Fréttablaðið - 19.04.2007, Side 52
19. APRÍL 2007 FIMMTUDAGUR10 fréttablaðið sumarhús
Síðustu ár hefur færst töluvert
í vöxt að Íslendingar kaupi sér
hús á Spáni til þess að geta
eytt sumarfríunum sínum þar.
Vigdís Þóra Sigfúsdóttir og
Hjördís Harpa Guðlaugsdóttir
reka fasteignasöluna og leigu-
miðlunina Verano á Spáni.
Verano er nýtt fyrirtæki á Spáni
sem er bæði fasteignasala og leigu-
miðlun. Auk þess býður fyrirtækið
viðskiptavinum sínum upp á margs-
konar aðra þjónustu. „Við tökum að
okkur að hafa eftirlit með eignun-
um fyrir fólk, sjáum um viðgerðar-
þjónustu og viðhald, hjálpum til við
skjalagerð, bjóðum upp á akstur og
styttri skemmtiferðir og erum með
tuttugu og fjögurra tíma neyðar-
þjónustu,“ segir Vigdís og bætir
við að þar sem Hjördís sé búin að
búa lengi á Spáni tali hún tungu-
málið eins og innfædd. „Til dæmis
er mikið um að eldri borgarar sem
eru þarna tali ekki tungumálið og
því er mikilvægt að þeir hafi ein-
hvern sem gerir það og þekkir
heilbrigðiskerfið og annað vel og
ef eitthvað kemur upp á getur fólk
því leitað til okkar,“ segir hún
Vigdís segir að hún og Hjördís
hafi verið búnar að ganga lengi
með hugmyndina að Verano í mag-
anum áður en fyrirtækið var form-
lega stofnað. „Við höfðum báðar
verið mikið þarna úti og eftir að
við kynntumst komumst við fljótt
að því að við áttum okkur sama
draum og ákváðum því bara að
drífa okkur í að láta hann verða að
veruleika,“ segir hún.
Sjá www.verano.is.
emilia@frettabladid.is
Sjá um eftirlit og útleigu
Vigdís lét drauminn rætast og stofnaði
fasteignasölu á Spáni með vinkonu
sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Margar fallegar fasteignir eru til sölu hjá Verano.
Ekki ætti að vera erfitt að slappa af í fríinu í þessu umhverfi.
SÆTIR GARÐÁLFAR Garðálfar eru skemmtileg skreyting í
garðinn yfir sumarið og eru þeir til af ýmsum gerðum og stærðum.
Þeir lífga upp á garða og blómabeð enda jafnan litríkir og glað-
legir dugnaðarforkar. Rúmfatalagerinn er með úrval af litlum og
sætum garðálfum sem kosta frá 299 krónum.
Álfarnir eru flestir við störf
í garðinum enda miklir
dugnaðarforkar.
Á sýningunni Sumar 2007 mun Félag skrúðgarðyrkjumeistara
halda upp á 40 ára afmæli sitt en það var stofnað árið 1967. Félag-
ið mun kynna fagið á sýningunni og hvetja til náms í skrúðgarð-
yrkju. 40 fermetra sýningarsvæði mun endurspegla færni og
þekkingu skrúðgarð-
yrkjumeistara í hönn-
un og vinnubrögð-
um en það helsta sem
skrúðgarðyrkjumenn
starfa við eru hellu-
lagnir, hleðslur, stíga-
gerð, plöntun, klipp-
ingar og umhirða
grænna svæða.
Félag skrúðgarðyrkju-
meistara 40 ára
Skrúðgarðyrkjumeist-
arar munu halda upp á
afmælið á sýningunni
Sumar 2007 í Fífunni
helgina 20.-22. apríl.