Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.04.2007, Qupperneq 76

Fréttablaðið - 26.04.2007, Qupperneq 76
Írski athafnamaðurinn Vince Power, fyrrver- andi forsprakki Reading- tónlistarhátíðarinnar, kom í stutta heimsókn til Íslands á dögunum og sá þá Pétur Ben og Færeyinginn Teit syngja í Borgarfirði. Freyr Bjarnason hitti Power að máli og komst að því að kappinn er álíka kraftmikill og nafnið gefur til kynna. „Þeir voru mjög ólíkir en báðir með mikið sjálfstraust og góðir lagahöfundar,“ segir Power um frammistöðu Péturs Ben og Teits, sem spiluðu á vegum ÚTÓN, Út- flutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar. Segir hann góðan mögu- leika á því að þeir komi fram á ís- lensku kvöldi sem hann vilji halda á einum af klúbbum sínum í Lond- on. „Ég hef séð marga tónlistar- menn í gegnum árin en oft hefur manni fundist eitthvað vanta, eitt- hvað hungur eins og listamennirn- ir séu andsetnir, svipað og Oasis á sínum tíma. Þessir tveir eru mjög hæfileikaríkir en málið snýst um að vera á réttum stað á réttum tíma og með rétta upptökustjór- ann.“ Vince Power fæddist á Írlandi 29. apríl 1947 og hélt því upp á sex- tugsafmæli sitt síðastliðinn föstu- dag. Sextán ára fluttist hann til London þar sem hann fór að reyna fyrir sér í ýmiss konar störfum, þar á meðal sem húsgagnasali. Árið 1989 eignaðist hann 50% hlut í Reading-tónlistarhátíðinni sem er haldin á Englandi á hverju ári. Náði hann að rífa hátíðina upp til vegsemdar og virðingar og hefur hún um árabil verið ein virtasta tónlistarhátíð heims þar sem stærstu nöfnin í tónlistarbransan- um hafa troðið upp. Má þar nefna Oasis, Nirvana, Pearl Jam, Red Hot Chili Peppers og Björk Guð- mundsdóttir. Power seldi hlut sinn í Reading- hátíðinni árið 2005. Hann viður- kennir að hann sakni hennar stund- um. „Krakkarnir mínir skamma mig fyrir að hafa selt hana, því þeir höfðu mjög gaman af henni og ólust upp í kringum hana. Núna er ég bara upptekinn við aðra hluti. Ég keypti Benicassim- hátíðina [sem er haldin á Spáni] og ætla að reyna að bæta hana og stækka. Ég rek líka nokkra bari og klúbba og síðan vil ég halda hátíð í Bilbao á næsta ári,“ segir hann og hvetur blaðamann til að kíkja á Benicassim sem allra fyrst. „Þetta er fjörutíu þúsund manna hátíð, alveg frábær. Hún er haldin við sjóinn og er mjög afslöppuð og allt öðruvísi en það sem er í boði í Bretlandi. Til dæmis er veðr- ið þarna alltaf 100 prósent,“ segir hann og hlær, greinilega vanur alls konar sudda í Bretlandi. Power vill ekki meina að hann sé vægðarlaus í viðskiptum þrátt fyrir að það orðspor fari af honum. „Þetta truflar mig ekki. Ég fékk þetta orðspor í gamla daga. Ég lagði mjög hart að mér á þessum tíma og að mér skyldi neitað um eitthvað var ekki inni í myndinni. Skemmtanabransinn snýst mikið um að hver geri öðrum greiða en ég fór beint að kjarnanum enda írskur maður í London. Ég er samt ekkert vægðarlaus, enda er ég fjölskyldumaður og á átta börn.“ Á meðal þekktra nafna sem hafa haldið tónleika á Bretlandseyj- um á hans vegum, utan Reading- hátíðarinnar, eru Johnny Cash, U2, Rolling Stones, Bob Dylan og Van Morrison. Power er jarðbundinn maður og segist aldrei hafa fylgt frægum tónlistarmönnum eftir með lotn- ingu. „Þetta er bara vinnan mín. Ég eyði aldrei óþarfa tíma með listamönnunum. Ég virði þá en lít ekki til þeirra með stjörnur í augum. Ég vil frekar vera með fjölskyldu minni heldur en að fara í eftirpartí.“ Hann segist jafnframt ekki ætla sér að setjast í helgan stein á næstunni þrátt fyrir að vera orð- inn milljónamæringur. „Ég veit nú ekki hvernig á að skilgreina orðið milljónamæringur. Ég á stóra fjölskyldu og þrjár fyrr- verandi konur sem sjá um að ég verði aldrei of ríkur,“ segir hann og hlær. „Þegar pabbi minn hætti að vinna eftir fjörutíu ára starfs- feril dó hann skömmu síðar. Eitt af því sem ég hræðist hvað mest í lífinu er að setjast í helgan stein.“ Power er um þessar mund- ir að skrifa sjálfsævisögu sína með hjálp blaðamannsins James Brown. „Þessi saga snýst ekki um að segja frá fólkinu sem ég hef umgengst í gegnum tíðina heldur fjallar hún um uppruna minn. Ég eyddi æskuárum mínum á Írlandi og kom til Englands þegar ég var sextán ára, eins og svo marg- ir Írar gerðu. Það er bara gaman að setja þetta á blað fyrir börn- in mín og ef einhver kaupir bók- ina og fær innblástur af henni er það bara gott mál, því hún sýnir að hægt er að ná langt án þess að hafa neitt í höndunum. Ef maður hefur viljann og kraftinn skiptir hitt ekki máli.“ Leikkonan Angelina Jolie hefur óskað eftir því við dómstóla að nafni ættleidds sonar hennar Pax Thien Jolie verði breytt í Pax Thien Jolie-Pitt. Jolie vill sem sagt að eftirnafni kærasta síns, Brad Pitt, verði bætt við nafnið, rétt eins og með hin börn þeirra. Jolie ættleiddi hinn víetnamska Pax í síðasta mánuði. Þurfti hún að sækja um ættleiðinguna sem ein- stæð móðir þar sem hún er ekki gift Pitt. Jolie og Pitt áttu fyrir þrjú börn: hinn fimm ára Madd- ox, Zahöru sem er tveggja ára og Shiloh sem fæddist í maí í fyrra. Vill breyta nafninu Hljómsveitin Spinal Tap ætlar að koma saman á nýjan leik á Live Earth-tónleikum á Wemb- ley í London 7. júlí. Spinal Tap sló í gegn í grín-heimildarmyndinni This Is Spinal Tap árið 1984 þar sem gert var grín að þungarokks- hljómsveitum. Allir hinna upprunalegu meðlima sveitarinnar munu spila á tónleik- unum, auk þess sem leikstjóri This Is Spinal Tap, Rob Reiner, verður á staðnum. Ný fimmtán mínútna heimildarmynd um hljómsveitina sem Reiner leikstýrði verður jafn- framt sýnd á Tribeca-kvikmynda- hátíðinni í New York. Fyrrver- andi varaforseti Bandaríkjanna, Al Gore, verður kynnir á hátíðinni, þar sem þó nokkrar stuttmyndir um hlýnun jarðar verða sýndar. „Þeir eru ekki meðvitaðir um umhverfi sitt en þeir hafa heyrt minnst á hlýnun jarðar,“ sagði Reiner um félaga sína í Spinal Tap. Hljómsveitin hefur nokkrum sinn- um komið saman eftir að mynd- in var frumsýnd en nokkur ár eru liðin frá því hljómsveitarmeðlimir komu síðast fram. Spilar á Live Earth Heather Mills er dottin út úr banda- ríska raunveruleikaþættinum Dancing with the Stars. Heather, sem er 39 ára, segir að það hafi ekki komið á óvart að hún hafi dott- ið út úr dansþættinum. „Við vissum að við færum heim,“ segir Heath- er, sem þótti standa sig vel og sýna flott tilþrif á dansgólfinu ásamt dansfélaga sínum. Heather var sem kunnugt er eiginkona Bítils- ins Pauls McCartney en þau standa nú í erfiðum skilnaði. Frammistaða hennar í þáttunum þótti sér í lagi glæsileg í ljósi þess að hún missti vinstri fótlegg í bílslysi árið 1993. Heather dottin út rði. Sími: Áki: 8926723 & Kristján: 8960602 • www.spakongen.is Tökum gamla potta upp í nýja Arctic spa nuddpotta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.