Fréttablaðið - 03.03.2007, Page 84

Fréttablaðið - 03.03.2007, Page 84
Afhverju eru menn aldrei myglaðir við rakstur i auglýsingum? Þetta ætti að sleppa! UNDIRFATABÚÐ VÖLU Áfallahjálp fylgir frítt með hverri mátun! Hmmmm síðasti skóladagurinn ... En mér finnst ég ekki vera tilbúin að takast á við heiminn ... Ég á nóg með að undirbúa mig fyrir þriðja bekk. Hvaða klessa er þetta hérna á umslaginu mínu? Þetta er hestur sem Solla teiknaði fyrir þig, er þetta ekki flott hjá henni? Teiknaði hún þetta, Vá!!! Hún er hæfileikarík! Stundum hef ég á tilfinningunni að ég sé hálf blindur þegar börnin mín eru annarsvegar! Ég var ekki mjög gömul þegar ég varð fyrst „ást- fangin“ af John Travolta. Að sjá hann á marglitu dansgólfi, í hvítum jakka- fötum, stútfullan af sjálfsöryggi og þokka... vá! Hvílíkur maður. Mest af lýðnum bar hann og hér varð ekki aftur snúið. Árin liðu og áfram þótti mér Travolta með kynþokkafyllstu mönnum jarð- ar. Jafnvel þegar hann lék í Look Who’s Talking, Look Who’s Talking Too og Look Who’s Talking Now... og öllum öðrum fannst hann ömurleg- ur, þá stóð ég við mitt og fannst hann alltaf sætur. Svo birtist hann í Pulp Fiction og skyndilega voru allir farnir að tala um hvað Travolta væri töff en ég dró augað í pung og smellti í góm eins og sú sem ein veit. Áhrif Travolta á samtímann eru að mínu mati töluvert meiri en fólk áttar sig almennt á. Ég hef til að mynda þá kenningu að hann hafi verið fyrsti „hnakkinn“ sem sögur fara af. Eftir að Saturday Night Fever kom út greip um sig heljar- innar diskóæði sem teygði sig að sjálfsögðu hingað til Íslands og úr varð stétt sem kallaðist „diskófrík“. Diskófrík þessi þróuðust svo smátt og smátt yfir í súkkulaðitöffara, ljósagæja, tjokkóa og nú síðast hnakka. Ég tel að hnakkinn svokallaði eigi ættir sínar að rekja til laugar- dagsfársins, en þar kemur okkur fyrir sjónir ungur maður sem veit ekkert skemmtilegra en að fara út að djamma. Svarthærður og vel vax- inn eins og tjokkó ber að vera, með skartgripi og í þröngum fötum... það þarf ekki mikla skerpu til að sjá að þessi atriði hafa haldið sér óbreytt frá 1977. Drottinn (þó Travolta trúi tæp- lega á hann) blessaði líka þennan ágæta leikara með ægifagurri röddu og brosi sem gæti brætt jökla og járn. Ég held að mér eigi alltaf eftir að finnast hann sjarmatröll. Við getum orðið gömul saman, ég og Travolta, og ávallt verð ég þarna á hliðarlínunni... með fulla trú á honum á meðan hann veit ekki einu sinni að ég er til. Ég held að það sé líka bara einfaldast þannig. Vi nn in ga r v er ða af he nd ir hj á BT Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þv í a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M Sk lú bb . 9 9 kr /s ke yt ið . HÖRKU HASARMYND FRÁ LEIKSTJÓRA NARC Sendu SMS skeytið JA SAF á númerið1900 og þú gætir unnið miða fyrir tvo! Vinningar eru:Miðar á myndina, fullt af Pepsi, DVD myndir og margt fleira FUMSÝND 2. MARS SKOLAÐ Í BURTU M/- ÍSL TAL. KL. 1:30 Í ÁLFABAKKA SparBíó* : 450 KR MIÐAVERÐ Á OFANTALDAR SÝNINGAR Laugardag og Sunnudag Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA, AKUREYRI OG KEFLAVÍK FRÁIR FÆTUR M/- ÍSL TAL. KL. 1:30 Í ÁLFABAKKA Stærsta opnun á fjölskyldu- mynd í Bandaríkjunum í Ár s.v. mbl SPARbíó SparBíó* — 450kr laugardag og sunnudag VEFUR KARLOTTU M/- ÍSL TAL. KL. 1:30 Í ÁLFABAKKA KL. 2 Í KEF. OG Á AK. BRIDGE TO TERABITHIA KL. 1:30 Í ÁLFABAKKA KL. 2 Í KEF. OG Á AK.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.