jarngler.is Tækniupplýsingar yfir með hraðlyftu. Lyftigeta: 2500 kg. Lyftihandtök: 7 lyftur í fulla hæð Lengd A: 1150, B: 1540 mm. Breidd C: 530 mm. Gaffalhjól: 82 x 60 mm tvöföld polyurethan. 3. MARS 2007 LAUGARDAGUR2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.