Fréttablaðið - 26.04.2007, Síða 38

Fréttablaðið - 26.04.2007, Síða 38
 26. APRÍL 2007 FIMMTUDAGUR2 fréttablaðið útivist Cintamani og Íslenski alpa- klúbburinn stofnuðu Leiðang- ursstyrktarsjóð í vetur. Styrk- urinn verður veittur árlega og geta allir sótt um sem eru í miklum ferðahugleiðingum. Styrkurinn verður í formi al- klæðnaðar fyrir leiðangurs- meðlimi ásamt fjárstyrk. Sam- anlögð heildarupphæð styrks- ins nemur 400.000 krónum. Þar að auki munu Cintamani og ÍSALP aðstoða leiðangur- inn við skipulag, kynningu og uppsetningu myndasýningar í lok ferðar. Áhersla verður lögð á að styrkja einstaklinga eða hópa sem stefna á klifur eða fjalla- leiðangra hvers konar þar sem takmarkið er krefjandi og ný- stárlegt. Umsóknarfrestur var upp- haflega til 31. mars en hefur verið framlengdur til 31. apríl. Hægt er að nálgast umsóknar- eyðublöð á heimasíðum Cinta- mani og ÍSALP. Dómnefndin er skipuð þeim Jökli Bergmann fjallaleiðsögumanni, Haraldi Erni Ólafssyni og Skarphéðni Halldórssyni, fulltrúa ÍSALP. Veitt úr leiðangurs- styrktarsjóði Þeir sem stefna á krefjandi fjallaleiðangra geta sótt um styrk í Leiðangurs- styrktarsjóð ÍSALP og Cintamani. Sp ör - Ra gn he ið ur In gu nn Á gú st sd ót tir Hálfur mánuður í Kína, mjög vel skipulögð ferð þar sem það sem Kína er frægust fyrir verður skoðað. Hér má nefna Terrakotta herinn, einn merkilegasta fornleifafund veraldar, siglingu á skemmtiferðaskipi um Yangtze fljót sem er þekkt fyrir gljúfrin þrjú og að sjálfsögðu Kínamúrinn. Helstu borgir Kína, Shanghai og Beijing sóttar heim. Hér gefst tækifæri til að kynnast bæði hinu þjóðlega Kína en einnig þeim ótrúlega miklu breytingum sem orðið hafa á síðustu áratugum. Sagan er heillandi og menningin ólík okkar, við kynnumst hefðum og smökkum á þjóðlegum réttum. Verð 288.200 kr. á mann í tvíbýli...allt innifalið! Aukagjald fyrir einbýli er 55.540 kr. A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R N á n a r i u p p l ý s i n g a r í s í m a 5 7 0 2 7 9 0 e ð a w w w . b a e n d a f e r d i r . i s 27. september – 12. október Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir 6. – 20. september Fararstjóri: Magnús Björnsson ævintýraheimur Um 300 manns stunda kajakróður hérlendis og eru meðlimir í Kayakklúbbnum. Í augum flestra er þetta áhugamál og nýta margir sumarfríið í langar kajakferðir um óbyggðar strandir. Kajaksportið er í mikilli sókn hérlendis og stöðugt fjölgar þeim sem leggja stund á kajakróður. Harald- ur Njálsson er einn þeirra en hann er varaformað- ur Kayakklúbbsins á Íslandi. „Ég byrjaði í þessu árið 2003 þannig að ég er ekki búinn að vera neitt rosalega lengi í róðrinum,“ segir Haraldur. „Félagi minn dró mig í þetta því hann langaði svo að prófa. Nú er hann hættur en ég er alveg forfallinn.“ Í Kayakklúbburinn eru nú um 300 manns. Flestir meðlima eru þar af áhuganum einum saman og viku- lega stendur klúbburinn fyrir svokölluðum félags- róðri. „Þetta er mjög skemmtilegt sport og fullt af góðum stöðum til að róa hér á Íslandi,“ segir Harald- ur. Mest er róið í Faxaflóanum, eyjurnar í kringum Reykjavíkurhöfn eru mikið sóttar og Hvalfjörðurinn er einnig vinsæll róðrastaður. „Svo fara menn í lengri ferðir þar sem þeir taka með sér mat til nokkurra daga, tjald og svefnpoka og bara allt sem til þarf,“ segir Haraldur. „Mitt uppáhaldssvæði eru Horn- strandirnar en þær eru vinsælar í svona ferðir.“ Kajakróður er meira en áhugamál í augum sumra. Kayakklúbburinn stendur fyrir Íslandsmóti sem samanstendur af fjölda móta yfir sumartímann. „Ka- jaksumarið byrjar einmitt núna á morgun, föstudag- inn 27. apríl, með keppni í straumkajak í Elliðaánum og strax á eftir er keppt í svokölluðu Elliðaárródeói,“ segir Haraldur. „Svo á laugardag verður Reykjavík- urbikarinn í Geldinganesinu þar sem keppt er í 10 km kappróðri karla og kvenna og einnig verður boðið upp á nýjan flokk, 50 ára og eldri.“ Kayakklúbburinn er með heimasíðuna www. kayakklubburinn.is og þar eru upplýsingar fyrir þá sem vilja kynna sér eða prófa kajakróður á Íslandi. - tg Hornstrandirnar eru vinsæll kajakstaður Haraldur hóf að stunda kajakróður fyrir nokkrum árum og heillaðist strax. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fjölmargir leggja stund á kajakróður hérlendis enda Íslend- ingum í blóð borið að sækja sjóinn. LÖGMÁL FERÐAMANNSINS 1. Göngum ávallt frá áningarstað eins og við viljum koma að honum. 2. Skiljum hvorki eftir rusl á víðavangi né urðum það. 3. Kveikjum ekki eld á grónu landi. 4. Rífum ekki upp grjót eða hlöðum vörður að nauðsynjalausu. 5. Spillum ekki vatni, eða skemm- um lindir, hveri eða laugar. 6. Sköðum ekki gróður. 7. Truflum ekki dýralíf. 8. Skemmum ekki jarðmyndanir. 9. Rjúfum ekki öræfakyrrð að óþörfu. 10. Ökum ekki utan vega. 11. Fylgjum merktum göngustígum þar sem þess er óskað. 12. Virðum friðlýsingarreglur og tilmæli landvarða.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.