Fréttablaðið - 26.04.2007, Qupperneq 88
Það er einfalt að vera vitur eftir á. Látinn vinur eða ættingi
kallar á söknuð þótt maður hafi
kannski sjaldan nennt að heim-
sækja hann í lifanda lífi, nátt-
úra verður að ómetanlegri nátt-
úruperlu þegar búið er að byggja
stíflu ofan á hana og brunnir kofar
sem enginn pældi í eru allt í einu
orðnir svakaleg menningarverð-
mæti sem verður að endurbyggja í
upphaflegri mynd vegna sögulegs
gildis.
sem brann var orðið
eins og rotin tönn í andliti Reykja-
víkur. Rúnturinn silast framhjá og
einu sinni sá ég ógæfumann míga
þarna á rafmagnskassa um há-
bjartan dag. Fyrst tönnin brann
úr er upplagt að setja nýja tönn
í og hún þarf ekki endilega að
vera alveg eins og sú gamla. Þar
sem ég stóð uppi á Arnarhóli og
leit yfir rústirnar sá ég fyrir mér
glæsilegan glerskála sem teygði
sig yfir allt þetta svæði. Í senn
kaffihús og tónleikastaður, gríð-
arleg lífæð í hjarta borgarinnar.
Kannski væri þó bílabíó betri hug-
mynd því við nennum svo sjald-
an úr bílunum. Rúnturinn jókst til
muna eftir að það kom eitthvað til
að skoða – þ.e.a.s. brunarústirnar –
svo kannski er hugmynd að brenna
kofa reglulega fyrir almenning.
eru æskuheim-
ili Bítlanna í eigu borgarinnar og
þúsundir manna góna vikulega
á gluggana þar sem fyrir ekki
svo löngu síðan mátti sjá tveim
strákum bregða fyrir glamrandi
á gítara. Þar kveiktu menn ekki
strax á menningarverðmætunum
og Cavern-klúbburinn goðsagna-
kenndi var nánast rústir einar
þegar framsýnir menn endur-
byggðu hann á 9. áratugnum. Ég
fór að gráta þegar ég stóð fyrir
framan endurbyggt sviðið – það
kalla ég menningarverðmæti.
greifi var ekki í Bítlun-
um en örþjóðin verður að sætta
sig við það sem hún hefur. Gáfu-
legt væri að hlúa strax að menn-
ingarverðmætum framtíðar.
Þannig ætti íbúð Megasar á Þórs-
götu strax að fara á minjaskrá
og líka fyrrverandi íbúð Bubba
á Eiðistorgi. Einnig þarf að at-
huga staði sem tengjast Björk,
Eiði Smára og Sigur Rós. Eða
hvað munu framtíðaríbúar lýð-
veldisins annars telja menningar-
verðmæti? Kannski Smáralind og
Kringluna? Þarf ekki strax að frið-
lýsa þau mannvirki? Þetta eru jú
þeir staðir sem almenningur elsk-
ar einna mest og fjölmennir í árið
um kring. Verum nú vitur fram í
tímann, ekki bara eftir á.
Menningar-
verðmæti
Ævintýraleg
símatilboð
Allir símar frá Vodafone afhendast forhlaðnir,
forstilltir og með 2 ára ábyrgð.
Með Vodafone live! kemst þú á Netið í símanum
þínum og getur til dæmis skoðað hvað er í bíó,
náð í brandara, skoðað stjörnuspána þína og
halað niður hringitónum og skjámyndum.
Komdu í næstu Vodafone verslun, hringdu í
1414 eða smelltu þér inná www.vodafone.is til
að fá nánari upplýsingar.
Gríptu augnablikið og lifðu núna.
Vodafone live!
Nokia 6234
Miklu meira en bara sími.
Með Bluetooth, myndavél,
útvarpi, steríó heyrnartólum
og styður minniskort.
Vodafone live!
Nokia 6131
Þú getur horft á Sky News
allan sólarhringinn, sótt
og horft á fréttir Stöðvar 2
ásamt fleira spennandi efni.
Vodafone live!
Sharp GX-17
Mjög fjölhæfur á ótrúlegu
verði.Með Bluetooth,
myndavél og USB
tengjanlegur.
F
ít
o
n
/
S
ÍA
Ævintýraverð
26.900 kr.
Ævintýraverð
9.900 kr.
Ævintýraverð
19.900 kr.
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR
- félag laganema við Háskóla Íslands
mmtudaga
milli 19:30 - 22:00 í síma 551-1012