Tíminn - 08.12.1979, Blaðsíða 14

Tíminn - 08.12.1979, Blaðsíða 14
n Laugardagur 8. desember 1979 Guðjón Albertsson: BREIÐHOLTSBÚAR Skáldsaga sem lýsir lifnaðar- háttum, sambúðarvandamálum og neysluvenjum Breiðhyltinga, en er raunar almenn (slendinga- saga ef aö er gáð. Höfundurinn er borinn og barnfæddur Reyk- víkingur — og sjálfur Breið- holtsbúi. Jón Birgir Pétursson: VITNIÐ SEM HVARF fslensk sakamálasaga Ljóslifandi frásögn af þeim hlið- um borgarlífsins, sem ekki blasa viö sjónum almennings. Höf- undurinn á að baki margra ára fréttamannsferil og þekkir til máia. Bók þrungin spurn og spennu. Óskar Ingimarsson: f GEGNUM ELD OG VATN Spennandi skáldsaga sem gerist á íslandi, írlandi og í Danmörku. Óprúttnir samsærismenn ræna sýslumannsdótturinni, en sá er til sem gengur í gegnum eld og vatn til þess að bjarga stúlkunni sem hann elskar. (^) ÖrnogÖrlygur Vestungötu42 s 25722 Viltu vera með í V erðlaunagetraun? Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur ákveðið að bregða á leik og gefa fólki tækifæri á að taka þátt í svolítilli jólagetraun. Getraun þessi er í sjálfu sér ekki vandasöm, þar sem svörin viö spurningum okkar er að finna í bókafréttum forlagsins sem birtast hér í blaöinu. Fyrstu verðlaun í getrauninni verður kjörgripurinn „íslandsferð Stanleys1', en níu önnur verðlaun veröa í getrauninni. Berist margar réttar lausnir verður dregió úr þeim, og er stefnt aö því að verðlaunahafar fái verðlaun sín fyrir jól. Svör þurfa aö hafa borist til útgáfunnar eigi síðar en 18. desember. Skrifið svörin inn á meðfylgjandi seðil og sendið hann til útgáfunnar í umslagi merktu: Bókaútgáfan örn og Örlygur, Vesturgötu 42, Reykja- vík. — Jólagetraun. VERÐLAUN 1) íslandsleiðangur Stanleys, 2) Steingríms saga 3) Treg í taumi, 4) Sígildar sögur, þrjár bækur, 5) í gegnum eld og vatn, 6) Myndir úr raunveruleikanum, 7) Bændablóö, 8) Breiðholtsbúar, 9) Skellur á skell ofan, 10) Svikráð á sólarströnd. Spurningar: 1) Hvaö heitir bókin í bókaflokknum um hernámsárin er kemur nú út? 2) Við hvaða bæ kenndi Hannes Pálsson sig, en hann skrifaði bókina Vopnaskipti og vinakynni? 3) Hvert hefur verið aöalstarf Jóns Birgis Péturssonar sem skrifar bókina: Vitniö sem hvarf? 4) Hvaö hafa komið út margar bækur í bókaflokknum „Litlu mat- reiöslubækurnar1'? Svör: 1. 2.________________________________________________________________ 3. 4. Nafn Heimilisfang Sími FORN FRÆGÐARSETUR eftir Séra Ágúst Sigurðsson á Mælifelli. Bók þessi er sjór af fróðleik úr þjóðarsögunni, fjölbreytt mjög °g skemmtileg aflestrar. Séra Ágúst segir frá misjöfnu mannlífi og dregur fram íslenska örlaga- þætti. Fjöldi mynda og teikninga prýða bókina. FALIÐ VALD eftir Jóhannes Björnsson Hverjir hafa völdin á bak við tjöldin, hér heima og erlendis? I hverra spottum spriklar hinn almenni borgari? FALIÐ VALD á eflaust eftir að vekja bæði ugg og reiði því bók- in afhjúpar þaö sem ætlað er að liggja í þagnargildi. Aðalheiöur Bjarnfreðsdóttir MYNDIR ÚR RAUNVERULEIK- ANUM Aðalheiður segir frá saklausum börnum og hrösunargjörnu fólki, barnaverndarnefnd og betrun- arstofnunum, sveitalífi og sjó- mennsku, fangelsum og fínum heimilum. Hún skyggnist inn í skuggahverfi borgarinnar og af- kima sálarinnar. Hér segir frá miðaldra húsmóður sem veit ekki hvort hún lifir sínu lífi eða annarra. Hún verður manni sínum til skammar, börn- unum til leiðinda og hrossinu hættuleg. SVIKRÁÐ Á SÓLARSTRÖND Ung stúlka fær það óvenjulega verkefni að smygla mikilvægum skjölum til uppreisnarforingja í litlu eyríki í Karíbahafinu. Þetta er ekki heiglum hent og margt skeður áður en yfir lýkur. Snjó- laug Bragadóttir þýddi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.