Fréttablaðið - 19.04.2007, Side 1
„Við fórum til að athuga
með reykjarlykt en þá stóðu eld-
tungurnar upp úr niðurfalli á klós-
ettinu. Áður en við vissum af fyllt-
ist húsið af reyk og það brakaði og
small í veggjunum. Þá hlupum við
út úr húsinu og mættum slökkvi-
liðsmönnum á leiðinni inn,“ segir
Patrekur Sigurjónsson sem var við
þriðja mann við störf í Lækjargötu
2 þegar gífurlegur eldur braust þar
út í gær. Félagi hans, Bjarni Sig-
urðsson, telur eldinn hafa breiðst út
í húsinu á tveimur til þremur mín-
útum. „Við höfðum ekki einu sinni
tíma til að taka dótið okkar með
okkur, svo fljótt var þetta að gerast.
Við einfaldlega hlupum út með eld-
inn á hælunum.“
Gífurleg eyðilegging varð í
miðbæ Reykjavíkur í gær þegar
húsin að Lækjargötu 2 og Austur-
stræti 22 urðu eldi að bráð. Allt til-
tækt lið lögreglu og slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins barðist við
eldinn í allan gærdag. Engin slys
urðu á fólki þegar eldurinn braust
út eða í aðgerðum á staðnum. Til-
kynnt var um eldinn laust fyrir
klukkan tvö og var allt tiltækt lið
lögreglu og slökkviliðs á höfuðborg-
arsvæðinu þegar sent á staðinn.
Voru starfsskilyrði slökkviliðs afar
erfið í allan gærdag á meðan
slökkvistörfum stóð. Reykkafarar
lýsa aðkomunni sem gríðarlega erf-
iðri og fyrstu mínúturnar gátu þeir
aðeins varist eldinum sem sótti að
þeim úr öllum áttum.
Björn Karlsson, forstöðumaður
Brunamálastofnunar, segir ljóst að
eldvörnum hafi verið ábótavant í
húsunum. „Annars hefði eldur ekki
náð svona langt. En það er erfitt að
fara að ítrustu kröfum í brunavörn-
um í gömlum friðuðum húsum því
þau eru byggð eftir gömlum reglu-
gerðum.“
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins, segir að
rannsókn bendi til að eldsupptök
hafi verið í loftljósi í söluturni
sem stendur á milli húsanna sem
eru tvö af þeim elstu og sögufræg-
ustu í Reykjavík.
Ljóst er að menningarsögulegt
tjón er mikið en borgarstjóri segir
að húsin verði endurreist. Fjárhags-
legt tjón hefur ekki verið metið en
það skiptir mörg hundruð milljón-
um, að sögn þeirra sem gerst
þekkja.
Opið 13–17 í dag
Allir velkomnir.
20.52
Um 200 manns sinntu útkallinu
Stórtjón eftir elds-
voða í miðbænum
Að minnsta kosti þrír voru
fluttir á slysadeild með brunasár
í gærkvöld eftir að heitavatns-
æð rofnaði í miðborg Reykjavík-
ur. Um 80 gráðu heitt vatn foss-
aði niður Vitastíg og Laugaveg
og áttu vegfarendur fótum sínum
fjör að launa.
Lekans varð vart um klukk-
an tíu í gærkvöld en þá tók heitt
vatn að fossa upp um götubrunn
á Vitastíg. Skömmu síðar lokaði
lögreglan Laugaveginum fyrir
umferð en þá höfðu nokkrir veg-
farendur brennt sig á vatninu. Að
sögn læknis á slysadeild var ekki
um alvarleg brunasár að ræða.
Þá flæddi vatn í að minnsta
kosti einn kjallara við Laugaveg
og olli þar einhverjum skemmd-
um.
Ekki er ljóst að svo stöddu
hvers vegna heitavatnsæðin gaf
sig.
Vegfarendur
brenndust
17.10
Allt tiltækt lið lögreglu og slökkviliðs barðist við eld í miðbæ Reykjavíkur í gær-
dag. Eldurinn átti upptök í söluturni. Eldvarnir voru ófullnægjandi.