Fréttablaðið - 03.03.2007, Qupperneq 93
Rokkdúettinn The White Stripes
gefur út sína sjöttu plötu, Icky
Thump, síðar á þessu ári. Þetta
verður fyrsta plata sveitarinnar
síðan Get Behind Me Satan kom út
fyrir tveimur árum.
„Við erum að gera okkar besta
til að platan komi út eins fljótt og
hægt er,“ sögðu þau Jack og Meg
White á heimasíðu sinni. Kemur
platan út undir merkjum Warner
Bros. sem The White Stripes samdi
við eftir að V2-plötufyrirtækið
lagði upp laupana.
Á meðal laga á nýju plötunni
verða I´m Slowly Turning Into You,
Catch Hell Blues, Little Cream
Soda og You Don´t Know What Love
Is (You Just Do What You´re Told).
Icky Thump
kemur út
samt ekki upp til þessarar tegund-
ar tónlistar. Ég er til dæmis heldur
ekkert hrifinn af hiphop tónlist.“
Aðspurður hvað honum líki
hins vegar við nefnir Mike meðal
annars fönk og soul, sem eru ein-
mitt forverar hiphops. Á Mike
kannski sameiginlegt með hip-
hoppi að koma frá sömu rótunum?
Hann samþykkir það reyndar en
segir að þrátt fyrir það sé hiphop
einfaldlega ekki hluti af hans tón-
listarlega orðaforða.
Eftir örlítið meira þras um nu-
metalinn, hiphop og fönk er röðin
komin að nýju plötunni, Light
Grenades. Nafnið segir Mike að sé
meira tilvitnun í sprengingu hug-
mynda og sköpunargleði heldur
en andstríðsáróður, sem þó megi
túlka á einhvern hátt í nafninu og
á plötunni. En hver eru næstu
skref Incubus? „Ég veit ekki
alveg, við erum kannski ekki byrj-
aðir að þróa með okkur hugmynd-
ir um næstu plötu. Við erum ein-
göngu nýbyrjaðir að fylgja nýju
plötunni eftir. Það þarf miklu orku
til þess að búa til plötu og ég þarf
að geta einbeitt mér almennilega
að henni. Þessa stundina erum við
einfaldlega að einbeita okkur að
næstu verkefnum,“ segir Mike.
Að því búnu er honum sleppt við
frekari spurningar enda betra að
hafa manninn vel úthvíldan og ein-
beittan fyrir tónleikana í kvöld en
húsið verður opnað klukkan 20.00
og sjá Mínus-menn um upphitun-
ina. Þegar þetta er skrifað eru enn
til örfáir miðar á tónleikana en
óseldir miðar verða fáanlegir eftir
hádegi í dag í Laugardalshöll.
Listasýning með verkum eftir leikstjórann David
Lynch hefur verið opnuð í Cartier-stofnuninni í
París. Sýningin nefnist The Air Is On Fire og þar
gefur að líta erótískar ljósmyndir frá nítjándu
öld, málverk af limlestum líkömum og ýmislegt
fleira óvenjulegt.
Þrátt fyrir að sýningarstjórinn segi verk Lynch
vera frekar brengluð segist Lynch sjálfur vera
hamingjusamur maður. „Margar af þessum hug-
myndum hafa ekkert með gáfur að gera,“ sagði
Lynch. „Þetta er meira hugsað sem frumleg svað-
ilför.“
Mörg verkanna ná aftur til háskólaára Lynch,
er hann stundaði listnám í Boston. Á meðal þekkt-
ustu kvikmynda hans eru Blue Velvet, Eraser-
head, Mulholland Drive og Wild at Heart auk þess sem sjónvarps-
þættir hans Twin Peaks nutu töluverðra vinsælda.
Listsýningin stendur til 27. maí næstkomandi.
Listasýning Lynch