Fréttablaðið - 03.03.2007, Page 58
heimaerbest
1. Gilt veitingastaður og bar á
Palace-hótelinu í New York
einkennist af andstæðum. Þar má
finna áhrif allt frá grískum
fornminjum og endurreisnartíma-
bilinu til barokks, bókasafna og
hofa. Joulin tekst á einhvern hátt
að taka þessa ólíku hluti og skapa
eina heild sem endurspeglar
íburð og frjótt ímyndunarafl.
2. Discotheque kallast þessi
listilega kúla sem er hluti af
hljóð- og ljósauppsetningu í
Versalakastala.
3. Ether Light Fixture ljósa-
króna eftir Jouin sem hann
hannaði fyrir Murano Due árið
2006. Hún samanstendur af
mörgum glerkúlum mótuðum
þannig að þær líkjast loftbólum í
vatni.
4. Mabelle-stólinn hannaði
Jouin árið 2003. Jouin segist hér
hafa leikið sér að jákvæðu og
neikvæðu rými þar sem óvænt
sjónarhorn og misjöfn tilfinning
ríkir. Stólinn er hægt að fá úr
plasti, leðri eða úr textíl.
5. Audiolab kallast þessi
skúlptúr sem er á listasafni í
Lúxemborg og Joulin hannaði
árið 2003. Joulin hefur hannað
nokkrar slíkar einingar en þar
geta gestir listasafna sest inn til
að hlusta á verk hljóðlistamanna.
Í Audiolab geta fjórir setið
þægilega en slíkar einingar eru
til staðar á söfnum í Beaubourg,
Marseille, Berlín, Barcelona,
Strassborg, Lúxemborg og
Kaupmannahöfn.
List, ljós og litir
Frakkinn Patrick Jouin er fæddur 1967. Hann útskrifaðist frá L‘ENSXCI árið 1992 og
hefur starfað töluvert með hinum heimsþekkta hönnuði Phillip Starck við húsgagnahönn-
un. Hann hóf feril undir eigin nafni árið 1998 og ári síðar hannaði hann veitingastaðinn
víðfræga Mix í New York fyrir matreiðslumeistarann Alain Ducasse. Síðan þá hefur leiðin
legið upp á við. Eftir hann og starfsmenn hans liggja mörg verk, bæði einstakir hlutir svo
og hönnun á heilu veitingastöðunum. Til marks um fjölhæfni Jouins má nefna að hann
hannaði hugmyndabíl frá Renault árið 2001.
4
5
3
2
1
3. MARS 2007 LAUGARDAGUR14