Fréttablaðið - 12.04.2007, Side 1
Í október síðastliðnum fó b
Bloggsíða með myndum
af götutísku Reykjavíkur
„Hingað til hefur
stórum hluta af slögunum verið
hent, þannig að þetta er búbót þótt
upphæðirnar í spilinu séu ekkert
sérlega háar,“ segir Ingvar Már
Gíslason, markaðsstjóri Norð-
lenska. Fyrirtækið hefur selt
um hundrað tonn af úrbeinuðum
kindaslögum til Bretlandseyja á
undanförnu ári. Þar eru þau notuð
í kebab-gerð.
Slögin eru sá hluti kindarinn-
ar sem erfiðast er að koma í verð.
Hér á landi eru þau aðallega notuð
í kæfugerð og rúllu-
pylsur auk þess sem
Færeyingar kaupa
hluta framleiðslunn-
ar til sama brúks. Í
Bretlandi hafa menn
hins vegar fundið
önnur not fyrir slög-
in, það er í kebab-
rétti. „Kebab-fram-
leiðslan er öðruvísi
en maður hefði búist við,“ segir
Ingvar. „Þeir setja slögin ekki beint
á teininn, heldur eru þau fösuð, það
er að segja sett í hrærivél og búin
til úr þeim eins konar kjötkeila sem
síðan er steikt á teini.“
Kebab-réttir eiga rætur að rekja
til Mið-Austurlanda en eru nú vin-
sæll skyndibiti um allan heim. Þeir
hafa þó ekki gert sig gildandi á Ís-
landi svo heitið geti og Ingvar býst
við að kindaslögin verði því áfram
notuð fyrst og fremst í rúllupyls-
ur hér á landi. „En skrokkarnir eru
verkaðir frá toppi til táar og við
erum að minnsta kosti að fá ágætt
verð fyrir þetta núna.“
Krummi í Mínus fer með
hlutverk Jesú Krists í uppsetn-
ingu Vesturports á söngleikn-
um Jesus Christ Superstar. Hann
stígur þannig fyrstu skref sín á
leiklistarsviðinu.
Krummi er
flestum kunn-
ur sem tónlistar-
maður, og er oft
á tíðum kennd-
ur við rokk-
hljómsveitina
Mínus. Tveir fé-
lagar Krumma
úr Mínus, þeir
Bjarni Sigurð-
arson og Björn
Stefánsson, stjórna hljómsveitinni
í uppsetningunni. Auk þess fara
tónlistarmennirnir Jens Stefáns-
son og Bjarni Hall með hlutverk
Péturs og Júdasar.
Söngleikurinn verður frum-
sýndur um mitt sumar.
Krummi leikur
Jesú Krist
BT bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag
Opið til 21 í kvöld
www.xf.is
AFNÁM KVÓTAKERFISINS!
Magnús Þór og Kolbrún Stefánsdóttir flytja erindi og ræða við fundargesti.
Dúett Ingiríðar og Leifs leikur djass.
Skeifunni 7 í kvöld kl. 20 allir velkomnir!
Óvenju mikil um-
svif hafa verði á fasteignamark-
aðnum í Vestmannaeyjum síðustu
misseri og fyrirsjáanlegt að svo
verði áfram.
Elliði Vignisson bæjarstjóri
segir fjölda þinglýstra kaupsamn-
inga aldrei hafa verið jafnmikinn
og nú. Sveitarfélagið hafi til dæmis
selt rúmlega þrjátíu íbúðir úr fé-
lagslega kerfinu á innan við ári en
þessar íbúðir hafi lítið hreyfst áður
fyrr. „Samkvæmt mínum bókum
flokkast þetta sem verulega líf-
legur markaður,“ segir Elliði.
Guðbjörg Jónsdóttir, löggiltur
fasteignasali, segir að allar góðar
eignir seljist, „sérstaklega góð ein-
býlishús og góðar íbúðir. Margir
eru að fara í betra húsnæði. Svo er
fólk uppi á landi að kaupa sér af-
drep,“ segir hún.
Fasteignaverð í Eyjum hefur
hækkað um tuttugu til þrjátíu pró-
sent. Stór blokkaríbúð sem kostaði
um fjórar milljónir í fyrra selst nú
á fimm milljónir. Helgi Bragason
lögmaður áætlar að fimmtán til
tuttugu fasteignir hafi verið seld-
ar á mánuði það sem af er árinu.
Elliði telur trú fjárfesta á vaxtar-
möguleikum í Eyjum hafa auk-
ist. „Fram undan eru stórkostleg-
ar samgöngubætur. Við komum
til með að vera í beinum tengslum
við Suðurland. Það tekur tuttugu
mínútur að fara um jarðgöng á
milli og sigling tekur hálftíma.
Sjávarútvegurinn hefur líka eflst
og skilað auknum tekjum.“
Verslunarhúsnæði er í byggingu
í miðbænum í Vestmannaeyjum.
Gert er ráð fyrir að fimm versl-
anir verði á jarðhæð og fimmtán
íbúðir á efri hæðum. Þá er tals-
verð eftirspurn eftir lóðum fyrir
iðnaðarhúsnæði og einbýlishús.
Bæjaryfirvöld reikna með að á
næstu þremur árum verði byggð-
ir 25 þúsund fermetrar. Þá hefst
bygging menningarhúss á næst-
unni. „Þetta er mesta uppbygging
sem um getur eftir að byggð hófst
í Eyjum,“ segir Elliði.
Fasteignir rjúka út
í Vestmannaeyjum
Fasteignamarkaðurinn er óvenju líflegur í Vestmannaeyjum og íbúðir rjúka út.
Elliði Vignisson bæjarstjóri segir að á næstu árum verði 25 þúsund fermetrar
byggðir. Uppbyggingin nú sé sú mesta „eftir að byggð hófst í Eyjum“.
verk að vinnaFIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007
M
YN
D
/ BIRTA
RÁ
N
BJÖ
RG
VIN
SD
Ó
TTIR
Hefur gert upp um
tuttugu vinnuvélar
Tíu manna hópur, á aldr-
inum fimmtán til 26 ára, hefur
verið ákærður fyrir ótrúlega af-
brotahrinu sem stóð frá júlí í
fyrra og út janúar síðastliðinn.
Ákæran er í sjötíu liðum, sem
eru flestir vegna auðgunarbrota
ýmiss konar. Auk þess er fólkið
meðal annars ákært fyrir fíkni-
efnamisferli, eignaspjöll og fjöl-
marga bílþjófnaði.
Þrír menn tengjast langflestum
brotunum. Þeir voru allir hluti af
hinu svokallaða Árnesgengi sem
hlaut refsidóma í febrúar síðast-
liðnum fyrir alls kyns brot í alls
ellefu byggðarlögum.
Helgi Gunnlaugsson, prófess-
or í félagsfræði, segir líklegt að
um sé að ræða kjarnahóp síbrota-
manna þar sem afbrot eru hluti
af lífsstíl. Hann man ekki eftir
öðrum eins fjölda afbrota sama
hóps á jafn skömmum tíma.
Árnesgengið
aftur fyrir dóm