Fréttablaðið - 03.03.2007, Qupperneq 104
Ádögunum fengum við parið þá undursamlegu hugmynd að
bregða okkur út fyrir landsteinana
í eina litla helgarferð, svona rétt
til að hlaða batteríin áður en undir-
ritaður steypir sér í kosningabar-
áttu og fer að hlaupa um kjördæm-
ið eins og byssubrandur til þess að
tala uppi á kössum í stórmörkuð-
um, taka í höndina á borgurunum
og dreifa bæklingum. Við uppveðr-
uðumst við þessa hugmynd og
náðum í dagatölin okkar. Þarna
var helgi laus, upplagt að skjótast
til London, þar sem við getum
meira að segja fengið ókeypis gist-
ingu. Þessi stórbrotna ráðagjörð
átti ekki að geta mistekist. Við
vorum byrjuð að pakka í hugan-
um.
svo fórum við á netið. London
er í alfaraleið, þannig að við bjugg-
umst við að undir eins myndu
poppa upp á netsíðum flugfélag-
anna aðlaðandi tilboð um flugfar-
seðla. Þrjú flugfélög fljúga þessa
leið, Iceland Express, Icelandair
og British Airwaves, þannig að
þarna ætti að vera samkeppni. Og
mars er ekki beinlínis háannatími,
að því er ég best veit. Við bjugg-
umst því við að það hlyti að vera
hægt að fljúga til London fyrir
tæplega 20 þúsund krónur á mann,
ef ekki minna. Það er alla vega sú
tala sem maður heyrir yfirleitt,
þegar flugfélögin auglýsa.
verðkönnunar
okkar var þessi: Ódýrustu farmið-
arnir sem flugfélögin gátu boðið
okkur upp á voru á bilinu 60 þús-
und til 85 þúsund krónur fyrir
okkur bæði. Þannig var nú það. Ég
ítreka að ég er að tala um London,
ekki Suður-Afríku eða Fiji-eyjar.
Og þetta voru bara flugmiðarnir.
Eitt flugfélagið reyndi að koma
betur út úr verðsamanburðinum
með því að láta flugvallarskattana
og önnur gjöld koma inn í verðið á
síðari stigum bókunarferlisins, en
við sáum í gegnum það. Skattar og
gjöld fyrir okkur bæði reyndust í
öllum tilvikum vera í kringum 20
þúsund kallinn.
var skotin niður.
Þetta voru ekki réttlætanlegar
summur fyrir þriggja daga ferð.
En segjum nú sem svo að okkur
hefði dottið í hug í staðinn að vera
sannir Íslendingar og skreppa í
flugferð innanlands, til dæmis til
Akureyrar á skíði. Nú vill svo til
að við athuguðum það fyrr í vetur.
Bara farið þangað reyndist vera á
u.þ.b. 40 þúsund krónur fyrir tvo.
„Það er bara eins og að fara til
London,“ sögðum við þá. Tómt mál
að tala um landið sem eitt atvinnu-
svæði meðan það kostar formúur
að ferðast um það, hugsaði ég, pól-
itískt.
held að niðurstaðan úr þessu
öllu sé sú að líklega förum við ekki
hænufet. Í mesta lagi í bíó. Það er
líklega eina ódýra leiðin sem
Íslendingar hafa til þess að flýja
veruleikann, án þess að fara á
hausinn. Ef boðið væri upp á skipa-
siglingar eins og á tímum Fjöln-
ismanna á þolanlegu verði myndi
ég slá til. Það er nokkuð ljóst að
eitthvað þarf að gera í málinu.
Íslendingar eru verðfangar í eigin
landi. Ég er alvarlega að íhuga að
setja á flot flöskuskeyti, í anda
Róbinson Krúsó, með beiðni um
neyðaraðstoð.
Verðfangar
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
.2
00
7
www.IKEA.is
Opið virka daga
Opið laugardaga
Opið sunnudaga
10.00 - 20.00
10.00 - 18.00
12.00 - 18.00
Morgunmatur
195,-
IKEA Restaurant & CaféIKEA Restaurant & Café
með graslaukssósu, kartöflum
og grænmeti
frá kl. 9:00 - 11:00
mánudaga - laugardaga
Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun
... á skrifstofunni
490,-
Kryddbakaður lax
1.190,-
REBUS geymslurekki
f/skrifstofuvörur B25xD15xH33 cm
DOKUMENT
pennastandur 195,-/2 stk.
CHRIS korktafla
L64xB49 cm 495,-
ORIGINAL
skrifborðsmotta 2.490,-
LACK vegghilla
ýmsir litir L130xH26 cm 2.490,-
LYCKLIG geisladiskataska
ýmsir litir 195,-/stk.
FLYT tímaritahirslur
195,-/5 stk.
DOKUMENT
ruslafata 795,-
HELMER skúffueining
á hjólum 4.950,-
BASISK
vinnulampi 1.690,-
FIRA smáhirsla
m/5 skúffum 995,-
RUSCH veggklukka
Ø25 cm 195,-
SKRISSEL blaðagrind
B33xH78 cm 895,-
MIKAEL tölvuborð
B77xD50xH76 cm ýmsir litir 5.990,-
BONNY
snúningsstóll 8.990,-
Skpiulag
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is