Fréttablaðið - 26.04.2007, Side 1

Fréttablaðið - 26.04.2007, Side 1
69% 30% 37% Fr é tt a b la ð ið Fr é tt a b la ð ið M b l. M b l. *Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars 2007. LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA höfuðborgarsvæðið Fimmtudagur B la ð ið B la ð ið 30 10 20 40 0 50 60 80 70 Klæðist vesti skreyttu gulli og demöntum Á mánudaginn heldur Urður í tónleikaferð ásamt níu mánaða dóttur sinni, barnfóstru og öðrum liðsmönnum sveitarinnar. Urður Hákonardóttir, söngkona danssveitari Gus, hefur lengur ve iðtó l sannfæra blaðamann um að þetta sé alvöru demanta- og gullskreyting.„Ætli það hafi ekki kostað svona um 2,5 milljónir þetta vesti, en ég fékk náttúrlega tsegir hún h útivistFIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 Á kajak um StrandirHaraldur Njálsson, varafor-maður Kayakklúbbsins, segir Hornstrandir vinsælar. BLS. 2 Hornstrandir vin- sæll kajakstaður BT bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag www.xf.is LÍFEYRISGREIÐSLUR EIGA AÐ BERA 10% SKATT LÍKT OG FJÁRMAGNSTEKJUR Veitir þér aðgang að 29 vatnasvæðum vítt og breitt um landið fyrir aðeins 5000 kr. Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir frítt með! Fæst á N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri og menntamálaráðu- neytið skrifuðu nýverið undir samning til fimmtán ára sem tryggir skólum rétt til að sýna allar kvikmyndir hans. Kvik- myndir Friðriks hafa undanfarin ár verið sýndar í grunnskólum landsins án greiðslu og gladdist Friðrik mjög yfir því að þetta skyldi leitt til lykta. „Myndirnar hafa verið sýndar ólöglega undanfarin ár en nú verða þessar sýningar loksins löglegar.“ Samningurinn tryggir leikstjóran- um tvær milljónir á ári, þrjátíu milljónir samtals, og segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir að helsta gagnrýnin á þennan samning muni verða hversu upphæðin sem íslenska ríkið greiðir sé lág. Myndirnar lög- legar í skólum Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu hefur fundið barnaklám í tölvum fjórtán ein- staklinga það sem af er þessu ári. Leitað hefur verið í 38 tölvum, auk þess sem hald hefur verið lagt á 76 muni sem tengdir eru umræddum tölvum. Af þessum fjórtán einstakling- um sem barnaklám hefur fundist hjá hafa sex verið handteknir eftir tilkynningar Interpol eða Europol um starfandi barnaklámhringi erlendis sem teygt hafa anga sína hingað til lands. Hinir átta hafa verið handteknir eftir tilkynningar frá barnaverndarnefndum eða eftir öðrum leiðum. Hluti þeirra 38 tölva sem lög- reglan hefur lagt hald á er enn í rannsókn því ástæða hefur þótt til að leita frekar í þeim þar sem þegar hefur fundist eitthvað af barnaklámi í þeim. Umræddir ein- staklingar, allir karlmenn, eru á ýmsum aldri. „Við sjáum að þetta er að auk- ast,“ segir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu. „Miðað við hlutfall af þeim málum sem koma inn mánaðar- lega er þetta einn af stærri þáttun- um. Nú er það orðin vinnuregla hjá okkur að um leið og við fáum tilkynningu frá barnaverndar- nefnd varðandi grunsemdir um barnaklám fer alltaf fram hand- taka og hald er lagt á tölvubúnað í kjölfarið.“ Björgvin segir að ákveðnar hug- myndir séu nú í kerfinu til varnar þessari þróun, meðal annars um hvort líta eigi til aðferða Norð- manna. Þeir hafi komið upp bún- aði sem virki þannig að viðvörun frá lögreglunni birtist á skjánum ætli menn að fara inn á barna- klámsíður. Bent sé á að það sé brot á lögum að fara inn á þessar síður. Sú aðferð hafi gefist vel þar í landi. „Það er verið að athuga hvað hægt sé að gera í vörnum hér á landi til að minna fólk á að það sé komið inn á svæði sem varðar við lög að fara inn á,“ segir Björgvin. „Þær aðgerðir verða að vera í samstarfi við alla þá þjónustuaðila sem eru með netþjónustu hér. Þetta er í ákveðnum farvegi, bæði í dómsmálaráðuneytinu og hjá lög- reglunni.“ Æ meira finnst af barnaklámi í tölvum Barnaklám hefur fundist í tölvubúnaði fjórtán einstaklinga það sem af er þessu ári. Yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir vandann fara vaxandi. Unnið er að vörnum gegn þessari þróun hér á landi. Þorsteinn Njálsson, læknir á Kára- hnjúkum, segir forsvarsmenn Impregilo hafa vitað af veikindum af völdum mengunar í aðrennslisgöng- um virkjunarinnar frá því að þau komu fyrst upp 10. apríl. Hann gagnrýnir að ekki hafi verið brugðist við strax, heldur menn sendir inn í göngin þar til Vinnu- eftirlitið stöðvaði vinnu þar í fyrradag. Þorsteinn hefur sent Vinnueftirlitinu lista með nöfnum 180 starfsmanna sem hafa veikst vegna mengunarinnar. Fljótlega fór að bera á alvarlegum veikindum. Einn maður liggur nú á sjúkrahúsi í Póllandi með raskanir á miðtaugakerfi og tveir voru útskrifaðir af spítala í Neskaupstað í gær, enn óvinnufærir. Sá pólski var sendur utan þar eð hann hefði ekki getað greitt fyrir dýrar rannsóknir hérlendis. Alls eru á annan tug manna enn óvinnufærir. Þorsteinn segir jafnframt að mörg dæmi séu um að menn hafi hætt vinnu og snúið heim vegna ills aðbún- aðar. Ómar Valdimarsson, talsmaður Impregilo, segir að strax hafi verið brugðist við en það hafi greinilega ekki nægt. Hann kannast ekki við að menn hafi hætt störfum vegna lélegs aðbúnaðar. Vitað um veikindin í tvær vikur Jóhannes Geir Sigur- geirsson lætur í dag af störfum sem stjórnarformaður Landsvirkj- unar, en hann hefur gegnt því starfi í tíu ár. Nýr stjórnar- formaður verður Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi og fyrrverandi aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur ráðherra. Ársfundur Landsvirkjunar verður haldinn í dag og eru fimm menn í stjórn fyrirtækisins, skipaðir af stjórnarflokkun- um. Framsóknar- flokkurinn skipar stjórnarformann. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verða engar frekari breytingar gerðar á stjórn fyrirtækisins að sinni. Páll tekur við formennsku

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.