Fréttablaðið - 03.03.2007, Side 86
! Kl. 17.00Kammerhópurinn Nordic Affect
heldur tónleika í Bókasal Þjóðmenn-
ingarhússins. Tónleikarnir bera
yfirskriftina „Girni og viður“ en
hópurinn leikur tónlist frá barokk-
tímabilinu.
Litið til veðurs í ASÍ
Tónlistarskólinn á Akureyri
heldur dag tónlistarskólanna
hátíðlegan og efnir til mikillar
músíkveislu ásamt Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands um
helgina.
Ketilhúsið ómar af músík í
allan dag en þar munu nemend-
ur á öllum stigum koma fram og
leika fjölbreytta tónlist á ýmis
hljóðfæri. Fyrstu tónleikarnir
hefjast kl. 11 og síðan á klukku-
stundarfresti fram eftir degi.
Lokatónleikar dagsins kl. 17 eru
helgaðir minningu Þorgerðar S.
Eiríksdóttur sem var píanónem-
andi við skólann en lést af slys-
förum í London þar sem hún
stundaði framhaldsnám. Á tón-
leikunum koma fram nemendur
í framhaldsdeild skólans.
Ókeypis er á alla tónleikana í
Ketilhúsinu en tekið á móti
frjálsum framlögum í Þorgerð-
arsjóð.
Veislan heldur áfram á morg-
un en þá leika nemendur skólans
ásamt Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands í Akureyrarkirkju kl. 16
og leika strengjasveitir þeirra
saman. Á efnisskránni er tón-
list eftir Hafliða Hallgrímsson,
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson,
Otto Respighi, Albinoni, Mas-
cagni, Britten og Vivaldi. Stjórn-
andi á tónleikunum er Guðmund-
ur Óli Gunnarsson.
Einleikari á fiðlu er Lára
Sóley Jóhannsdóttir en hún leik-
ur einleik í Vetrinum eftir
Vivaldi. Lára Sóley hóf fiðlunám
sitt við Tónlistarskóla Húsavík-
ur en fór þaðan í Tónlistarskól-
ann á Akureyri og síðar í fram-
haldsnám til Englands. Hún lauk
prófi frá The Royal Welsh Coll-
ege of Music and Drama sumar-
ið 2006. Við útskrift hlaut Lára
„The Peter Esswood Price“ fyrir
góðan námsárangur. Hún starf-
ar nú sem fiðlukennari við Tón-
listarskólann á Akureyri.
Sameinaðir kraftar
Sýning á verkum Einars Jónsson-
ar myndhöggvara verður opnuð í
forkirkju
Hallgríms-
kirkju í dag.
Biskup
Íslands,
herra Karl
Sigurbjörns-
son, opnar
sýninguna kl.
17 en hún er
unnin í sam-
vinnu List-
vinafélags
Hallgríms-
kirkju og
Hallgríms-
safnaðar við Listasafn Einars
Jónssonar sem lánar verkin.
Á sýningunni eru þrjú gifsverk,
Mold frá 1904-1908, Natura Mater
frá 1906 og Minnismerki Hall-
gríms Péturssonar frá 1914-1922,
sem öll eru hugsuð sem minnis-
merki látinna og viðfangsefni
þeirra mót lífs og dauða, hringrás
lífsins og sigur andans yfir efninu.
Stærst verkanna er Minnismerki
Hallgríms Péturssonar sem Einar
hóf að gera þegar þrjú hundruð ár
voru liðin frá fæðingu séra Hall-
gríms og er verkið hylling til
sálmaskáldsins. Er þar sérstak-
lega vísað til Passíusálmanna með
myndum af hinum fjórtán stöðv-
um á píslargöngu Krists og eru
ljósmyndir af þeirri myndröð á
sýningunni. Minning séra Hall-
gríms mun hafa verið Einari sér-
lega hugleikin og í safni hans er
líkan að Hallgrímskirkju sem
myndir eru af á sýningunni. Sýn-
ingin stendur til loka maímánaðar
og er opin á sama tíma og kirkjan.
Við opnun sýningarinnar syng-
ur Mótettukór Hallgrímskirkju
undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Í minningu
HallgrímsTilkynnt verður um verðlauna-
hafa bókmenntaverðlauna Norð-
urlandaráðs næstkomandi mánu-
dag. Verðlaunin eru veitt árlega
fyrir fagurbókmenntir sem skrif-
aðar eru á einu af norrænu tungu-
málunum. Til greina koma skáld-
sögur, leikrit, ljóða-, smásagna- eða
ritgerðasöfn og önnur bókmennta-
verk.
Markmið verðlaunaveitingar-
innar er að auka áhuga Norður-
landabúa á bókmenntum og tungu-
máli nágrannalandanna og á
sameiginlegri menningararfleifð
Norðurlanda en verðlaunaupp-
hæðin nemur 350 þúsundum
danskra króna.
Skáldsögurnar Rokland eftir
Hallgrím Helgason og Sumarljós
og svo kemur nóttin eftir Jón
Kalman Stefánsson eru tilnefndar
til verðlaunanna fyrir Íslands
hönd í ár.
Í fyrra hlaut sænski rithöfund-
urinn Göran Sonnevi verðlaunin
en árið á undan hlaut Sjón verð-
launin fyrir bók sína Skugga-Bald-
ur. Aðrir íslenskir höfundar sem
hlotið hafa þennan heiður eru
Einar Már Guðmundsson, Fríða Á.
Sigurðar-
dóttir, Thor Vilhjálmsson, Snorri
Hjartarson og Ólafur Jóhann Sig-
urðsson.
Á morgun verður haldið mál-
þing um norrænar samtímabók-
menntir í Þjóðarbókhlöðunnni þar
sem meðlimir dómnefndar verð-
launanna munu fjalla um helstu
strauma í norrænum bókmennt-
um um þessar mundir. Soffía
Auður Birgisdóttir, formaður
dómnefndar, setur málþingið en
þátttakendur koma víða að frá
Norðurlöndunum og hafa sérþekk-
ingu á bókmenntum heimalands
síns. Jón Yngvi Jóhannsson bók-
menntafræðingur mun ræða um
íslenskar bókmenntir. Að erindun-
um loknum mun Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson fundarstjóri
vera með samantekt.
Samkomuhaldið er forvitnilegt,
ekki síst í ljósi þess að það er sam-
fara dómnefndarstörfum – þessa
helgi verða nefndarmenn að kom-
ast að niðurstöðu um hver fær
verðlaunin. Íslenskir höfundar
hafa lýst því að tilnefningin ein og
sér í fyrsta skipti sé því líkust að
fá högg í magann. Heldur er ólík-
legt að þeir Hallgrímur og Jón fái
verðlaunin í ár.
Hefur reglan
virst vera sú að
þau gangi milli
þjóðanna. En
allt er einu
sinni fyrst.
Dagskráin
í Þjóðarbókhlöð-
unni hefst kl. 14
á morgun. Fram-
sögur eru á nor-
rænum tungu-
málum,
aðgangur er
ókeypis og allir
eru velkomnir.
Bera saman bækur