Fréttablaðið - 19.04.2007, Síða 32

Fréttablaðið - 19.04.2007, Síða 32
greinar@frettabladid.is Ef leiðtogar stjórnarandstöð-unnar birtu svohljóðandi sameiginlega yfirlýsingu nú strax í byrjun kosningarbarátt- unnar, þyrftu kjósendur ekki að velkjast í vafa um valkostina í stjórnmálunum: „Stjórnarandstöðuflokkarn- ir hafa ákveðið að mynda nýja meirihlutastjórn, nái þeir til- skildum meiri hluta á Alþingi í kosningunum í vor. Stjórnar- andstaðan gengur bundin til al- þingiskosninga í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins. Við heitum því að mynda samhenta, hæfa og sterka ríkisstjórn að loknum kosningum, fáum við þingstyrk til að stjórna landinu næstu fjögur ár. Höfuðatriðin í málefnasamn- ingi nýrrar ríkisstjórnar verða þessi: Við myndum jafnaðarstjórn. Við ætlum að hverfa frá þeirri ójafnaðarstefnu, sem núverandi ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur markað. Við ætlum að draga úr ójöfnuði í samfélaginu með því að jafna aðstöðu launþega og fjármagns- eigenda í skattalögum, meðal annars með hækkun skattleys- ismarka. Við ætlum að tryggja öldruðum, öryrkjum og öðrum, sem höllum fæti standa, betri og tryggari kjör. Við ætlum að blása til nýrrar sóknar í mennta- málum á öllum skólastigum, því að góð menntun er lykillinn að betri og jafnari lífskjörum til langs tíma litið. Við myndum græna stjórn. Við ætlum að endurskoða stefn- una í stóriðjumálum og taka rík- ara tillit til landsins og komandi kynslóða en núverandi ríkis- stjórn hefur gert. Ákvarðan- ir um einstök stóriðjuver hing- að og þangað um landið snerta alla landsmenn og einnig óborn- ar kynslóðir og eru því sam- eiginlegt úrlausnarefni þjóðar- innar, en ekki sérmál einstakra byggðarlaga. Við ætlum að staldra við og marka framsýna stóriðjustefnu í sátt við landið. Við ætlum að stöðva uppblástur landsins með því að hefta lausa- göngu búfjár og hrossa, svo að Ísland megi aftur verða grænt. Við myndum frjálslynda stjórn. Við ætlum að taka stefn- una í sjávarútvegsmálum til endurskoðunar og snúa frá því rangláta og óhagkvæma fisk- veiðifyrirkomulagi, sem núver- andi ríkisstjórn hefur haldið til streitu í óþökk mikils hluta þjóð- arinnar. Við ætlum að virkja ákvæði gildandi laga um sam- eignarhald þjóðarinnar á fiski- miðunum, bæði í orði og á borði. Við ætlum að standa vörð um frelsi einstaklingsins til orðs og æðis, frelsi með ábyrgð. Við ætlum að ýta undir heilbrigða samkeppni og uppræta okur með því að efla bæði fjármála- eftirlit og samkeppniseftirlit. Við myndum lýðræðisstjórn. Við ætlum að loknum samning- um við Evrópusambandið að leggja í dóm þjóðarinnar tillögu um aðild Íslands að Evrópusam- bandinu og upptöku evrunnar á Íslandi í stað krónunnar. Í öllum flokkum eru uppi öndverð sjón- armið um Evrópumálið. Það er skiljanlegt. Við munum takast á um þetta mál fyrir opnum tjöld- um. Við heitum því að virða nið- urstöðu þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar. Við ætlum að marka nýjar áherzlur í utanríkismál- um og tryggja varnir landsins til frambúðar. Við ætlum að svipta hulunni af símahlerunum á fyrri tíð. Við myndum velferðarstjórn. Við ætlum að standa vörð um velferð allra Íslendinga og efla félags- og heilbrigðisþjónustu, löggæzlu, samgöngur, mennt- un og menningu. Heilbrigði, ör- yggi, menntun og menning hald- ast í hendur og efla mannauðinn, mikilvægustu auðlind þjóð- arinnar. Við ætlum að greiða fyrir nauðsynlegum framför- um á öllum þessum sviðum með skipulagsumbótum og endur- skipulagningu ríkisfjármálanna, bæði útgjalda og tekna, án þess þó að auka skattheimtu og um- svif ríkisins. Verkaskipting rík- isins, sveitarfélaga og einka- geirans verður skoðuð vandlega. Við myndum sterka stjórn. Við ætlum að veita viðnám gegn verðbólgu og vafasamri skuldasöfnun með styrkri og samræmdri fjármálastjórn og ýmsum skipulagsumbótum, svo sem fækkun ráðuneyta. Við ætlum að skera upp herör gegn hlutdrægni í embættaveiting- um á vegum ríkisins og í einka- væðingu ríkisfyrirtækja. Við ætlum að setja lög um rannsókn- arnefndir á vegum Alþingis, svo að ljós reynslunnar megi lýsa upp leiðina til betri og gagn- særri stjórnsýslu. Við lýsum eftir skýru umboði kjósenda til að hrinda þessum fyrirætlunum í framkvæmd.“ Við myndum stjórn Samfylkingin kveinkar sér undan umræðu um ábyrgð flokksins á bið- listum eftir hjúkrunarrými í Reykja- vík. Slík grein birtist hér á þessum vettvangi 17. apríl eftir Guðríði Arnar- dóttur, bæjarfulltrúa Samfylkingarinn- ar í Kópavogi. Í 38. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga segir að sveitarstjórnir eigi að stuðla að því að aldraðir geti búið við eðli- legt heimilislíf svo lengi sem verða má. Þá segir: „Jafnframt verði tryggð nauðsynleg stofnana- þjónusta þegar hennar er þörf.“ Skv. lögum um málefni aldraðra skipa sveitar- stjórnir í þjónustuhóp aldraðra, sem gerir m.a. tillögur til sveitarstjórna um öldrunarþjónustu og metur vistunarþörf aldraðra. Ábyrgð sveitarfélaga á að tryggja öldruð- um stofnanaþjónustu þegar þeim brestur heilsa og þrek til sjálfstæðrar búsetu er því skýr. Þótt ríkið taki þátt í kostnaði við uppbyggingu öldr- unarstofnana og greiðir stóran hluta af rekstrar- kostnaði þeirra, er það á ábyrgð sveitarfélaga að meta þörf fyrir hjúkrunarrými. Þar liggja upp- lýsingar um þarfir íbúa fyrir samfélagslega þjón- ustu á hverjum tíma. Flest sveitarfélög lands- ins hafa gegnt þessari skyldu sinni með ágætum. Þegar á heildina er litið eru næg hjúkrunarrými hér á landi til að fullnægja þörf fyrir hjúkrunarrými fyrir aldraða. Þeim er hins vegar mis- dreift um landið. Skortur á hjúkrunar- rýmum er fyrst og fremst á höfuðborg- arsvæðinu, sérstaklega í Reykjavík. Skv. lögum eiga sveitarfélög að leggja til 15% af byggingarkostnaði hjúkrun- arheimila. Í stjórnartíð Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík brugðust borg- aryfirvöld við skorti á hjúkrunarrým- um m.a. með byggingu Droplaugarstaða með 65% kostnaðarhlutdeild á árinu 1981 og Seljahlíð- ar með 100% hlutdeild á árinu 1986. Ekkert slíkt framtak átti sér stað í tíð R-listans til að bregð- ast við sama vanda. Hins vegar liggja nú þegar fyrir áætlanir um byggingu 400 hjúkrunarrýma á næstu árum að mestu á höfuðborgarsvæðinu. Það er því ljóst að R-listinn sofnaði á verðin- um í þau 12 ár sem hann sat við stjórnvölinn í Reykjavík. Því finnst mér ótrúlega djarft leik- ið af Samfylkingunni að slá upp auglýsingu um að flokkurinn vildi byggja 400 ný hjúkrunarrými á næstu 1½ ári, þegar meginhluti vandans er á ábyrgð þeirra sjálfra! Hverra er „vanrækslu- syndin“? Ég spyr! Höfundur er alþingismaður í Reykjavík. Biðlistar eftir hjúkrunarrými Ekkert blað? 550 5600 Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu fengið Fréttablaðið. En til vonar og vara skaltu klippa þetta símanúmer út og hringja ef blaðið berst ekki. - mest lesið L aunajafnrétti næst á Íslandi árið 2070 ef þróunin verð- ur áfram jafnhæg og hún hefur verið síðustu ár. Þetta er auðvitað óviðunandi en líka ótrúlegt miðað við hvað allir sem um málið tjá sig eru sammála um hversu ósann- gjörn þessi staða er. Flestir þeir sem ráðandi eru í samfélaginu, stjórnmálamenn og atvinnurekendur, eru sammála um að kynbundinn launamunur eigi ekki að viðgangast. Þegar hins vegar kemur að því að aðhaf- ast er eins og flestir snúi sér undan og neiti að horfast í augu við það að það er ekki hægt að sitja með hendur í skauti og bíða þess að kynbundinn launamunur hverfi af sjálfu sér. Það er ótækt að ungar konur sem í dag eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumark- aðnum þurfi að horfa fram á kynbundinn launamun alla starfsævi sína og jafnvel alla starfsævi dætra sinna líka. Vitað er um nokkrar leiðir sem hægt er að nota til þess að hraða þróuninni í átt til launajafnréttis. Þar má nefna afdráttarlausari viðurlög við að brjóta á konum á þann veg að þær hafi ekki sömu laun og karlar sem vinna sambærileg störf. Sömuleiðis hafa rann- sóknir sýnt að launaleynd hefur óæskileg áhrif á launamun kynj- anna. Þrátt fyrir þetta vilja margir þeirra stjórnmálamanna, sem þó segja kynbundinn launamun ótækan, ekki grípa til þeirra laga- legu úrræða sem virðast skila árangri. Þetta er önnur hliðin á peningnum. Hin hliðin snýst um viðhorf í samfélaginu til þeirra starfa sem konur gegna nánast eingöngu. Upphaf jafnréttisbaráttu samtímans á áttunda áratugnum sner- ist að miklu leyti um að reyna að uppræta hugsunina um kvenna- störf og karlastörf. Kyn átti ekki að skipta máli þegar kom að því hjá ungu fólki að velja sér nám og/eða starf. Vissulega var einnig rætt um að hin hefðbundnu kvennastörf væru vanmetin til launa en undirliggjandi var að sú þróun myndi eiga sér stað samhliða að laun jöfnuðust milli starfsgreina þegar aukið jafnvægi næðist milli kynja innan þeirra. Hugarfarsbreytingin náði þokkalega vel til kvenna. Þannig hefur vígi karla fallið í hverri stéttinni á fætur annarri, einkum þó í þeim greinum sem krefjast menntunar. Á sama tíma hefur lítil hugarfarsbreyting orðið meðal ungra karla þegar kemur að því að velja sér starfsvettvang. Þeir eru enn sárafáir sem sækja í hinar hefðbundnu kvennagreinar, einkum umönnunarstörfin. Þau eru enn nánast eingöngu í höndum kvenna. Á tyllidögum er iðulega dáðst að öllum þeim konum sem vinna hörðum höndum að því að annast veika og aldraða, að ekki sé minnst á allar þær sem kenna börnunum í leikskólum, grunn- skólum og jafnvel framhaldsskólum. Þegar kemur að því að sýna virðingu fyrir þessum stéttum í launum er höfðinu stungið í sand- inn. Þó er ljóst að það verður að leiðrétta laun þessara stétta sem bornar eru uppi af konum og það verður ekki gert öðruvísi en að hækka laun þeirra umfram laun annarra stétta. Það verður bara að takast á við afleiðingarnar, bæði efnahagslegar og aðrar. Ráðamenn verða að sýna í verki að vilji þeirra stendur til þess að uppræta kynbundinn launamun. Orð eru til alls fyrst en þá má ekki sitja við þau tóm. Góður vilji en minni efndir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.