Fréttablaðið - 12.04.2007, Side 82
Atvik sem átti sér
stað eftir leik Hauka og Keflavík-
ur á þriðjudagskvöld hefur vakið
mikla athygli. Þá fær Helena
Sverrisdóttir, leikmaður Hauka,
olnbogann á Arnari Mar Gunnars-
syni, aðstoðarþjálfara Keflavíkur,
í hálsinn.
Arnar Mar hefur beðið Helenu
og Haukana afsökunar á fram-
ferði sínu. Helena segir hann hafa
játað að um viljaverk hafi verið
að ræða og slíkt hið sama segja
Haukar. Annað segir Arnar Mar
þó við Fréttablaðið.
„Þetta var óviljaverk. Ég átt-
aði mig ekki á því að nokkuð hefði
gerst fyrr en morguninn eftir
þegar byrjað var að ræða þetta á
spjallsíðum. Ég tók ekki eftir að
nokkuð hefði gerst. Ég hef beð-
ist fyrirgefningar. Adrenalín-
ið var í botni eftir leik og ég sé
eftir þessu,“ sagði Arnar Mar en
á hverju er hann nákvæmlega að
biðjast afsökunar?
„Að hafa labbað aðeins utan
í hana, sem ég hefði ekki átt að
gera. Ég var ekkert að hugsa. Ég
mun gera eitthvað gott fyrir Hel-
enu í staðinn. Mér finnst samt að
verið sé að gera of mikið úr mál-
inu. Ég geri mér samt grein fyrir
að þetta lítur ekki vel út fyrir mig
en ég ætlaði ekki að gefa olnboga-
skot eða meiða hana.“
Helena var ekki ánægð með
hegðun Agnars og segir hann hafa
sagt aðra sögu við sig en Frétta-
blaðið.
„Hann labbaði utan í mig. Hann
viðurkenndi að hafa gert þetta
viljandi og segist sjá mikið eftir
þessu,“ sagði Helena, sem hefur
fyrirgefið Agnari þótt hún sé ekki
ánægð með hann. „Mér fannst
mjög hallærislegt að gera þetta
og hann verður að eiga þetta við
sjálfan sig. Dómarinn vildi svo
ekkert gera neitt í þessu. Sagði að
leikurinn væri búinn.“
Agnar Mar Gunnarsson, aðstoðarþjálfari Keflavíkur, hefur beðið Helenu
Sverrisdóttur, leikmann Hauka, afsökunar á að hafa rekist utan í hana eftir leik
liðanna á þriðjudag. Agnar segir um óviljaverk að ræða af sinni hálfu.
musicI
Sony Ericsson W880i
Örþunnur Walkman tónlistarsími
Frábær 2 megapixla myndavél • Léttur og fjölhæfur
MP3 tónlistarspilari með tónlistargreini
Handfrjáls búnaður fylgir
Verð 39.980 kr.
Verð áður 49.900 kr.
Þú færð símann í vefversluninni á siminn.is
eða á næsta sölustað Símans.
Tilboðin gilda til 15. apríl
MDS-60 ferðahátalarar
Verð 3.980 kr.
Verð áður 4.980 kr.