Fréttablaðið - 19.04.2007, Síða 80
Nú er mál að fara að huga að matjurtagarðinum, ef
einhverrar uppskeru á að vera að vænta í sumar.
Svava Rafnsdóttir, garðyrkjufræðingur hjá Blóma-
vali, á ráð undir rifi hverju hvað varðar kryddjurt-
ir.
„Basilíku má sá hvenær sem er. Hana hefur
maður bara í eldhúsglugganum, því hún þolir illa
að vera úti,“ útskýrði Svava. Í Blómavali má finna
ágætis úrval kryddjurtafræja. „Við erum til dæmis
með margar tegundir af basilíku. Það er ein venju-
leg, önnur nettari, ein rauð, sítrónubasilíka, thai-
basilíka og kanilbasilíka,“ sagði Svava.
Aðrar jurtir sem sóma sér vel í glugganum eru
rósmarín, timjan, fáfnisgras og óreganó, að sögn
Svövu. Úti þrífast hins vegar jurtir á borð við kór-
íander, steinselju, graslauk, dill, salvíu og pipar-
myntu. „Piparmyntan er æðislega flott í potti. Ég er
alltaf með hana í stórum potti á veröndinni hjá mér,
því hún veður svolítið um garðinn,“ sagði Svava.
Hún segir best að forrækta kryddjurtir inni við.
„Svo fer maður með þær út í góðu veðri og inn yfir
nóttina svo að þær venjist kuldanum. Það kallast
að herða plöntuna.“ Að því loknu ætti jurtin að lifa
sumarið af úti á verönd. Frekari leiðbeiningar má
oftar en ekki finna á fræpokunum, en annars má
leita þeirra hjá starfsfólki Blómavals eða á heima-
síðu þess.
Tími kryddjurtanna nálgast
... að meistarakokkurinn Fabrizio Moreno, frá
veitingahúsinu virta Pepenero, er gestur La
Primavera fram á sunnudag. Matseðill Mor-
eno er stútfullur af klassískum réttum og því
ómissandi fyrir sælkera.
Leikarinn Orri Huginn
Ágústsson stundar elda-
mennsku eins og aðrir
stunda golf. Hann sótti
grillið inn í skúr fyrir mán-
uði.
„Matur er eiginlega aðalhobbíið
mitt. Ég er nánast matarpervert,“
sagði Orri. Þó að hann hafi gaman
af tilraunastarfsemi í eldhúsinu
segir hann þó mikilvægt að hafa
einfalda rétti sem mótvægi. „Þess-
ar uppskriftir eru til dæmis bara
einfaldur og fljótlegur matur, en
samt til að gera vel við sig,“ sagði
Orri.
Í sumar er hins vegar heljarinn-
ar matarveisla á dagskrá, sem Orri
segir útheimta margra daga elda-
mennsku. „Við erum tuttugu í hópi
sem höldum nýársboð. Í ár frestað-
ist það af óviðráðanlegum orsökum
og verður því að garðveislu í júlí í
staðinn. Síðast þegar við héldum
svona boð vorum við með tíu rétti
á mann og elduðum í fjóra daga. En
svo eldar maður ekki í tvo mánuði
eftir það,“ sagði hann kíminn.
Fyrir leikara er ekki alls kost-
ar auðvelt að sinna eldamennsku á
kvöldin. „Við frumsýnum söngleik-
inn Gretti á sunnudaginn og ég hef
ekki komist mikið í pottana í törn-
inni.“ sagði Orri. „En ég sé fram á
gósentíð eftir frumsýningu og þá
getur maður leyft sér að gera ein-
hverjar gloríur í eldhúsinu. Með
hækkandi sól fyllist maður líka
meiri móð og ég dró grillið út í
garð fyrir mánuði síðan. Uppskrift
eins og þessi er þægileg en pínulít-
ið öðruvísi. Þetta er ekkert flókn-
ara en formarinerað kjöt en mikið
skemmtilegra,“ sagði hann.
Bökunartími kartaflnanna fer auð-
vitað eftir stærð en 45 mínútur eru
þó yfirleitt nægur tími. Rauðlauk-
urinn má fara á grillið á sama tíma
og kartöflurnar.
Kryddið steikur með salti og
pipar eftir smekk. Blandið bjór og
bbq-sósu saman í skál og marinerið
kjöt í a.m.k. 30 mín. Það má flækja
marineringuna með þurrkryddum
og hunangi en hún er alveg nógu
bragðmikil og góð svona einföld.
Hitið grillið vel, látið kjötið á heita
grindina í stutta stund á hverri hlið
til að fá fallegar rákir og góða grill-
bragðið. Lækkið hitann aðeins og
grillið í u.þ.b. 22-25 mínútur í heild-
ina eða eftir smekk.
Innihaldi jógúrtsósunnar bland-
að saman í skál og borið fram.
Sósan er frábær með bæði kartöfl-
unum og kjötinu.
Til að væta kverkarnar er kjörið
að bera fram meira af uppáhalds-
bjórnum þínum, því ekkert á eins
vel við þessa nautasteik eins og
bjórinn sem hún er marineruð í.
Koníak og klassavín í sumarbyrjun
Sumarið heilsar vínáhugamönnum með áhugaverðum uppákomum.
Tveir af vínvænustu veitingastöðum borgarinnar bjóða heim gesta-
kokkum. Í samstarfi við vínframleiðandann Fonterutoli býður La
Primavera hingað Fabrizio Marino yfirmatreiðslumann á veitingahús-
inu Pepenero rétt utan Pisa. Matseðilinn er einkar lokkandi og með
honum eru boðin gæðavín frá m.a. Fonterutoli og hinum stórkostlega
hvítvínsframleiðanda í hlíðum Alpanna, Alois Lageder.
Menningardagarnir franskt vor á Íslandi, Pourguoi pas, standa yfir og
tveir matar- og vínviðburðir birtast okkur frá Frakklandi næstu daga.
Siggi Hall fær til liðs við sig franska „Michelin“ stjörnukokkinn Franc-
is Chaeveau og býður matseðil með 7% vsk. Skýtur þannig á umræð-
una um tregðu veitingahúsanna að lækka virðisaukaskattinn. Með
matnum frá Provence er boðið upp á sérvalin frönsk vín.
Á mánudaginn geta svo vínáhugamenn sest á skólabekk um síðdeg-
isstund. Vínskólinn stendur þá fyrir koníaksnámskeiði, „Masterclass“,
í samstarfi við framleiðandann Camus sem átt hefur vinsælasta koní-
ak hér á landi áratugum saman. Lesley Ellis, sem hefur starfað hjá
Cognac Camus í meira en 30 ár, stýrir námskeiðinu sem haldið verður í
Þingholti á Hótel Holti frá kl. 17 til 19.
Mun hún leiða þátttakendur í gegnum allt ferli koníaksgerðar ásamt
því að skýra helstu reglur og flokkun koníaks. Einnig mun hún ræða
markaðsstöðu koníaks á heimsmarkaði ásamt því að leiða áhugasama
í gegnum smökkun á mismunandi gæðakoníaki frá Camus-húsinu. Það
er stærsta koníakshúsið sem rekið er sem fjölskyldufyrirtæki og hefur
Camus-fjölskyldan framleitt koníak allt frá árinu 1863. Camus er frægt
fyrir flóknar blöndur og hefur verið ráðandi um langt árabil á heims-
markaði hvað varðar sölu á hágæða koníaki ásamt fágætum sérteg-
undum í kristal- eða postulínsumbúðum. Koníak hefur jafnan á sér há-
gæðablæ og ímyndin og framsetningin skiptir miklu máli. Á síðasta
ári voru flöskur Camus-koníaks endurhannaðar. Eru breytingarnar um-
talsverðar þótt fyrirtækið sé annars frekar íhaldssamt eins og vera ber
um framleiðanda vöru þar sem halda þarf gríðar-
lega fast í hefðirnar. Koníaksneysla hefur breyst
mikið síðari ár og framleiðendur hafa leitað nýrra
markaða og breytinga á framsetningu.
Námskeiðsgjald er 2.000 kr. og fer skráning
fram á vinskolinn@vinskolinn.is. Þetta er einstakt
tækifæri til að smakka úrval vandaðra koníaksteg-
unda og það fyrir verð sem jafngildir einu glasi!
Argentískt nautakjöt í uppáhaldi
OPIÐ HÚS - HVERAGERÐI
EINBÝLISHÚS AÐ REYKJAMÖRK 15
HÚSRÁÐENDUR BJÓÐA Í BÆINN, Í DAG, Á MILLI KL 14 OG 16
Eignin er 144,2 fm einbýli, þar af 30 fm í kjallara. Húsið er steinsteypt og hef-
ur verið endurnýjað að hluta að innan. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi,
stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahús, búr, eldhús og forstofu. Baðher-
bergið er flísalagt. Eldhús með kirsuberjainnréttingu. Gólfefni flísar og park-
et. Ný miðstöðvarlögn. Eignarlóð. Staðsetningin er góð í grónu umhverfi,
miðsvæðis í bænum. Eign sem gefur mikla möguleika svo sem viðbyggingu,
bílskúr og fl. Verð 25,6 millj.