Fréttablaðið - 26.04.2007, Side 88

Fréttablaðið - 26.04.2007, Side 88
Það er einfalt að vera vitur eftir á. Látinn vinur eða ættingi kallar á söknuð þótt maður hafi kannski sjaldan nennt að heim- sækja hann í lifanda lífi, nátt- úra verður að ómetanlegri nátt- úruperlu þegar búið er að byggja stíflu ofan á hana og brunnir kofar sem enginn pældi í eru allt í einu orðnir svakaleg menningarverð- mæti sem verður að endurbyggja í upphaflegri mynd vegna sögulegs gildis. sem brann var orðið eins og rotin tönn í andliti Reykja- víkur. Rúnturinn silast framhjá og einu sinni sá ég ógæfumann míga þarna á rafmagnskassa um há- bjartan dag. Fyrst tönnin brann úr er upplagt að setja nýja tönn í og hún þarf ekki endilega að vera alveg eins og sú gamla. Þar sem ég stóð uppi á Arnarhóli og leit yfir rústirnar sá ég fyrir mér glæsilegan glerskála sem teygði sig yfir allt þetta svæði. Í senn kaffihús og tónleikastaður, gríð- arleg lífæð í hjarta borgarinnar. Kannski væri þó bílabíó betri hug- mynd því við nennum svo sjald- an úr bílunum. Rúnturinn jókst til muna eftir að það kom eitthvað til að skoða – þ.e.a.s. brunarústirnar – svo kannski er hugmynd að brenna kofa reglulega fyrir almenning. eru æskuheim- ili Bítlanna í eigu borgarinnar og þúsundir manna góna vikulega á gluggana þar sem fyrir ekki svo löngu síðan mátti sjá tveim strákum bregða fyrir glamrandi á gítara. Þar kveiktu menn ekki strax á menningarverðmætunum og Cavern-klúbburinn goðsagna- kenndi var nánast rústir einar þegar framsýnir menn endur- byggðu hann á 9. áratugnum. Ég fór að gráta þegar ég stóð fyrir framan endurbyggt sviðið – það kalla ég menningarverðmæti. greifi var ekki í Bítlun- um en örþjóðin verður að sætta sig við það sem hún hefur. Gáfu- legt væri að hlúa strax að menn- ingarverðmætum framtíðar. Þannig ætti íbúð Megasar á Þórs- götu strax að fara á minjaskrá og líka fyrrverandi íbúð Bubba á Eiðistorgi. Einnig þarf að at- huga staði sem tengjast Björk, Eiði Smára og Sigur Rós. Eða hvað munu framtíðaríbúar lýð- veldisins annars telja menningar- verðmæti? Kannski Smáralind og Kringluna? Þarf ekki strax að frið- lýsa þau mannvirki? Þetta eru jú þeir staðir sem almenningur elsk- ar einna mest og fjölmennir í árið um kring. Verum nú vitur fram í tímann, ekki bara eftir á. Menningar- verðmæti Ævintýraleg símatilboð Allir símar frá Vodafone afhendast forhlaðnir, forstilltir og með 2 ára ábyrgð. Með Vodafone live! kemst þú á Netið í símanum þínum og getur til dæmis skoðað hvað er í bíó, náð í brandara, skoðað stjörnuspána þína og halað niður hringitónum og skjámyndum. Komdu í næstu Vodafone verslun, hringdu í 1414 eða smelltu þér inná www.vodafone.is til að fá nánari upplýsingar. Gríptu augnablikið og lifðu núna. Vodafone live! Nokia 6234 Miklu meira en bara sími. Með Bluetooth, myndavél, útvarpi, steríó heyrnartólum og styður minniskort. Vodafone live! Nokia 6131 Þú getur horft á Sky News allan sólarhringinn, sótt og horft á fréttir Stöðvar 2 ásamt fleira spennandi efni. Vodafone live! Sharp GX-17 Mjög fjölhæfur á ótrúlegu verði.Með Bluetooth, myndavél og USB tengjanlegur. F ít o n / S ÍA Ævintýraverð 26.900 kr. Ævintýraverð 9.900 kr. Ævintýraverð 19.900 kr. LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR - félag laganema við Háskóla Íslands mmtudaga milli 19:30 - 22:00 í síma 551-1012

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.